Ofurhetjur.com

Til hamingju ͍sland..

Saturday - 28.July 2007

..með að við erum komin heim!

Við skelltum okkur að sjá Mount Matterhorn og fannst það auðvitað geggjað! Zermatt, bærinn sem liggur upp að Mount Matterhorn er ,,bílafrjáls” ..eða carfree.. svo við tókum lestina upp , börnin voru óteljandi og ömmur og afar með í för. Við vorum að spjalla við þau og Ninja Tíbrá lék við 1.árs strákinn þeirra. Þegar lestin svo kom á leiðarenda og við ætluðum út var stórfjölskyldan á undanokkur og nokkur börn og pabbinn komin út þegar lestarhurðarnar lokast! Við sátum auðvitað föst inni í lestinni ásamt betri helmingnum af stórfjölskyldunni og stóð nú ekki á sama eftir því sem lestarbilunin álengdist.. Við reyndum hvað við gátum til að opna hurðarnar og hinummegin voru börnin óteljandi berjandi á lestina. Allt í einu slokknuðu ljósin! Stuttu seinna heyrðist skringilegt hljóð, ALVEG eins og í bíómyndunum þegar verið er að sprauta eiturgasi inn í lestir! Rafmagnið fór alveg og hljóðið hræðilega kom oftar og oftar. Okkur stóð sko ekki lengur á sama enda læst lengi inni í lest sem augljóslega var biluð. Allt í einu sáum við að hluti af barnaskaranum óendanlega hafði farið og beðið einhvern starfsmann um að aðstoða og lestarhurðirnar opnuðust! LOKSINS! Jeremías á jólaskónum hvað við vorum fegin að komast út! Við fórum því næst í bílastæðahúsið til að sækja kaggann okkar en þegar kom að því að borga fyrir bílastæðið sáum við að einhver skorturinn var á útlenskum peningum og okkur vantaði upp á sem nemur 5 íslenskum krónum. Við þurftum einfaldlega að betla fyrir þessari smáu upphæð því ekki voru hraðbankar lenst uppi í fjallgarðinum. Við keyrðum svo sem leið lá upp til Frakklands til að kíkja á ,,Le jardin du cinq sense” eða garð hinna fimm skilningavita. Garðurinn er sumsé lítið völundarhús sem reynir á heyrn, lykt, bragð, sjón og í miðjum garðinum er táknrænn garður fæðingar og lífs! Þetta var rosa skemmtilegt og við skoðuðum og skemmtum okkur konunlega í fallega blómailminum og yndislegu ávaxtagörðunum. Því næst ákváðum við að þetta völundarhús væri ekki nægilega mikið ,,tjallends” fyrir okkur svo við keyrðum aftur inn í Sviss til að fara í stærsta völundarhús í heimi! Við ætluðum að muna að taka bensín áður en við myndum leggja af stað en auðvitað gleymdum við því! Við lögðum sumsé af stað með tóman tank og ætluðum bara að taka bensín á næstu bensínstöð, það reyndist ekki vera svo auðvelt! Við þurftum að keyra þvílíka sparaksturinn næstu 60 kílómetra til að ná á bensínstöð og þar sem við vorum fegin þegar hún fannst! Ninja Tíbrá klappaði sæl og glöð! Í bílnum var mælir sem sagði fjölda kílómetra sem hægt var að keyra áður en bensínið myndi einfaldlega klárast og bílinn drepa á sér, sá mælir hafði ekki einu sinni fyrir að reikna fyrir okkur kílómetrafjöldann þegar við lögðum af stað úr litla sæta garðinum því hann var svo tómur kagginn. Við sumsé rétt náðum bensíni og keyrðum svo aftur af stað í hamingjukasti yfir þessu bensíni okkar! ÞEgar við höfðum 5 kílómetrasáum við pabba, afa og litla stelpuskottu standa í vegkandi og veifa, augljóslega með bilaðan bíl. Við gátum auðvitað ekki annað en stoppað því þetta hefði hæglega getað verið við! Pabbinn kom til okkar með grátstafinn í kverkunum og sagðist vera bensínlaus en að kortið hans myndi ekki virka í­ Frakklandi, hann ætlaði að reyna að freista gæfunnar og athuga hvort hann kæmist yfir til Sviss enda ekki ýkja langt að landamærunum. Við erum svo aumingjagóð að við buðumst til að skutlast eftir nokkrum lítrum af bensíni fyrir þau og koma aftur með, hann táraðist félaginn og bauð okkur gullgringinn sem hann var með á fingrinum, hann skyldi glaður selja okkur hann fyrir 20 evrur upp í bensínskuldina. Við þurftum engan gullhring svo við ákváðum að þetta myndi jafnast út í karmanu og að þegar við þyrftum á hjálp að halda myndi einhver redda okkur. Við skutluðumst því eftir beníni fyrir þau og þegar við komum aftur, voru þau FARIN! Trikkið hefur sumsé líklega verið að selja feik gullhring og græða 20 evrur, þetta voru sumsé bölvaðir loddarar og leikarar af bestu gerð! Við vorum ægilega fegin að vera frekar göbbuð dálítið hressilega heldur en rænd! Við helltum því aukabensíninu á kaggosinn okkar og héldum til Sviss í völundarhúsið stórkostlega! Það var sumsé EYRNAmergjað! Við villtumst alveg þvílíkt og rölltum um í blússandi sólinni og góða veðrinu til að reyna að finna gullkistur með verðlaunum og mynjagripi úr himum ýmsu heimsálfum. Okku gekk nú alveg ótrúlega vel í leitinn en unnum samt ekkert í gullkistunum. Við fórum í endalaust stórar rennibrautir og lékum okkur allan daginn í skemmtigarðinum og völundarhósinu gríðarstóra. Nú lá leiðin til Þýskalands. Við keyrðum því sem leið lá til Germaí og gistum síðustu tvær næturnar á kósí tjaldsvæði við fallega strönd og versluðum dálítið í Freddanum fyrir brottför. Við flugum svo heim og fannst EKKI heitt hérna á klakanum. Síðustu dagar eru búnir að fara í knús og kossa, veikindi og afslöppun. Litla skottan er búin að vera með ita núna í 9 daga og komin á sýklalyf útaf þvagfærasýkingu. Við vorkennum henni ægilega mikið því hún grætur í hvert skipti sem henni er mál og sýklalyfin virðast ekkert vera að slá á þetta. Við vonum bara að þetta lagist fljótt og örugglega og að þessi sýking sé bara tilviljun en ekki tengt einhverjum frekari kvillum. Annars erum við bara spræk og erum komin aftur á Glæpanesið okkar þar sem við verðum næsta hálfa mánuðinn á meðan framhaldið kemst á hreint og við erum búin að græja hemili og vinnur. Það er annars þrusugott að vera heima á Íslandinu þegar Ninjan okkar er svona lasin og geta hringt í lækni oft á dag og talað móðurmálið án nokkurs möguleika á misskilningi. Við erum æsispennt yfir framaldinu og næstu mánuðum og vonum bara að sem flestir komi og gefi okkur knús! ..eitt að lokum, Annska (moi) er með AFRÓ!

