Jólagleði
Tuesday - 8.January 2008
Jólin voru mjög frábær og fjörug! Við vorum í Glaðhúsinu í Smáranum (nýja húsinu hjá mömmu, pabba og Þorgeiri Kristjáni). Um morguninn komu jólasveinar til okkar og létu öllum illum látum, renndu sér á handriðinu, spiluðu á trommurnar og gáfu lingunum okkar gjafir. Á aðfangadag voru í Glaðhúsinu: við, Steinunn, Siggi, Patrik og Ísabella, mamma, pabbi og Þorgeir Kristján og svo eftir matinn komu pabbi og Dísa. Sami hópurinn var svo saman á Gamlárs. Pakkaflóðið var óskaplegt og yndislegt, krílin skemmtu sér sko konunglega við að opna pakkana fyrir alla og hjálpuðu afa sínum og Þorgeiri Kristjáni að ferja pakkana í réttar hendur. Við erum hæstánægðar með jólahátíðina í heild sinni og þökkum kærlega fyrir okkur. Á milli jóla og nýárs skelltum við okkur í bjartsýniskasti til Vestmannaeyja. Við vorum staðráðin í því að komast heim fyrir áramót en svo þegar við vorum komin hálfa leið í Herjólfi fengum við að vita að aftakaveðrið sem var á leiðinni, yrði til þess að við kæmumst ekki heim fyrir skaup. Við fórum í brúðkaup hjá Daða og Þóru og allir dönsuðu og höfðu gaman. Við vorum í stanslausum humar- og kökuveislum eins og við er að búast þegar öll stórfamilyan hittist, þá er sko alltaf fjör og mikið borðað af góðum mat. Ninja, Aron, Herdís og Ísabella léku sér saman (og slóust líka aðeins en það er nú bara til að slípa vinskapinn) en þau eru öll jafngömul, munar 22 dögum á Ninju og Herdísi (hún er sumsé elst), 18 dögum á Ninju og Aroni (næstelstur) og svo auðvitað sléttum 10 vikum á Ninju og Ísabellu (sem er yngst). Þetta var allt geggjað gaman, vantaði bara Nönnu &co og Öddu &co. - þá hefði öll stórfjölskyldan verið þarna samankomin, ég held að við séum orðin hátt í 50 talsins, amma á Eski og hennar afkomendur. Við gistum í sumarbústað og veðrið var svo slæmt á tímabili að það ringdi inn í bústaðinn, inn á milli þjala og inn hjá þéttingunum á gluggunum eeeen eins og allir vita þá er enginn verri þó hann vökni
Ninja Tíbrá er búin að vera með eyrnabólgur, berkjubólgur og lungnabólgur núna í 3 mánuði. Rosa hiti og óþægindi fylgja þessu. Hún fær aftur og aftur eyrnabólgu og í hvert skipti fær hún tvöfallt sterkari sýklalyf. Ég vona nú að þessi veikindakafli fari að taka enda í hennar lífi. Núna er hún með berkjubólgur og hugsanlega er að byrja enn eina ferðina lungnabólga, læknirinn var ekki alveg viss með þetta í gær þegar ég fór og lét hlusta hana en hún heyrði nú eitthvað óeðlilegt og var ekki viss hvort þetta væri að byrja eða hugsanlega enn smá leifar síðan fyrir 10 dögum þegar hún kláraði síðasta sýklalyfjaskammt við lungnabólgu. Hún er búin að vera að fá alltaf tvöfallt sterkari lyf í hvert skipti því eyrnabólgurnar virðast endalaust þrálátar. Hún losnar aldrei við vökvann bak við hljóðhimnuna en ég vona bara að það hjaðni með tímanum. Læknirinn okkar vill að ég fari með hana til háls-, nef-, og eyrnalæknis til að láta meta hvort hún fær rör í eyrun eður ei. Ég vil allaveganna ekki vera endalaust að dæla í hana sýklalyfjum í öllum regnbogans litum því litli kroppurinn höndlar það ekki svo vel. Ég er komin á ystu nöf í vinnunni því ég er búin að taka svo endalaust mikið af veikindadögum fyrir Ninjuna mína og sem betur fer á ég einstaklega skilningsríka yfirmann sem á fullt hús af börnum sjálfur svo hann skilur þessi veikindi ótrúlega vel. Ég vona bara að þetta fari nú að taka enda svo ég geti farið að standa mig eins vel og ég vil gera í vinnunni og svo að Ninju fari að líða betur. Gleðifréttir gærdagsins voru þær að nú er frítt með börn til læknis (lyfin eru auðvitað enn hunddýr)! Ég var svo himinlifandi með þetta því nánast í hverri viku mætum við mæðgur á vaktina uppi í Salahverfi og rölltum út með lyfseðil. Ninja er búin að hitta lækninn okkar svo oft að hún vildi bara fara til hennar í gær í spjall og knús.
Ninja Tíbrá er sko hæstánægð með prinsessuherbergið og finnst hundleiðinlegt þegar hún er búin að snúa öllu á hvolf, þá vill hún að mamman taki sig nú saman í andlitinu og taki til í herberginu ![]()
Ohh…ég trúi ekki að jólin séu búin! Ég væri svo til í fleiri spilakvöld og meira nammi…en maður hefur víst ekki gott af því!:) Hlakka til að sjá ykkur mæðgur á morgun! K&K Andrea
Komment by Andrea — Tuesday - 8.January 2008 @ 19:01
já Annsa mín þú hefir átt að hlusta á litlufrænku þína með veðrið þarna í vestmanneyjum! en ég vona að hun Ninja mín fari að lagast!! ekki gott að svona prinsessur séu veikar..
en eg fæ bílprófið á þriðjudaginn næsta og get þá oftar rúllað í heimsókn til ykkar skvísur! :*
Komment by Regína — Thursday - 10.January 2008 @ 05:04