Ofurhetjur.com - Annska, Jói, Ninja, Skuggi & Myrra -

Myndamars

Víjúvei – hér eru marsmyndir!

Mars er búinn að vera ansi skrítinn hér á þessu heimili! Skuggi Nóel var ansi mikið lasinn, ansi lengi. Í heildina í 10 vikur. Hann var ítrekað lagður inn á Barnaspítalann á þessum tíma og á endanum vorum við þarna í innlögn í 10 daga og þá loksins kom nú í ljós hvað var að hrjá prinsinn og þið vitið nú öll sem okkur standið nærri hvað það var þannig að hann fékk að fara heim með lyf í farteskinu. Núna er hann öllu skárri en þetta tekur bara sinn tíma að ráða niðurlögum á þessu! Gæti tekið allt að ár samkvæmt sérfræðingnum sem hann er hjá. Hann sefur ekkert sérlega vel, það finnst okkur svona erfiðast að eiga við því svefnlaus kríli eru ægilega pirruð og svefnlausir foreldrar líka hehe. Þess utan er prinsinn orðinn ansi duglegur, hann stendur allstaðar upp og stendur eins og fínn maður og leikur sér úti á miðju gólfi einn og óstuddur í margar mínútur og tekur eitt og eitt skref en finnst miklu hraðvirkara að skríða þannig að hann nýtir sér þann fararkostinn miklu frekar. Hann er samt mjög styrkur, hann bara er ekkert að flýta sér. Hann léttist helling á meðan á versta hluta veikindanna stóð og er því jafn þungur núna og hann var þegar hann var sex mánaða. Mjög gott að hann var eins og michelin-maðurinn fyrir =) Hann er í óða önn að safna undirhökunni aftur og verða bolla á ný, enda er hann mikið matargat!

Ninja Tíbrá er búin að taka nokkrar pestir og tækla á þessum vikum, bara eins og henni einni er lagið! Hún er orðin svooo stór, það er hreint ótrúlegt! Um daginn vorum við í Kópó hjá Steinku og co og Ninja fékk með sér lítið páskaegg heim í nesti. Hún var að sjálfsögðu ægilega ánægð með það og ekkert að skilja þennan óskiljanlega málshátt sem inní var. Ég útskýrði málshátta-konseptið fyrir henni og hef verið að kenna henni nokkra, eins og til dæmis: barnið vex en brókin ekki og æfingin skapar meistarann. Núna notar frúin þetta óspart þegar hún elur upp dúkkurnar og kennir bróður sínum nú allt með hjálp orðanna: Æfingin skapar meistarann! Snillingur =)

Pabbinn á heimilinu tók þátt í mottumars og er ægilega fínn með volduga rússamottu =) Þetta átak krabbameinsfélagsins er auðvitað tær snilld og ég er ánægð með að minn maður lagði sitt af mörkum!

Mamman á heimilinu er nú á viku 17, ótrúlegt hvað tíminn flýgur! Allir heimilismeðlimir eru búnir að finna bumbuorminn sparka á fullu og við erum alveg ótrúlega spennt! Ógleðin er reyndar ekkert á farandsfæti frekar en fyrri meðgöngurnar tvær en ég hef lifað tvær svona meðgöngur af, ég hlýt að komast lifandi út úr þessari líka =) Þess utan gengur þetta bara eins og í sögu! Ég er svo guðslifandi fegin að þessi meðganga er ekki ,,áhættumeðganga” eins og meðgangan hjá Skugga var flokkuð sem, það var sko þrautin þyngri – núna er allt bara sælan sjálf.

Við keyptum tvíburavagn á dögunum, Emmaljunga að sjálfsögðu, snobbið alveg að fara með mig hehe. Ég gat náttúrulega ekkert farið úr Emmaljunga í eitthvað annað, það er eins og að fara úr Rolls Roys í Lödu Sport – og það vill enginn! Tvíburavagninn er ekki fyrir tvíbura, heldur fyrir Skugga og litla grís því Skuggi verður aðeins 16 mánaða þegar litla systkinið kemur og því örugglega enn lúinn eftir stutt labb.

Vorið er alveg mætt hingað í Fellsmúlann! Búið að grilla margoft, leika úti alltaf þegar færi gefst og blása sápukúlur í þúsundatali! Við bíðum öll spennt eftir páskunum því þá á yndislegi Þorgeir Kristján okkar að fermast og svo í beinu framhaldi verður Skuggi Nóel 1.árs! =) Ji hvað tíminn líður hratt! =)

One Response Subscribe to comments


  1. Birgitta Bjarney

    Matching vettlingar, awesome skór og litlir dúllupésar! ;)

    Apr 11, 2010 @ 19:14