Ástkæra Maggiore
Saturday - 14.July 2007
Hér sitjum við litla familyan á Bar Pardo við Maggiore vatn á landamærum Ítalíu og Sviss, enn og aftur kemur hroki og leiðindi Ítala okkur á óvart, en þeir koma líka skemmtilega á óvart og sumir eru hin allra bestu skinn sem vilja allt fyrir mann gera. Hér er 33°c hiti og okkur gæti ekki liðið betur. Pabbinn hefur ráðið ferðinin síðustu daga og það hefur verið skoðað mikið af merkilegum arkítektúr sem Ninja skilur ekki bofs í en er guðslifandi fegin að komast úr í náttúruna og elta fiðrildin. Við gistum í Sumvitg dalnum í gamalli hlöðu sem hafði boðið upp á GEGGJAÐ útsýni ef ekki hefði verið fyrir bjálkana í bjálkahlöðunni sem lágu fyrir frábærlega stóra gluggann frá botni til topps. Þeir höfðu semsagt ekki haft fyrir því að gera glugga í ytra byrgði hússins, bara látið bjálkana liggja og bætt þessum líka risastóra glugga við fyrir innan. Mjög spes. Við höfðum núna brunað um fjöll og dali alpanna og borðað Alpneskar kræsingar og gist í Rínardalnum. Við mælum með Capuns, sem er einhverskonar kjöt, grænmetis, , hveitirúlla sem er vafin inn í kálblað og soðið, bragðast betur en það hljómar. Við erum nú á leiðinni til Mount Matterhorn (toblerrone fjallið) og fórum því fram hjá Mount Blanc hæsta fjalli Evrópu. Síðan er það bara Frakkland og svo heim.. búhú!
Ninja er búin að vera algjör engill. Draumr hvers ferðalangs, hún unir sátt við sitt og verður sjaldan pirruð á vegalengdunum. Hún bablar þessi ósköp og segir Dakk ef maður réttir henni eitthvað og Dott ef henni finnst eitthvað gott og BER ef hún fær jarðaber eða bláber. Hún kinkar kolli eins og dúkkurnar í trukkabílunum og stendur sjálf ef hún áttar sig ekki á því að hún stendur, þegar hún áttar sig á því að hún stendur óstudd, sestu hún niður um leið! .. og hún elskar rjóma! Hún fékk rjóma beint úr sprautunni hjá pabba sínum í morgun o gþá var sagt DOTT og smjattað allan hringinn. Hún er búin að fá sinn skerf af matargerðarlist Ítala og Svisslendinga, og hún elskar pylsur, alveg eins og pabbi sinn.
Við biðjum kærlega að heilsa heim og förum bráðum að koma heim, bara eftir fimm daga. Það mega allir koma og taka á móti okkur í Leifsstöð.
Hojhoj….var einmitt að hugsa til ykkar, ýtti á refresh og viti menn -það var komið nýtt blogg!
Sakna ykkar ógurlega og get ekki beðið að fá ykkur heim aftur, er byrjuð að telja niður! 
Komment by Andrea — Saturday - 14.July 2007 @ 16:57
Hæ, hæ þið öll.
Gott að heyra að allt gengur vel og að allir eru hressir og sáttir við sitt. Hlakka til að fá ykkur heim. Sendið nánari tÃma um lendingu svo við getum mætt á réttum tÃma. Munið að fara varlega.
Ykkar elskandi mamma og amma
Komment by Amma Gróa — Saturday - 14.July 2007 @ 17:29
Hlakka endalaust mikið til að hitta ykkur. Ég verð flutt à nýju Ãbðúðina þegar þið komið heim svo við þurfum sko klárlega að taka hitting
Hlakka svo til að sjá ykkur og knúsa að ég get ekki lýst þvÃ.
Komment by sigurlaug — Wednesday - 18.July 2007 @ 11:08
Hæhó, ég sé að meira en 5 dagar eru liðnir frá sÃðasta bloggi svo þið eruð væntanlega komin heim? Ekki segja mér að þið séuð svo kannski farin aftur….
Verðum að hittast með snúllurnar 
Komment by Alexandra KristÃn, mamma, pabbi og llitli bró :) — Monday - 23.July 2007 @ 10:48