5 komment

  1. velkomin heim! gott að sjá að allt gekk vel hjá ykkur… vonandi að Ninjan hristi þessi veikindi af sér. Hún er svo hörð!:)

    Hafið það súper gott og svo sjáumst við nú vonandi sem fyrst!;)

    Komment by Jóa — Sunday - 29.July 2007 @ 00:35

  2. Það er nú bara þokkalegt að vita af ykkur á klakanum. Hlakka til að hitta ykkur í næstu ferð - ef þið verðið þá ekki flutt eitthvert út í buskann loksins þegar við komum heim.

    Vona að litla skottan lagist sem fyrst af sýkingunni, það er alveg vonlaust að vera svona þjáður.

    Knúsknús frá okkur öllum

    Komment by Ásta Ámundafrú — Sunday - 29.July 2007 @ 20:52

  3. Ji minn eini. Þvílíkt ferðalag! Ég fékk nú bara í magann þegar ég las um loddarana… Eins gott að þau voru bara að reyna að plata ykkur til að kaupa gullhring en ekki eitthvað þaðan af verra.
    Vonandi lagast Ninja litla af sýkingunni bráðlega. Við söknum ykkar óendanlega mikið, það eru allir að flytja frá okkur. Bráðum verðum við bara ein eftir. Þá verðiði nú að koma í heimsókn :)
    Bestu kveðjur heim.
    Ríkey og fjölsk.

    Komment by Ríkey — Tuesday - 31.July 2007 @ 10:55

  4. takk fyrir æðislegan hitting á laugardaginn var:) vona að lillan fari að hressast.

    Komment by Sigurlaug — Tuesday - 31.July 2007 @ 17:04

  5. halló, halló elsku fjölskylda:-)

    guð hvað það er gaman að skoða myndirnar ykkar, ég er sko búin að vera að síðan 8 í morgun, takk fyrir pent! :)

    ninjan er svo hriiiikalega sæt og fullorðinsleg og yndisleg og og og og….:-)

    já og btw, við verðum á suðurlandinu í lok ágúst og heimtum að fá smááá knús!

    baráttu og batakveðjur til ninju litlu!

    guðrún veiga & valur elí

    Komment by gveiga & valsí — Wednesday - 1.August 2007 @ 12:14

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu