Lalli lagari
Wednesday - 12.December 2007
Vei! Ég er loksins búin að laga heimasíðuna! Hún er búin að vera í lamasessi núna í mjöööög langan tíma. Í gær þegar allt small saman og loksins, loksins eftir mikið vesen fór aftur að birtast efni á síðunni! Þá mundi ég útaf hverju mér fannst gaman í tölvunarfræðinni - það er þessi himnasæla sem fylgir því að finna út úr erfiðu vandamáli sem lengi er búið að íþyngja manni. Ég á nú eftir að lagfæra þónokkra hnökra, eins og myndaalbúmið og gamlar færslur - en það kemur
Knús í krús - Anna Sigga ofurnörd!
Þú ert snillingur elskan mín
Komment by Pabbinn — Wednesday - 12.December 2007 @ 13:04
Þú ert algjört djíníus:) Hlakka mikið til að lesa færslurnar þínar gella:)
knús Steinka íbúðareigandi og gormalingarnir
Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Wednesday - 12.December 2007 @ 13:58
Víííííí, gaman, gaman…..loksins er síðan komin í gang aftur
Komment by Sigurlaug — Wednesday - 12.December 2007 @ 14:33
Jibbí!! Hlakka til að sjá nýjar myndir!!
Komment by Ragga — Wednesday - 12.December 2007 @ 15:00
JEEEEIII!
Komment by gveiga & valsí — Wednesday - 12.December 2007 @ 22:38
Ohh, frábært! Þú ert sko algjört tölvunörd og mátt vera stolt af því! Hlakka til að sjá fullt fullt af myndum og auðvitað líka til að knúsa ykkur eftir 8 daga!!
Kveðja úr góða veðrinu í Danmörku:)
Komment by Guðný í OdenseuðnýG — Thursday - 13.December 2007 @ 01:18
Dásamlegt, hlakka til að sjá
kv Bryndís og co í Hafnarfirði
Komment by Bryndís — Thursday - 13.December 2007 @ 13:58
Mikið var. Við höfum beðið spennt eftir þessu í langan tíma. Hlakka til að lesa meira og skoða myndir.
Mæðginin í Álaborginni.
Komment by Ríkey — Thursday - 13.December 2007 @ 23:37
Hæ hæ
Mikið er hún Ninja Tíbrá dugleg. Það er ekkert smáræði! Takk fyrir boðið í kakó og piparkökur
Væri meira en lítið til í að koma, en því miður er ég að fara í próf á þriðjudaginn og síðan erum við bara farnar á fimmtudaginn
En við kíkjum nú næst á ykkur þegar við komum á klakann
Svo langt síðan við mæðgur höfum séð ykkur. Rembingskoss til Ninju frá okkur. Svo þú hafir íslenska númerið mitt líka þá er það 694-2756
Kveðja, Berglind og Jónína Margrét
Komment by Berglind — Sunday - 16.December 2007 @ 01:01
gaman að síðan se komin í lag
hlakka til að sjá ykkur mæðgur á eftir;)
Komment by Regína — Tuesday - 18.December 2007 @ 14:51