Abbababb
Monday - 1.October 2007
Mamma, pabbi og Þorgeir Kristj+an buðu okkur mæðgum í leikhús í gær. Steinunn, Siggi, Patrik Dagur og Ísabella Sól, mamma, pabbi og Doddi komu auðvitað lÍka. Við fórum að sjá Abbababb Í Hafnarfjarðarleikhúsinu og vá hvað Það var gaman! Ég bjóst við því að Ninja Tíbrá, sem aldrei situr kyrr, myndi halda þolinmæðinni fyrsta korterinn, þá hefði ég orðið himinlifandi en mín hélt sko athyglinni ALLT LEIKRITIÐ! Í einn og hálfan tíma sat litla krúttan dolfallin og það heyrðist ekki múkk í henni. Henni fannst þetta svo gaman, klappaði ægilega, hló og vinkaði alltaf Þegar einhver nýr kom inn +a sviðið. Hún vildi helst bara sitja hjá Dodda sínum enda er hún Þvílíkt Dodda-sjúk, Doddi er bestur. Í síðustu atriðunum var dansað, sungið og rosa fjör þá stóð gellan upp í fanginu á mér og dansaði! Hún fékk sódavatn hjá afa sínum og kanilsnúða hjá Ísabellu Sól Í hléinu og var í banastuði! Þetta var svo æðislegt, aldrei hefði ég trúað því að henni þætti þetta svona gríðarlega skemmtilegt! Það verður sko ekki langt þangað til við skellum okkur aftur í eitthvað svona frábært fjör =)
hehehe já þú ert nú meiri gellan:) Risaknúsingur til þín Ninja og ykkar allra:) kyssi kyss
Steinkan og gríslingarnir
Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Monday - 1.October 2007 @ 16:13
Hæhæ sæta mín, vá þú ert nú ekkert smá dugleg að sitja heilt leikrit……..algjör skívsa, verðum svo að fara að hittast sæta mín, ég er komin með Ninnu fráhvarf…..
Komment by Sigurlaug — Wednesday - 3.October 2007 @ 12:47
ææææ…hrikalega flott nýja lúkkið á síðunni ykkar!
vá ég kalla ninju duglega að endast heilt leikrit
knús knús!
Komment by gveiga & valsí — Friday - 5.October 2007 @ 00:40