Hverjum þykir sinn fugl fagur
Friday - 14.December 2007
Jæja, gellan er nú orðin 15 mánaða og hleypur um allt. Það er ekki lengur jafn spennandi að labba, betra að hlaupa bara. Hún er farin að segja allskonar skemmtilega hluti og myndar stuttar og krúttlegar setningar. Hún fílar sig flott hjá Tótu dagmömmu og á þar eina sérstaklega góða vinkonu og leika þær sér rosa mikið saman. Hún er orðin ótrúlega áhugsasöm um að klæða sig sjálf, er samt meira í því að klæða sig úr og finnst eins og ALLT eigi að fara yfir hausinn, buxurnar líka
Það er ótrúlega margt búið að gerast í okkar lífi upp á síðkastið og jólaundirbúningurinn að byrja því flutningarnir eru nú yfirstaðnir og krúttleg íbúð í Grafarvoginum orðin okkar nýja heimili. Ninja Tíbrá er ótrúlega meðvituð um þessa jólasveina sem koma með gott í skóinn og alltaf þegar ég spyr hana á morgnanna: ,,er eitthvað í skónum Ninja mín?” stekkur mín á fætur og hleypur fram í stofu þar sem bíða hennar pakkar í skónum. Hún er algjörlega sætust í heimi!
Hún er farin að segja dálítið til þegar hún vill fara á koppinn, ég veit ekki alveg hvaðan það kom, líklegast útaf taubleyjunum - þá eru þessi krílakrútt fyrr til að byrja að fatta. Hún segir oft til þegar hún vill fá nýja bleyju og svo segir hún líka stundum: ,,issa koppi” sem þýðir auðvitað pissa í koppinn! Hún segir manni endalausar sögur sem búnar eru til úr orðum sem hún kann eins og til dæmis: ,,ha e Bella? Bella bakka? neee, Bella údi” svo hlær hún ægileg ósköp! Þetta þýðir sumsé: hvar er Ísabella, er hún í bankanum? Nei, auðvitað er hún úti! (kom til því við fórum í bankann um daginn og þurftum að bíða endalaust lengi og allan tímann langaði hana að fara að leika við Ísabellu sína og vildi greinilega fá hana til sín í bankann). Hún er frábærlega dugleg þessi dúlla!
Hún er alveg ótrúlega kelin og mikið kúridýr núna. Vill helst ekkert fara framúr á morgnanna og liggur bara ofan á bringunni á mér, með hendurnar utan um hálsinn minn og kyssir mig í gríð og erg og nuddar hárið mitt og segir Mamma AAAAAH! =) Svo kemur allt í einu í hana orka þegar við förum að ræða jólasveininn og við förum framúr og fáum okkur eitthvað í gogginn og kíkjum í skóinn.
Hún er orðin ótrúlegur grallari og er þessa dagana örlítið að testa þolrif móður sinnar, athuga hvað hún má og svona, horfir á mig og hristir hausinn og segir ,,mamma óó?” áður en hún prufar að fikta í innstungunum og segir neeeeiii áður en hún sprautar úr svalanum á gólfið. Þetta er nú allt bara til að krydda tilveruna og ég get nú aldrei annað en brosað því þessi prakkarastrik eru svo léttvæg. Hún er sko besta barn í heimi - ég er alveg á því!
Ég er gjörsamlega að tapa mér úr móðurstolti - auðvitað finnst mér hún duglegust í heimi, fyndnust og best í öllu sem hún gerir, það er jú þannig sem öllum foreldrum finnst um ungana sína - hverjum þykir sinn fugl fagur!
Hahaha, úff ég gæti nú ekki verið meira sammála þér um fagra fugla og móðurstoltið. Alltaf þegar Valur Elí tekur upp á einhverju nýju líður mér eins og hann hafi hreinlega verið að finna upp hjólið
En ég trúi ekki að my fellow jólageðsjúklingur sé ekki einu sinni komin með jólaseríur á svalirnar?!
Ég er svo glöð að síðan ykkar sé komin aftur í gagnið, ég er búin að vera alveg lost án hennar!
Vona að þið mæðgur hafið það sem allra best og að þú farir að herða þig í jólageðsýkinni!
Knús
-gveiga & kjötbollan.
Komment by gveiga — Friday - 14.December 2007 @ 18:58
úúúúíííi…mikið er ég glöð að bloggið sé komið upp aftur!!!:) prófagrýlan er loksins farin úr lífi mínu fyrir fullt og allt og nú er ekkert framundan nema taumlaus jólagleði! hlakka til að sjá ykkur eftir helgi og gera einhvern jólatrylling!
Komment by Andrea — Friday - 14.December 2007 @ 19:22
Hellú
Loksins getum við aftur lesið um dáðir hennar Ninju Tíbrár
Erum að klára skólann og hlökkum mikið til að komast í jólafrí. Vonumst til að hitta ykkur í fríinu.
Jólakveðjur og knús,
Ásta, Ámundi og Elsa Björg
Komment by Ámundi, Ásta og Elsa Björg — Friday - 14.December 2007 @ 19:45
hehehe já Bella alltaf í bankanum:) Eeeen takk fyrir daginn mæðgur:) og takk fyrir að passa Pattalinginn:) hann var að lognast út af…mjög ánægður með daginn og hrikalega montinn með jólatréð sem er risið hér í stofunni:)
knús í krús…hittumst á morgun:)
Steinka og gormalingarnir:)
Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Sunday - 16.December 2007 @ 00:44
Æji litlu snúllurnar í dag! Sjá þau öll að brasast með þennan ís
gaman að sjá ykkur… komst ekki til þín í kvöld þar sem mannapinn minn þurfti að fara að vinna og ég þar af leiðandi bíllaus…
Komment by Nanna — Sunday - 16.December 2007 @ 00:56
Ohh, get sko ekki beðið eftir að koma heim og knúsa litla snillinginn:) Hún er samt mjög fyndin þegar ég er að spjalla við hana á skype-inu hjá M&P, kallar alltaf uppyfir sig “mamma!!” þegar myndin af mér birtist… held ég þurfi nú að kenna henni fyrir alvöru að segja Guðný þegar ég kem heim… sleppur sko ekki við það;)
Komment by Guðný — Sunday - 16.December 2007 @ 23:55