Vatnaveröld & útifjör
Sunday - 7.October 2007
Helgin var ó svo næs. Við fórum í Vatnaveröldina í Keflavík í gær (innisundlaugagarður fyrir lítil kríli) og skemmtum okkur konunglega! Ninja Tíbrá synti bara með kútunum og fór galvösk í rennibrautirnar og skríkti úr gleði. Í dag vorum við svo bara úti í garði í góða veðrinu og tókum auðvitað sætar myndir. Lilta skottan er orðin svo dugleg að hlaupa og stendur allstaðar orðið upp á miðju gólfi - meira að segja í stígvélunum - Það hefur reynst þrautin þyngri hingað til en er nú algjörlega komið. Hún dýrkar veski og fylgihluti. Hún hengir veski um hálsinn og gengur stolt um íbúðina og spjallar og hlær ægilega mikið - enda fín frú hér á ferð. Hún fer í öll veski og alla vasa, nær sér í smápeninga og setur í baukinn, ótrúlega dugleg að safna og leggja fyrir, töluvert duglegri en múttan hennar - spurning hvort hún verði sú sem borgar útborgunina í íbúð með þessu áframhaldi! Úff, Ég er svo stolt móðir, hreinleg að springa úr stolti - Ninja Tíbrá er fallegasta, fyndasta og yndislegasta barn í veröldinni!
ohh, þar er ég alveg sammála þér… Ninja er æði
En hvernig er það er ekki hægt að taka myndbönd á nýju myndavélina… mig langa ógó mikið að sjá frænkuna mína labba og kannski heyra aðeins í henni 
Komment by Guðný — Monday - 8.October 2007 @ 00:24
hæhæ sæta mín. Flottar myndir af þér að opna afmælispakkann.
Sjáumst vonandi sem fyrst….
Komment by Sigurlaug — Monday - 8.October 2007 @ 11:20
oh þú ert bara sætakrúttið okkar:) Kyssi kyss…Patti, Ísabella og co:)
Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Monday - 8.October 2007 @ 13:36
Mikið er flottar nýju myndirnar af Ninju Tíbrá. Það er alltaf verið að smakka á sandinum, hehe:)
Komment by Berglind og Jónína Margrét — Tuesday - 9.October 2007 @ 09:59