Af Glæpanesinu í Gettóið
Saturday - 11.August 2007
Um helgina ætlum við að flytja í 8 skipti á 2 árum. Núna er stefnan tekin á Gettóið í Breiðholtinu og planið er að græja um helgina og gera kósí. Við erum ótrúlega spennt yfir þessu, enda alltaf gaman að takast á við nýja hluti. Friðgeir er kominn með glæsta tölvunarfræðingsvinnu hjá Opnum Kerfum og líkar glimrandi vel. Núna er orðið kristaltært að Ninja Tíbrá fær ekki dagmömmupláss þannig að spurningin er hvernig við mæðgur tæklum næstu mánuði vinnu- og pössunarlega séð. Við finnum einhverja stórkostlega lausn á þessu, eins og alltaf!
Ninja Tíbrá er núna búin að vera með hita í 22 daga samfleytt og læknar skilja hvorki upp né niður í þessu ástandi. Eina sem amar að dömunni er hitinn og helst hann í kringum 38°c. Hún hefur ekki verið með kvef, eyrnabólgu eða neitt annað svo einkennilegi hitinn sem ekki hverfur, veður óskiljanlegri með hverjum deginum sem líður. Hún er svolítið mikil mömmustelpa þessa dagana útaf lasleikanum. enda ekki skrítið, mamman er jú alltaf bestust!
Við vonum að það fari að koma gífulegri skýring í þessa hitavellu en ,,óútskýranlegur vírus” eða þá að hitinn hverfi bara, það væri auðvitað langbest!
Ég henti inn myndahaug fyrir nokkrum dögum, bæði í júní og júlíalbúmið og svo frábærum sólskinsmyndum í ágústalbúmið! Myndin hérna uppi er af bestu vinum í veröldinni, Ísabellu Sól, Ninju Tíbrá og Patrik Degi. Betri vini og sætari börn er hreinlega ekki hægt að finna!
vá hvað þær frænkur eru orðnar lÃkar! algjörar dúllur þessi börn:)
vonandi að Ninja fari nú að ná sér af þessum veikindum og að þetta sé ekkert alvarlegt…
hvar ert þú samt að fara að vinna Anna Sigga?
jæja “við” biðjum að heilsa à bili og hafið það súper gott!;)
Komment by Jóa — Saturday - 11.August 2007 @ 21:01
Æ… gangi ykkur vel à að finna lausn á þessu hitadæmi ….
Komment by Kjartan, KristÃn og Silja MarÃa — Monday - 13.August 2007 @ 15:27
ohh þau eru náttlega bara sætust þessi krútt…. Já þetta með hitann er sko ekki gott! Læknarir verða nú að fara að hugsa sinn gang og hjálpa frænkunni minni.
Komment by Guðný — Tuesday - 14.August 2007 @ 02:19
Sæl verið þið alles, Þetta gengur ekki lengur að hittast ekkert meira nú en þegar þið voruð ekki á landinu.
Ykkur er hér með boðið à köku næstu helgi.
Þarf bara að vita með svona ca 2 tÃma fyrirvara hvenær þið komið og þá fáið þið heita köku.
Það hlakka allir til að sjá ykkur.
Lóa og co
Komment by Lóa — Wednesday - 15.August 2007 @ 15:36
JEeeeeessssssss….. við mætum.
Komment by Pabbinn — Wednesday - 15.August 2007 @ 18:29