Ofurhetjur.com

Vatnaveröld & útifjör

Sunday - 7.October 2007

12118

Helgin var ó svo næs. Við fórum í­ Vatnaveröldina í­ Keflavík í gær (innisundlaugagarður fyrir lítil kríli) og skemmtum okkur konunglega! Ninja Tíbrá synti bara með kútunum og fór galvösk í rennibrautirnar og skríkti úr gleði. Í dag vorum við svo bara úti í garði í góða veðrinu og tókum auðvitað sætar myndir. Lilta skottan er orðin svo dugleg að hlaupa og stendur allstaðar orðið upp á miðju gólfi - meira að segja í­ stí­gvélunum - Það hefur reynst þrautin þyngri hingað til en er nú algjörlega komið. Hún dýrkar veski og fylgihluti. Hún hengir veski um hálsinn og gengur stolt um í­búðina og spjallar og hlær ægilega mikið - enda fín frú hér á ferð. Hún fer í öll veski og alla vasa, nær sér í smápeninga og setur í­ baukinn, ótrúlega dugleg að safna og leggja fyrir, töluvert duglegri en múttan hennar - spurning hvort hún verði sú sem borgar útborgunina í íbúð með þessu áframhaldi! Úff, Ég er svo stolt móðir, hreinleg að springa úr stolti - Ninja Tíbrá er fallegasta, fyndasta og yndislegasta barn í veröldinni!

4 komment

  1. ohh, þar er ég alveg sammála þér… Ninja er æði :D En hvernig er það er ekki hægt að taka myndbönd á nýju myndavélina… mig langa ógó mikið að sjá frænkuna mína labba og kannski heyra aðeins í henni :D

    Komment by Guðný — Monday - 8.October 2007 @ 00:24

  2. hæhæ sæta mín. Flottar myndir af þér að opna afmælispakkann. :) Sjáumst vonandi sem fyrst….

    Komment by Sigurlaug — Monday - 8.October 2007 @ 11:20

  3. oh þú ert bara sætakrúttið okkar:) Kyssi kyss…Patti, Ísabella og co:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Monday - 8.October 2007 @ 13:36

  4. Mikið er flottar nýju myndirnar af Ninju Tíbrá. Það er alltaf verið að smakka á sandinum, hehe:)

    Komment by Berglind og Jónína Margrét — Tuesday - 9.October 2007 @ 09:59

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu