Ofurhetjur.com - Annska, Jói, Ninja, Skuggi & Myrra -

Júlímyndir

Við familyan erum búin að bralla allskonar þennan mánuðinn eins og aðra! Skvísípæ er búin að vera í sumarfríi og því hefur stuðið verið í hámarki. Við erum búin að eyða mestöllum tímanum úti, enda ekki annað hægt þegar sólin er að glenna sig.

Já í fréttum er þetta helst: Við erum að flytja til Svíþjóðar! Húha! Jói er að fara í skóla og ég er að fara að nostra við börnin mín milljón og svo fer ég nú örugglega bara í skóla eða að vinna þegar litla krílið sem enn er ófætt er orðið aðeins stærra =) Við förum í haust og erum mega-spennt. Ninja fer ekkert aftur á leikskólann hér og að öllum líkindum fá gormarnir tveir leikskólapláss bara stuttu eftir að við mætum á sænska grundu. Þau fara þá að læra sænsku eins og enginn sé morgundagurinn og Jói sænski er auðvitað himinlifandi yfir því. Við erum búin að fá íbúð úti og búin að panta gám og byrjuð að pakka – já það er sko heldur betur allt að gerast, það er alveg óhætt að segja það. Gáminn fáum við eftir 20 daga þannig að það er óhætt að segja að það sé stutt í þetta. Ninja syngur bara ,,kalla litla könguló” á sænsku allan liðlangan daginn og er gjörsamlega himinlifandi yfir þessum nýju slóðum sem við erum að fara að feta og vill helst læra öll orðin í einu, svo spennt er hún. Skuggi lætur sér auðvitað allt lynda og brosir hringinn yfir öllu eins og honum einum er lagið.

Af litla bumbubúanum er það að frétta að með okkur er fylgst mjög náið – til að mynda fór ég oft í mónitor í síðustu viku og fer til fæðingarlæknis núna fast einu sinni í viku. Svo eru það blóðprufurnar og ljósmæðratímarnir og já – allt hvaðeina. Ég geri sumsé lítið annað en að vera í mæðravernd og nostra við sætabrauðsbörnin mín. Sem er nú bara skemmtilegt því ljósurnar mínar og fæðingarlæknarnir eru svo dásamlegt teymi! Já og börnin mín, þau eru auðvitað þau allra fullkomnustu! Mér fór sumsé að blæða á ýmsum stöðum undir húðinni og í ljós kom eftir að ég hitti ónæmislækni og lét draga úr mér helming blóðsins í líkama mér til að senda í allskyns rannsóknir að þetta er sjálfsónæmissjúkdómur sem hverfur hugsanlega eftir barnsburð, já eða ekki – það kemur bara í ljós. Ég hætti mér ekkert í sund þessa dagana því Jói yrði eflaust litinn hornauga útaf marblettahrúgunni sem hann væri að mæta með, ég er alsett marblettum og rauðum blóðklessum, sem betur fer þó ekkert í andlitinu enn sem komið er, þá fyrst myndi ég ekkert fara út úr húsi. Ónæmislæknirinn vildi setja mig á einhver storkulyf til að stoppa blæðingarnar en þar sem ég ber barn undir belti, er það ekkert í boði þannig að ég var sett í farbann og skikkuð í hvíld. Hvíldina er ekki svo auðvelt að verða sér útum með ormana tvo hoppandi og skoppandi en ég hlýði farbanninu og er alltaf í návígi við spítalann svona ef ske kynni að ofsablæðing kæmi skyndilega. Læknarnir ákváðu því í síðustu viku að þessari fæðingu yrði startað með pompi og prakt eftir fjórar til sex vikur – þannig að eftir svona þrjár til fimm vikur héðan í frá. Við göngum því út frá svona fjórum vikum og erum mega-spennt. Ég mun því eiga á 36 – 38viku, sem er bara ljómandi! Prinsinn kom í heiminn eftir 38 vikur og var auðvitað fullkominn þannig að sú meðgöngulengd ætti alveg vel að nægja. Þessi ónæmislæknir vill ekkert taka neina sénsa útaf þessum blæðingum mínum en fæðingarlæknarnir vilja heldur ekkert taka neina sénsa með því að sækja barnið of snemma þannig að þess vegna er fylgst svona grannt með. Barnið er nú ekki ýkja stórt, allavega virðist það minna en systkinin tvö þar sem legbotninn er undir meðallagi og lægri en með þau bæði og barnið spriklar enn í hringi þrátt fyrir að ég sé komin 33 vikur. Skuggi tók engar dýfur eftir 28 viku og var tilbúinn í höfuðstöðu þá en Ninja hins vegar var alltaf að snúa sér og sat með rassinn ofan í grindina 2dögum fyrir fæðingu en snéri sér svo bara skyndilega þannig að plássið virðist svosem alveg vera nægt þarna inni í hlýjunni þannig að ég mun ekkert örvænta strax þó þetta barn snúi sér enn í hringi. Gallsýrurnar eru síðan alltaf of háar í blóðinu þar að auki þannig að þessi meðganga er bara ein heljarinnar djók-meðganga =)

Hér meðfylgjandi eru myndir frá þessum mánuði sem er að líða, ég mun eflaust bæta einhverju inn þegar júlí er búinn.

One Response Subscribe to comments


  1. Andrea

    Ýkt spennandi tímar framundan:)…er reyndar ekki alveg sátt við ykkur að stinga strax af með litla krílið til útlanda…en við komum bara í heimsóknir til ykkar í H&M landið! :)

    Jul 29, 2010 @ 16:40