Ofurhetjur.com - Annska, Jói, Ninja, Skuggi & Myrra -

Júnímyndir

Hér er hellingur af nýjum myndum! Júní hefur verið ansi viðburðarríkur og júlí verður örugglega ekki síðri. Ninja er að byrja í sumarfríi á leikskólanum (eða sleikismólanum eins og vinur okkar Innipúkinn úr Umferðaskólabókunum segir) sem verður án minnsta efa frábært. Myndirnar eru í örlítið undarlegri röð – enda nokkrum nappað frá Steinunni systur og ég hreinlega nennti ekki að handraða þeim aftur heldur ákvað bara að leyfa þessu að vera í smá ruglingi =)

Annars eru allir hressir hér á bæ í bili, Skuggi er reyndar enn bara eins eeen við erum að reyna allskonar. Ninjan er hress og kát =) Bumban er líka hress, óskaplega nett og fín. Það er fylgst ansi grannt með okkur bumbunni útaf gallsýruveseninu. Fyrir þá sem ekki vita er sumsé gallsýran í blóðinu á mér alltof há. Þetta gerist vegna lifrarstarfsemi minnar, hún er sumsé í einhverju rugli og ekkert vitað hvers vegna, þetta er meðgöngutengt vandamál sem er sjúklega óalgengt. Ég fer því í blóðprufu á 2ja vikna fresti og hef gert frá viku 17 þar sem gallsýrurnar eru mældar. Ég er á lyfjum til að lækka gallsýrurnar í blóðinu, nánar tiltekið tek ég 12 töflur í einu en samt rokka gallsýrurnar alltof hátt. Þetta er mjög hættulegt fyrir barnið og talið vera það sem hefur alltaf valdið óútskýrðum fósturlátum seint á meðgöngu og andvanafæðingum, sem er hætta á ef sýrurnar hækka um of. Útaf þessu veseni okkar bumbunnar er ég í mjög nánu eftirliti. Ef sýrurnar eru allt í einu hækkaðar upp úr öllu valdi verð ég sett af stað en það sem róar okkur alveg til muna er þetta nána eftirlit því þá er hægt að grípa inn í án þess að krílinu okkar verði meint af þessari gallsýruhækkun. Þess vegna er mjög gleðilegt að ég er komin 31 og hálfa viku! Húrra fyrir mér og bumbus! =) Lyfin hafa alveg sitt að segja en samt ekki nóg þannig að meðgangan verður nú örugglega ekkert fram á áætlaðan dag. Þeim finnst líklegt að ég verði sett af stað um 36-37-38 vikur, fer bara eftir sýrutrippi næstu mælinga. Það er í raun ekkert sem ég get gert nema að vera dugleg að fasta fyrir þessar blóðprufur mínar og njóta þess að vera ólétt og skemmta mér við að spjalla við ljósur og lækna í áhættumæðravernd og heilsugæslunni oft í viku. Ef ég geng 35 vikur verð ég farin að fara í mónitor amk 2x í viku og blóðprufur 1-2x í viku því mestar líkur eru á að gallsýrustigið rjúki upp án fyrirvara eftir þann tíma. Ég er því bara að reyna að njóta hvers augnabliks af þessari meðgöngu því mér finnst yndislegt að vera ólétt. Við erum alveg nokkuð róleg því ég er undir smásjá flottra fagaðila. Ormurinn okkar á að fæðast 6.september (2 dögum áður en stóra systa verður 4 ára) en við búumst mun frekar við litlu ljóni og ágústkrútti. Síðasta blóðprufa var flottari en sú þar á undan sem var alveg glötuð þannig að það er nú alveg súperjákvætt =) Vonandi helst sýran nokkuð stöðug núna þar til ég er komin allavega 35-36 vikur því þá er stríðnispúkinn orðinn nokkuð vel bakaður þarna inni og má þá alveg mæta! =)

Það er náttúrulega alltaf stuð á okkur, allir glaðir og með sól í hjarta! Hér er eins og allir vita mikið fjör enda miklir fjörkálfar og gleðipinnar sem við erum að ala upp.

Comments are closed.