Ofurhetjur.com - Annska, Jói, Ninja, Skuggi & Myrra -

Nóel stendur upp, í nóelmánuðnum!

Skuggi Nóel er nú dálítið þungur á sér blessaður. Hann var orðinn 9.5kg 6mánaða litli snáðinn og því bjóst ég sko ekki við að hann myndi byrja að standa næstum því strax. Hann hætti að nenna að fullkomna þessa skriðtækni og tók sér hlé í því og fór að prófa sig áfram við að standa í staðinn. Núna stendur hann upp eins og fínn maður og nýtir hvert tækifæri til þess, togar meira að segja í hár systur sinnar (við lítinn fögnuð) til að hífa sig upp.

Ninja byjaði að standa upp 6mánaða en ekki að labba fyrr en eins árs en hann fer allt aðrar leiðir í þessu, hann er svo hroðalegur glanni að hann bara sleppir sér og stóð hér í smá stund einn og óstuddur í gær því hann var svo mikið að hlæja að systur sinni sem var með sprell eins og henni einni er lagið. Hún var alltaf svo varkár, tók ekki skref nema vita að fótfestan væri fullkomin en hann bara krossar fótum og spólar ef því er að skipta, finnst hann alveg gjörsamlega ósigrandi. Hann hefur alveg engar áhyggjur af því hvað hann er að gera, ruslast áfram og hlammar sér niður ef hann finnur að hann er að detta, stendur jafn skjótt aftur upp og heldur áfram að róta og tæta. Algjör prakkarapúki! =) Hann er auðvitað rígmontinn með þetta snáðinn litli og við hin á heimilinu alveg agalega ánægð með töffarann okkar! =)

Ég dúndraði inn fleiri desembermyndum í albúmið, meðal annars frá helginni sem var að líða, við hittum Skoppu og Skrílu og fullt af jólasveinum, fórum á jólaböll í fleirtölu, aðventumatarboð og piparkökumálun! =)

Comments are closed.