Ofurhetjur.com

Prinsessan á bauninni

Tuesday - 18.December 2007

Ninja Tíbrá er búin að fá sitt eigið prinsessuherbergi! Hún svaf fyrstu nóttina ein í herberginu í nótt og það gekk ótrúlega vel! Móðirin svaf nú ekki jafn vel sökum áhyggjukvíða yfir aðskilnaðnum, naflastrengurinn er ennþá svo stuttur. Hún svaf eins og litli engillinn sem hún er og svo þegar hún vaknaði í morgun kallaði hún á mömmuna sína í blíðum tón – frábærlega dugleg gella.

Ég hef átt þann draum síðan hún fæddist að græja prinsessuherbergi handa henni, leyfa henni að hafa allt dótið sitt á einum stað, aðgengilegt og fínt! Hún var farin að vakna þegar ég fór inn í rúm á kvöldin því það marrar svo í hurðinni svo ég ákvað að prófa þetta og hún er bara svo greinilega tilbúin í þetta, að sofa ein í sínu eigin prinsessuherbergi! Enda var hún hæstánægð í morgun, lék á alls oddi og hló ótrúlega mikið þegar við vorum að græja okkur og tannbursta. Þegar við vorum tilbúnar tók hún í höndina á mér eins og alltaf þegar við förum út og ég opnaði útihurðina eins og vanalega en mín arkaði inn í herbergi, benti mér á að kveikja og sagði svo: ,,mamma sju‘u – vá!“ og benti skælbrosandi inn! Greiiiinilega ánægð með herbergið sitt!

Íbúðin okkar er um 70 fermetrar og 6 metrar til lofts þar sem hæst er. Yfir baðherberginu er svo krúttlegt og kósý milliloft þar sem einungis kemst fyrir rúm og skrifborð (þar verður sumsé svefnherbergi / office). Það er svo stigi niður og komið er niður hjá hurðinni inn í prinsessuherbergið! Ég er hæstánægð yfir þessum breytingum og það er vægast sagt kósý uppi á loftinu þar sem er frekar lágt til lofts og mikil kúristemning. Fyrir breytingar var borðstofan dótaherbergið hennar Ninju Tíbrár en núna verður græjuð borðstofa þar (um leið og desembervísareikningurinn er fullgreiddur).

Dótið hennar er nú allt í herberginu þar sem er allt í bangsímon-veggfóðursmyndum og yndislegu prinsessudóti og þema. Ég vona að þetta gangi allt eins og í sögu og við getum haft þetta svona hér eftir, við sjáum bara til hvernig þetta gengur en skutlan er sko heldur betur himinlifandi með breytingarnar og múttan sæl og glöð að geta gefið einkabarninu og frumburðinum svona frábært herbergi! :D

7 komment

  1. Æ krúttið. Ég hlakka svo til að sjá ykkur og að knúsa hana Ninju mína og spjalla aðeins við hana.

    Komment by Ríkey — Tuesday - 18.December 2007 @ 20:22

  2. Æji frábært ;) þetta er sko draumur hjá mér líka, rætist sem betur fer í maí þegar ég sting af norður ;)

    Komment by Nanna — Tuesday - 18.December 2007 @ 23:01

  3. ohh, æðislegt að heyra. Hlakka til að koma og sjá nýju íbúðina og flotta prinsessuherbergið:D

    Komment by Guðný — Tuesday - 18.December 2007 @ 23:50

  4. Vá, hvað það kom mér á óvart að síðan var komin í lag. Hlakka mikið til að hitta ykkur Ninju, sem fyrst! Ég saknaði ykkar svooo mikið þegar ég var úti :(
    Knús og kossar úr Skipasundinu!

    Komment by Elísabet — Thursday - 20.December 2007 @ 12:18

  5. Hæhæ sætu mæðgur……Glæsilegar breytingar heyri ég :)Gleðileg Jól og farsælt komandi ár, hafið það sem allra best um jólin. Sjáumst hressar á nýju ári :)

    Komment by Sigurlaug, Einar Már og bumbubúinn — Monday - 24.December 2007 @ 10:42

  6. Hún er svo sætust:) alltaf svo dugleg og góð! flottar breytingar annsa min =)

    Komment by Regína — Thursday - 27.December 2007 @ 20:13

  7. Hæhæ, vildi nú bara kvitta fyrir innlitið, rekst stundum herna inn að forvitnast um gamla skólafélaga.. vona að Ninjunni þinni fari að batna :)

    Kveðja frá okkur Patreki Trausta

    Komment by Bogga — Friday - 11.January 2008 @ 13:03

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu