Ofurhetjur.com

Pest

Tuesday - 3.July 2007

Við erum heldur betur farin að vera dugleg að láta vita af okkur. Núna erum við loksins komin í lönd þar sem búið er að finna upp internetið. Dagarnir eru búnir að fara í letilíf og núna erum við að redda búslóðinni okkar sem stendur í tollinum og pabbi Þorgeir er svo yndislegur að ætla að sækja fyrir okkur, gott að eiga góða að! Lífið er yndislegt og deginum erum við búin að eyða í Pest. Við gistum á hosteli hér í Pest í nótt og hlóðum batteríin í öllum rafmagnstækjum sem nauðsynleg eru til daglegs ferðalags og batteríin í kroppnum líka. Pabbalingurinn og Tíbrárkrútitð fóru í göngutúr í sólarupprásinni í morgun á meðan múttan fékk aðeins að kúra, þvílíkur lúxus. Gærkvöldið fór í bjór, pina colada , mjólkurdrykkju, pizzár og kvöldsólargöngu. Næstu nótt munum við gista á landamærum Ungverjalands og Rúmeníu. Látum í okkur heyra bráðlega. Túrílú!

6 komment

  1. Jimundur ævintýrafólk!
    Verður gott að vita af ykkur á Ízalenzku landi…!
    Komið heil heim ;)

    Komment by Nanna Frænka — Wednesday - 4.July 2007 @ 00:33

  2. Alltaf jafn gaman og kósý hjá ykkur, fariði nú að koma heim:)

    Komment by Guðný — Thursday - 5.July 2007 @ 01:46

  3. Halla malla…aldeilis ferðalag:) Sammála síðustu ræðumönnum…farið að koma heim en skemmtið ykkur þó vel á síðustu metrum evrópuferðalags (sem eru þó nokkrir eftir hehehe heilar 2 vikur!!!)
    Erum aðeins búin að ferðast hérna heima…tókum vestfirðina síðustu helgi og stefnan að taka hringinn um þjóðveg 1 næstu viku og eftir það sumarbústaðurinn góði:) Góða ferð og Guð fylgi ykkur elskurnar
    knús Steinunn, Siggi, Patrik Dagur og Ísabella Sól:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Thursday - 5.July 2007 @ 02:56

  4. æ þið eruð svo ótrúlega dugleg og jákvæð alltaf ;-)

    ég lofa þér lubbaknúsi í ágúst, þá fæ ég kannski loksins eitt stykki ninjuknús!

    vííí

    Komment by guðrún veiga og litli lubbi — Thursday - 5.July 2007 @ 09:21

  5. hæj, mig langadi bara ad kasta a ykkur kvedju! ég verð ad vera sammála gveigu þið eruð alltaf ótrulega jákvæð & dugleg e-d.. alveg ofsalega krúttleg.. ;)

    knús!

    Komment by sara — Thursday - 5.July 2007 @ 21:40

  6. Sælir ferðalangar. Loksins kemst ég á netið til að lesa um ævintýrið ykkar. Frábært hvað gengur vel. Get ekki beðið eftir að heyra sögurnar.
    Við erum líka á ferðalagi, Haukur og Alli eru á Roskilde, við Eiríkur erum með mömmu, pabba og Iðunni á leiðinni til Odense á morgun.
    Eiríkur saknar Ninju ekkert smá mikið. Hann talar ekki um annað. Hann hefur engan til að sleikja á sér hausinn, það er nottla ekki gott mál. Hann er alveg við það að fá tennur í neðri góm. Hann lætur það nú samt ekkert fara í taugarnar á sér, tekur tanntökunni með sömu ró og öllu öðru.
    Skemmtið ykkur ofsalega vel í ferðalaginu. Hlakka til að fá ykkur í heimsókn til Áló :)
    Fariði varlega.
    Ríkey og co.

    Komment by Ríkey — Friday - 6.July 2007 @ 00:34

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu