Internetgleði & Humarhátíð
Sunday - 13.January 2008
Ísabella og Patrik voru í pössun hjá okkur í gær og svo gistu Doddi og Patti hjá okkur í nótt. Það var geggjað stuð allan daginn og heldur betur fjör um kvöldið líka. Ninja Tíbrá er með lungnabólgu og eyrnabólgu (fór með hana til læknis á miðvikudaginn síðasta). Hún er því búin að vera bara í innipúkastemmaranum en fer til dagmömmunnar á morgun (ef nóttin verður fín). Hún er bara á sýklalyfjum til að vinna á þessum lasleika. Annars erum við bara í hressleikanum og internetið loksins komið í Flétturimann okkar, ráderinn og ADSL-tengin voru komin hérna í síðustu viku en tölvan mín (nýja fína) var ekki sátt við þetta og neitaði að tengjast. Við vorum búin að eyða ófáum klukkustundunum í að fikta en svo í morgun, græjaði yndislegi mágur minn og ástmaður systur minnar hann Siggi þetta! Eftir internetlögun skelltum við okkur öll í sunnudagaskólann og veiii, það var jafn frábært og alltaf, Ninja Tíbrá hoppar alltaf af kæti, syngur með og vill ólm taka þátt í öllu.
Sigurlaug og Andrea komu með köku til okkar á miðvikudaginn og við borðuðum köku, klöppuðum bumbu, ræddum markmið ársins og stöðu bankanna (hljómar eins og mjög háfleygar og markvissar umræður eeeen þeir sem þekkja okkur vel vita að þetta er allt yfirskin).
Við vorum með stórkostlegt humarpartý með extra miklum hvítlauk hérna í kotinu okkar á fimmtudaginn og namminamm, ég dýrka humar! ..og hvítlauk! Enda líka meistarakokkar sem höndluðu sjávarkvikindin! Ótrúlegu marki var náð þetta kvöld, í fyrsta skipti í þessari íbúð var hvítlauksbrauðið ekki brennt! Bakaraofninn hérna er svo trylltur að um leið og eitthvað er sett inn, er það tilbúið! Ég er vön lélegum ofnum sem taka sinn korter í að hita hvítlauksbrauð en í þessum þarf að vakta brauðið og kökurnar, svo trylltur er hann! Ég boraði á mig gat og hafði ekki orku í að gera nokkurn skapaðan hlut sökum seddu en samt borðaði ég meira! Ótrúlegt hvernig maður borðar stundum alltof mikið, þrátt fyrir að vita vel að það kemst ekki mögulega meira í magann, þá er það græðgin sem tekur yfir og skellir restinni bara í íshólfið ![]()
Sælar mæðgur!
mikið vona ég nú að þér fari að batna elsku Ninja Tíbrá.. ekki skemmtilegt að vera svona lasin. Mig er nú farið að langa til að skoða nýjar myndir af ykkur og nýju íbúðinni og svona.. segðu mömmslu að kippa því í lag!:)
og Anna Sigga ég verð nú bara að segja að þú getur verið stolt af þér.. ekkert smá dugleg!!
…fariði svo að drattast austur!!!:)
Komment by Jóa — Sunday - 13.January 2008 @ 19:38
Takk fyrir mig elsku Didda og Ninja…frábært að fá að gista svona:) Knús og kossar Pattalingurinn:)
Komment by Patrik Dagur — Monday - 14.January 2008 @ 00:40
Vonandi fer litla skinnið að hressast!
ég er á leiðinni í heimsókn… alveg á leiðinni…. 
Komment by Nanna — Monday - 14.January 2008 @ 10:29