Ofurhetjur.com - Annska, Jói, Ninja, Skuggi & Myrra -

Októbermyndir

Við erum búin að bralla allskonar upp á síðkastið. Ninja er nú reyndar búin að vera lasin núna í 12 daga, með Kossageit, ég var nú ekkert að taka myndir af því, það var einstaklega ógeðfelld ásjón. Kossageit er sumsé svipað og öfgakennd útgáfa af frunsum sem kemur í klösum og treður sér upp í munn, nef, í háls, á hendur og eiginlega út um allt bara.Hún er núna blessunarlega laus við þetta og fer á leikskólann á morgun, loksins. Við foreldrarnir fengum væga útgáfu af þessu og mér fannst þetta bölvanlegt en prinsinn er auðvitað enn á brjósti þannig að hann fær mótefnin frá mér og grípur því sjaldan pestir og slapp við þennan ósóma. Við höfum ekkert fengið neinar húsdýraplágur ennþá nema þá þessa, sem betur fer. Prinsessan er að hætta með duddu (hefur verið með hana bara á nóttunni í sirka ár) og stoltið er að kæfa mig, þetta var algjörlega að hennar tilstuðlan og hún er ægilega dugleg, auðvitað stundum ósköp aum yfir þessu en dugnaðurinn er yfirsterkari. Prinsinn er að taka fleiri tennur og það er ansi sárt. Þeir feðgar hafa verið ansi flottir síðustu vikuna, litli maðurinn er sumsé að hætta að drekka á nóttunni og pabbinn sér bara um að dextra við hann í þeirri kvöl og pínu. Í kvöld sofnaði hann um níu og sefur vonandi alla nóttina, eða til svona 5, þá hittir hann einka-beljuna sína og fær súp og mömmuknúserí! =)

Ef smellt er á i uppi í horninu á myndaalbúminu, er hægt að sjá textann við myndirnar, reyndar sjást ekki íslenskir stafir, vinnum í því. Ef smellt er á FS niðri í horninu, er hægt að sjá myndirnar í ,,full screen” og SL stendur fyrir ,,slideshow”. Njótið!

 

3 Responses Subscribe to comments


  1. Nanna

    Jimundur hvað þau eru yndisleg krútt! þetta eru æðislegar myndir =)

    Oct 29, 2009 @ 08:51


  2. sigurlaug

    vildum bara kvitta fyrir kmna, þið eruð svo miklir molar. Sjáumst hress á mánudagin

    Nov 20, 2009 @ 13:02


  3. Gudny i Nyja Sjalandi

    Knus a ykkur oll og serstakt ofurknus a Ninju mina… vona ad thid hafid thad oll aedislega gott!
    Kv. Gudny

    Dec 10, 2009 @ 18:58