Ofurhetjur.com

Sandkassinn

Friday - 31.August 2007

10914
10916
10918
10922
10926
..já sandkassinn er spennandi þó svo að sandurinn sé ekki endilega góður á braðgið! Maður verður nú að kanna heiminn, smakka á lífsins gæðum og læra af reynslunni. Svo á líka alltaf að sötra súpuna, annars veit maður ekkert að maður er að borða súpu, það segir Emil í Kattholti líka að minnsta kosti!
Ásgeir Garðar og Inga Jóna eignuðust yndislegan dreng í nótt, 15 merkur og 53 cm – og jermeías á jólaskónum, hann er svo fallegur, enda svosem ekki við öðru að búast, fallir foreldrar og sérstaklega falleg ætt sem hann fæðist inn í.
Ég setti inn óteljandi myndir í Ágústalbúmið og meðal annars myndir af litlu bjútíbollunni. Ég er sumsé orðin ömmusystir í þriðja sinn og er titillinn ekki jafn yfirþyrmandi núna eins og fyrst um sinn.

Knús á línuna - Anna Sigga, mamma í næstum heilt ár!

9 komment

  1. Haha, góðir svipirnir hennar Ninju. Til hamingju með nýja frændan og takk fyrir afmælispulsurnar og kökurnar, smakkaðist allt hrikalega vel:) Ég er bara strax farin að sakna ykkar….. kiss kiss og knús

    Komment by Guðný danske pige — Sunday - 2.September 2007 @ 19:14

  2. TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÖLL SAMAN!! þetta er sko ekkert smá fljótt að líða!

    Ég sem ætlaði að gefa Ninju krúttu afmælisgjöf… held að það sé ekkret að fara að gerast… það er samt ekki öll von úti enn klukkan er svo lítið:)

    njótið dagsins í botn!

    Komment by Jóa — Saturday - 8.September 2007 @ 11:31

  3. Hæ litla skvísa.
    Til hamingju með 1 árs afmælið. Þú stækkar allt of fljótt. Hlökkum til að sjá ykkur öll, hvenær sem það verður.
    Eigðu góðan dag.
    Ríkey, Haukur og Eiríkur Ingimar.

    Komment by Ríkey — Saturday - 8.September 2007 @ 17:40

  4. Voru ekki teknar einhverjar myndir í afmælinu? Mig langar allavega mikið til að sjá þær :)
    Knús og kossar frá Svíþjóð
    Elísabet, sem trúir ekki að Ninjan sé orðin rúmlega 1 árs!!!

    Komment by Elísabet — Sunday - 9.September 2007 @ 22:23

  5. Hvað kemur til? Eitthvað slöpp í blogginu? Ég er nefnilega svo öflug :D En ég er loks búin að setja nýjar myndir og færslur, kíkið á það ;)

    Komment by Bryndís — Tuesday - 11.September 2007 @ 11:21

  6. mér finnst þetta alveg frábær myndasería af Ninjunni :-) algjör krúttsprengja :-)

    Komment by sonjagisla — Friday - 14.September 2007 @ 14:33

  7. Hey…koma svo….það er svoooooo mikið búið að vera um að vera undanfarið hjá ykkur og okkur hinum langar mjög mikið að lesa færslu:)

    knús Steinkan og gríslingarnir:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Sunday - 16.September 2007 @ 03:37

  8. Ótrúlega síðbúin afmæliskoss til ninjunnar þar sem að ég komst aldrei inn á síðuna ykkar í úlandinu!

    hrikalega leiðinlegt að við náðum ekkert að hitta ykkur, en litla familyan eyddi síðustu 2 dögunum af ferðinni alveg fárveik þannig að við drifum okkur beint heim til reyðarfjarðar um leið og við lentum á klakanum!

    Æ ég vona nú samt að ég fái að sjá ykkur mæðgur fljótlega.

    knús frá reyðó :)

    Komment by gveiga & valsí­ — Monday - 17.September 2007 @ 11:07

  9. Fyrir hönd ofurhetna hvarvetna biðst ég forláts á skorti á upplýsingaflæði. Svo virðist vera sem alnetið flæði ekki um dyr og ganga Fellsmúla 5, en von er á bragabót á máli og mun yfirofurhetjan senn taka við að birta hetjusögur og myndir á bloggsíðunni á ný.

    Komment by Pabbinn — Monday - 17.September 2007 @ 12:07

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu