Ofurhetjur.com

Pjása í Smáralind

Monday - 14.January 2008

Ég sá gellu í Smáralindinni um daginn í ólöglega stuttu pilsi og gegnsæum nælonsokkabuxum. Hún var augljóslega ENGUM nærbuxum því þegar hún beygði sig fyrir framan okkur mæðgur sá ég ALLTOF mikið og var án minnsta efa með hneyslunarsvip aldarinnar þegar stelpuskjátan snéri sér við. Annaðhvort hefur hún hugsað: ,,OMG GMG hvað þessi er ógó fokkíng gömul og hallærisleg, hvað þykist hún vita um tísku?” eða: ,,úps, ætli það hafi sést of mikið?” því hún varð pínu einkennileg á svipinn og tuggði tyggjóið sitt eins og enginn væri morgundagurinn með augun opin alveg upp á gátt og horfði stíft á mig. Ég skammaðist mín ægilega fyrir þennan svip sem svo ósjálfrátt afmyndaði andlit mitt þegar hún var að snúa sér við. Mér leið eitt augnablik eins og ég sæti gegn mínum vilja með barnið mitt á strippbúllu með bjór og vindil í hönd en ekki að bíða með barnið mitt eftir afgreiðslu í banka með stútkönnu og snuð í hönd. Allt í einu fann ég til með dömunni sem var augljóslega í mikilli blöðrubólgu-hættu þar sem það var -2°c úti!

Mini-pils og sokkabuxur eða leggings eru einstaklega þægilegt kombó - ég nota svoleiðis mjög mikið, ég nota hins vegar líka nærbuxur og hef sokkabuxurnar það þykkar að þær eru ekki ,,sí-þrú.”

Hvernig er það, er þetta Britney-look bara algjörlega að gera sig og ég ægileg tepra eða er eðlilegt að mér misbjóði pjása í Smáralind?

6 komment

  1. HAHAHAHA!! Hvað er að sumu fólki?? Hefði trúlega sett upp sama svip! En ég er ánægð með kjélluna, bara blogg á hverjum degi :)

    Komment by Ragga — Monday - 14.January 2008 @ 17:38

  2. Láttu ekki svona tepran þín! Hvað er ein pjása á milli vina?

    Allavega myndi ég ekki slá hendinni á móti fríu píp sjóvi í Smáralindinni :-)

    Komment by Guðrún Veiga — Tuesday - 15.January 2008 @ 03:17

  3. hahahahahaha, þetta er alltof fyndið, ég hló sko geðveikt mikið upphátt hérna uppí vinnu!!!! þú ert BARA snillingur ; )

    Komment by Erna — Tuesday - 15.January 2008 @ 13:36

  4. blöðrubólguhætta, aldrei hef ég nú heyrt aðra eins vitleysu. Allar konur eiga að taka sér þessa til fyrirmyndar og ganga skrefinu lengra, sleppa brjóstahaldara og vera í gegnsæum bol! (”,)

    Þegar ég hugsa út í það þá held nú svosem að það sé skemmtilegra að ímynda sér hvað er undir bolnum og hvernig er umhorfs undir pilsinu en að sjá allt sem í boði er, það væri líklegast í flestum tilfellum fráhrindandi.

    Komment by Rúnar — Tuesday - 15.January 2008 @ 14:22

  5. æææ…ég hló mest að þessari sögu út af því að ég veit hverju þú sleppir úr henni…múhahah!=) en ég veit að við erum sko engar teprur, hvorki ég, þú né Ninja!

    Komment by Andrea — Wednesday - 16.January 2008 @ 20:52

  6. haha - já Andrea mín, þú og Steinunn vitið mest sjokkerandi partinn í sögunni - ég vissi að þú myndir skemmta þér yfir að lesa þetta í ljósi þess! ;)

    Komment by Anna Sigga — Thursday - 17.January 2008 @ 01:18

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu