Ofurhetjur.com

Lalli lagari

Wednesday - 12.December 2007

Vei! Ég er loksins búin að laga heimasíðuna! Hún er búin að vera í lamasessi núna í mjöööög langan tíma. Í gær þegar allt small saman og loksins, loksins eftir mikið vesen fór aftur að birtast efni á síðunni! Þá mundi ég útaf hverju mér fannst gaman í tölvunarfræðinni - það er þessi himnasæla sem fylgir því að finna út úr erfiðu vandamáli sem lengi er búið að íþyngja manni. Ég á nú eftir að lagfæra þónokkra hnökra, eins og myndaalbúmið og gamlar færslur - en það kemur ;)

Knús í krús - Anna Sigga ofurnörd!

10 komment

  1. Þú ert snillingur elskan mín

    Komment by Pabbinn — Wednesday - 12.December 2007 @ 13:04

  2. Þú ert algjört djíníus:) Hlakka mikið til að lesa færslurnar þínar gella:)

    knús Steinka íbúðareigandi og gormalingarnir

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Wednesday - 12.December 2007 @ 13:58

  3. Víííííí, gaman, gaman…..loksins er síðan komin í gang aftur :)

    Komment by Sigurlaug — Wednesday - 12.December 2007 @ 14:33

  4. Jibbí!! Hlakka til að sjá nýjar myndir!!

    Komment by Ragga — Wednesday - 12.December 2007 @ 15:00

  5. JEEEEIII!

    Komment by gveiga & valsí — Wednesday - 12.December 2007 @ 22:38

  6. Ohh, frábært! Þú ert sko algjört tölvunörd og mátt vera stolt af því! Hlakka til að sjá fullt fullt af myndum og auðvitað líka til að knúsa ykkur eftir 8 daga!!
    Kveðja úr góða veðrinu í Danmörku:)

    Komment by Guðný í OdenseuðnýG — Thursday - 13.December 2007 @ 01:18

  7. Dásamlegt, hlakka til að sjá ;)
    kv Bryndís og co í Hafnarfirði

    Komment by Bryndís — Thursday - 13.December 2007 @ 13:58

  8. Mikið var. Við höfum beðið spennt eftir þessu í langan tíma. Hlakka til að lesa meira og skoða myndir.
    Mæðginin í Álaborginni.

    Komment by Ríkey — Thursday - 13.December 2007 @ 23:37

  9. Hæ hæ :) Mikið er hún Ninja Tíbrá dugleg. Það er ekkert smáræði! Takk fyrir boðið í kakó og piparkökur :) Væri meira en lítið til í að koma, en því miður er ég að fara í próf á þriðjudaginn og síðan erum við bara farnar á fimmtudaginn :( En við kíkjum nú næst á ykkur þegar við komum á klakann :) Svo langt síðan við mæðgur höfum séð ykkur. Rembingskoss til Ninju frá okkur. Svo þú hafir íslenska númerið mitt líka þá er það 694-2756 :) Kveðja, Berglind og Jónína Margrét

    Komment by Berglind — Sunday - 16.December 2007 @ 01:01

  10. gaman að síðan se komin í lag :) hlakka til að sjá ykkur mæðgur á eftir;)

    Komment by Regína — Tuesday - 18.December 2007 @ 14:51

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu