Ofurhetjur.com

Fyrstu skrefin í Fellsmúlanum!

Wednesday - 19.September 2007

Vá ég veit ekki hvar ég á að byrja! Það hefur svooo margt gerst síaðn síðast.

Ninja Tíbrá ljósið í lífi mínu og yndið mitt varð eins árs 8.september og þann 5.september áttaði ég mig á því að þá var ár síðan hríðirnar byrjuðu á fullum krafti, blómarósin fæddist svo 76 tímum síðar. Afmælið héldum við upp á 1.september því ekki vildum við að Guðný, Elísabel og Andrea og Jakob myndu missa af fjörinu – þau komust sumsé ekki 8.september. Guðný fór svo heim til Danmerkur um kvöldið og auðvitað söknum við hennar böns. Elísabetin mín flutti til Svíþjóðar vikuna eftir afmælispartýið hennar Ninju Tíbrár og hennar er vægast sagt sárt saknað. Við viljum þakka öllum sem komu í afmælin (þetta var sumsé tvískipt sökum fjölmennis) fyrir konuna og okkur! Yndislegt að sjá svona marga. Sérstaklega fær Steinunn þó knús og kossa fyrir að vilja hafa afmælið heima hjá sér og mamma, pabbi, Steinka og Siggi fyrir alla aðstoðina við afmælispartýið!

Ásgeir Garðar og Inga Jóna eru búin að nefna sætalíus frænda minn og á hann að heita Ágúst Ingi. Andrea, Jakob og Líf fluttu norður, ég sakna þeirra svo mikið – ég vona að þau fari að koma aftur til okkar!

Við fluttum úr Breiðholtinu í Fellsmúlann. Þar búum við kósí íbúð og erum að koma okkur fyrir, ástæðan fyrir fréttaleysi eru sumsé flutningar og internetleysi. Gróa og Ásgeir – takk innilega fyrir okkur! Pabbi og Dísa stóðu sig eins og hetjur í íbúðarleitinni – takk æðislega!

Ninja Tíbrá fékk dagmömmupláss hjá Þórunni dagmömmu sem býr rétt hjá okkur og líkar henni svona líka dúndurvel! Henni finnst þetta yndislegt og ekekrt mál að leika við krakkana, Þórunn er líka svo yndisleg að þetta er bara allt eins og best verður á kosið. Aðlögunin gekk vonun framar og hún felldi ekki eitt tár, ég felldi nokkur.

Ég er byrjuð að vinna á tölvudeildinni hjá Vinnumálastofnun, er blaðamaður í hlutastarfi og svo auðvitað Herbalife dreifingaraðili – um að gera að hringja (868 8981) ef þið eruð forvitin um vöruna eða frábæra viðskiptatækifærið sem ég get varla sofið útaf spenningi yfir!
Eyjólfur, Maja, Vígdís Helga og Iðunn Anna – Diddi, Halla og Auður María fluttu heim – fínt að hafa Danmerkurneighboursina okkar hérna heima á klakanum! Stjáni flutti líka heim frá Afríku – Friðgeiri til ómældrar gleði (og auðvitað mér líka hehe).

Við fórum í aldarafmæli Gróu langömmu hans Friðgeirs og langalangömmu Ninju Tíbrár á afmælisdaginn hennar Ninju – ótrúlega gaman að hitta alla stórfjölskylduna!

Jóa og Haffi eignuðust stórkostlegan strák 12.september og ég er óendanlega spennt að sjá litla sætakrúttið!

Ninja Tíbrá er byrjuð að labba – hún er búin að vera að labba á milli, labbar þegar enginn sér og alveg kunnað að labba í nokkra mánuði en ekki viljað nota það fyrr en allt í einu á laugardaginn, þá var hu´n tilbúin og núna er gellan óstöðvandi!
Vetnishúsið sefur aldrei og verkefnið aftur komið á fullan snúning!
Ninja Tíbrá er farin að segja: botti (bolti), babbedda (tannbursta), ha nuní? (hvar er Guðný) bitta (Birta vinkona hennar hjá Dagmömmunni), Ísabeja (Ísabella uppáhalds vinkona og frænka), hasuj (held að hún sé að segja hvað segirðu, hún notar þetta í tíma og ótíma) Siggi, dódi (dótið) bassi (bangsinn), húpa (súpa), sejos (seríos) og óteljandi margt fleira! Hún babblar allan daginn og skellir ægilega upp úr þegar hún er búin að segja óteljandi mörg orð í langri runu eins og ha nuní, ha pabbi, botti údi? Þetta kemur kannski í einni runu þegar hún er að koma heim frá dagmömmunni og við mæðgur sitjum saman í bílnum og erum að spjalla.

Það er sumsé allt gott að frétta og margt að gerast þessa dagana! Það eru allir búnir að vera ótrúlega hjálpsamir og aðstoða okkur þvílíkt við flutningana, heimilisleysið og allt sem gengið hefur á hjá okkur – takk æðislega!
Ég þarf heldur betur að fara að skella inn myndum – nú fer internetið brátt að fljóta um húsakynni Fellsmúlans og þá hrannast myndirnar upp – ég lofa!

..Ég er að hugsa um að fara að snúa mér aftur að vinnunni!

..over and out! –Annska, tövlunördið sem er með gat á hausnum! =)

5 komment

  1. Váááá, æðislegt að fá loksins fréttir af ykkur… hlakka svo mikið til að sjá ykkur á skype-inu þannig að þið verðið að vera fljót að skella því upp í nýju húsakynnunum:) Annars allt frábært að frétta úr Danmörkinni og stórt knús til ykkar allra.

    Komment by Guðný danske pige — Wednesday - 19.September 2007 @ 18:24

  2. Ég sakna ykkar líka geggjað mikið! en skemmtileg færsla og það var gaman að heyra loksins frá ykkur.
    Til hamingju með aukið sjálfstæði sem fylgdi því að byrja að labba sjálf, elsku Ninju krúttið mitt! :)
    Hlakka til að sjá nýjar myndir þegar upptekna mamman hefur tíma! :)
    Knús og kossar frá Línu-landinu.

    Komment by Elí­sabet — Thursday - 20.September 2007 @ 09:03

  3. Vá hvað það er mikið að gerast hjá ykkur. Þurfiði ekki að fara að taka ykkur frí bráðum frá þessu öllu saman. Ég veit fyrir víst að Álaborg er mjög góður staður til að eyða fríinu sínu :)
    Eiríkur er mjög spenntur að hitta Ninju sína og saknar hennar ógurlega. Hann vill endilega sýna henni hvað hann er orðinn duglegur að skríða og standa upp og labba með og fikta í ÖLLU! Svo þarf hann líka að fá smá sýnikennslu í því hvernig maður labbar án aðstoðar.
    Hlökkum til að heyra frá ykkur aftur.
    Litla fjölskyldan í Álaborginni.

    Komment by Ríkey — Thursday - 20.September 2007 @ 09:42

  4. Vá hvað það er gaman að geta lesið nýja færslu. Hlökkum mikið til að hitta ykkur þegar þið farið í víking til skandinavíu :)

    knúsiknús

    Komment by Ámundi, Ásta og Elsa Björg — Thursday - 20.September 2007 @ 20:39

  5. Elsku Ninja til hamingju með mömmu þí­na, rosalegt hvað kellan er orðin gömul :)
    æðislegt að heyra frá ykkur….já Annska ég er sammála, nú panta ég hitting!!! :)

    knús og kram

    Komment by Sigurlaug og Einar Már — Friday - 21.September 2007 @ 11:01

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu