Ofurhetjur.com

Nokkrir góðir Ninju-molar..

Friday - 17.August 2007

10460

Þetta kann Ninja Tíbrá að segja 11 mánaða gömul:

  • Mamma
  • Pabbi
  • Amma
  • Nei
  • Datt
  • Dudda
  • Ava = Afi
  • Tatt = Takk
  • Meija = Meira
  • Dódó = Dótaherbergið hennar
  • Dott = Gott
  • B’di = Patti
  • D’ddi = Doddi
  • Ba = Bað
  • Údi = Úti
  • Suuju = Sjáðu
  • Be = Ber
  • Ninna = Ninja
  • Vadd = Vatn
  • Bibbi = Bíbí
  • Vá = Fá (..og bendir á það sem hugurinn girnist)
  • Gaga = Kaka (..til dæmis mjólkurkex)
  • Dess = Kex (..á líka við um mjólkurkex)

Svo segir hún líka vá og vei þegar hún er að klappa og fagna. Hún kann líka að tjá sig á ýmsan annan ansi skemmtilegan hátt, hún segir til dæmis dúbbídúbbí þegar hún vill fá eitthvað, og það strax! Þetta orð er yfirleitt notað í ótrúlegum óþolinmæðistóni. Þá fálmar hún með höndunum út í loftið í áttina að því sem hún vill fá eða bendir pent í rólegri kantinum. Ég hef ekki minnstu hugmynd hvaðan dúbbídúbbí kemur en þetta notar hún óspart. Hún kyrjar hámminamm aftur og aftur, hátt og snjallt þegar hún er að borða eitthvað gott. Andrea vinkona notar hvert tækifæri til að koma með okkur mæðgum í mat til að heyra þetta endalaust fyndna hljóð!

Þetta gerir skutlan líka 11mánaða:

  • gefur ,,five” og finnst það óhemju fyndið
  • vinkar eins og forsetafrú, ótrúlega pen og sæt
  • kinkar kolli og brosir eins og hún skilji öll heimsins vandamál
  • bendir á tásurnar og eyrun þegar hún er spurð hvar það er
  • setur hendurnar hátt upp í loft þegar hún er spurð hvað hún er stór
  • klappar ósköpin öll þegar henni finnst hún fyndin eða er að labba
  • setur hendurnar yfir eyrun eða upp höfuðið og tekur þær svo í burtu og segir BÖÖÖÖÖ og brosir, fattar leikinn greinilega ekki alveg en er svo endalaust sæt þegar hún gerir þetta að það er ekkert eðlilegt!
  • bendir ótrúlega pent með vísifingri
  • segir ehhh, ehhh þegar hún sér hunda og verður afskaplega spennt
  • klemmir saman varirnar og gerir fílahljóð þegar hún sér myndir af fílum eða er spurð hvernig þeir segja
  • tekur mest 5 skref í einu, ein og óstudd en sem svo niður – maður verður nú að hvíla
  • hún reynir að flauta í sífellu, setur stút á munninn og gerir eins og pabbi hennar en frussar bara og andar út um nefið með stút á munni

Hún er fyndnust í heimi þegar hún fær að borða því um daginn þá vorum við að borða grillmat og vorum að blása á hann fyrir hana og litla skotta tók upp á því að gera eins. Eftir þetta blæs hún á allt, allur er varinn góður. Hún setur stút á munninn og brettir vörina upp að nefinu og blæs ægilega út um nefið! Það er sko bráðnauðynlegt að blása á seríósið og ávextina – ekki er nú gott að brenna sig.

Hún er komin með 5 tennur, báðar framtennur uppi og nirði og hliðarframtönn hægra megin uppi, hliðarframtönnin vinstra megin er rétt ókomin.

Hún dansar með því að beygja hnén um leið og hún heyrir tónlist sem henni líkar við og brosir út fyrir eyrun. Stundum syngur hún með með því að garga svolítið.

Hún klifrar upp og niður stiga á mettíma. Hún fer upp hverja tröppu í tveimur skrefum og bakkar svo niður. Hún er ótrúlegur glanni en samt svo varkár einhvernveginn. Hún er ótrúlegur klifurköttur en passar sig samt alltaf að halda sér í. Það er líklegast ástæðan fyrir að hún er ekki byrjuð að labba, hún kann þetta alveg en þorir ekki alveg að sleppa, hún er greinilega varkár glanni.

Þetta var nú aldeilis upptalningin! Það er nú vissara að eiga þetta allt saman skjalfest, internetið er mín dagbók barnsins, hið fullkomna uppflettirit fyrir mæður sem ekki eru duglegar að fylla staðreyndir inn í krúttlegar bækur.

Knús úr Gettóinu, þar sem verið að gera geggjað Dódó fyrir Tíbrá litlu!

6 komment

  1. æ hvað þetta var skemmtileg lesning :-) ninjan hljómar alveg hrikalega klár, ég verð augljóslega að fara að taka val í strangar kennslustundir ef ég vill að hann verði klárasta barnið í bransanum :-)

    reyndar heyri ég alveg að hann er að reyna að segja ,,mamma” þegar hann hjalar, en enginn annar virðist heyra það samt sem áður…hehehe:-)

    við komum suður í kringum mánaðarmót og veeeerðum eiginlega að fá að stela einu ninjuknúsi!

    Komment by gveiga & valsí — Friday - 17.August 2007 @ 04:13

  2. Hún er náttlega bara frábærust þessi stelpa. Ég er sko strax farin að sakna hennar og hlakka til að koma heim og knúsa og kyssa krúttið mitt:)

    Komment by Guðný — Friday - 17.August 2007 @ 16:49

  3. hehe já þú ert nú meiri dúllan litli ormur:) Svooo dúleg deppa…mamma þín gleymir að nefna að þú ert upprennandi klósettkafari síðan frænka missti hana inn á baðherbergi í dag hehe og alla ótrúlega fyndnu svipina sem þú gefur frá þér en það er samt kannski svolítið erfitt að útskýra þá hehe:)

    Takk fyrir alla skemmtunina í dag stelpur segir Ísabella Sólskin…ossa gaman að fara með ykkur í sandinn og í göngutúr:)

    Knús og kossar og takk fyrir pössunina í dag Annsa mín:)
    Lærdómshesturinn og gormarnir:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Saturday - 18.August 2007 @ 00:41

  4. Hahaha…. en frábært. Get ekki beðið eftir að hitta ykkur. Hún verður þá eflaust farin að gera enn fleiri frábærlega skemmtilega hluti þá. Bið að heilsa þangað til.

    Komment by Ríkey — Sunday - 19.August 2007 @ 11:01

  5. Ji, hvað hún Ninja Tíbrá er dugleg og mikið krútt :)

    Alltaf gaman að kíkja við hérna hjá ykkur, hlökkum til að koma í alvöruheimsókn.

    Komment by Sænska Lundaklíkan — Monday - 20.August 2007 @ 13:55

  6. æj þetta er alveg þad krúttlegasta sem eg hef lesið! við verdum nu ad fara ad hittast! sonja kemur i bæjinn um næstu helgi þannig ad þad er spurning hvort ad við gætum kannski mælt okkur mót einhverntimann eftir þad! ;)

    Komment by sara — Sunday - 26.August 2007 @ 04:12

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu