Klárasta barn fyrr og síðar!
Thursday - 24.January 2008
Við mægður vorum að eignast litla frænku! Hún er guðdómlega falleg! Adda og Arnar voru sumsé að eignast gullmola númer 2. Anna Lilja (sem ég vil að sjálfsögðu meina að sé skírð í höfuðið á mér hehe) er því orðin stóra systir og allt gekk vel. Ég hlakka mikið til að fá að sjá gelluna en ég er sko algjörlega barnasjúk þessa dagana! Ég fór og kíkti um daginn með Tindi og Andra á litlu yndislegu Birtu Líf sem Nóri og Tinna voru að eignast. Við fengum að sjá hana alveg glænýja á spítalanum og að sjálfsögðu er ég ekki húsum hæf eins og allir vita, þegar lítil börn eru annars vegar. Ég missi mig alveg í barnababblinu og tárast úr gleði yfir þessu fallega kraftaverki sem fæðing barns er, ég er sumsé ALLS EKKI húsum hæf. Mér finnst svo ægilega stutt síðan litla gullið mitt var svona lítil en samt hefur svo mikið vatn runnið til sjávar síðan þá!
Í síðustu viku þegar við mæðgur vorum búnar að dúða okkur upp í ullarnærföt og snjógalla, tilbúnar að hlaupa út í bíl til að afþýða læsingarnar sem frjósa á hverri nóttu sagði dóttir mín: ,,mamma! HÁLKA!” Ég stóð á öndinni, gjörsamlega frá mér numin úr stolti yfir því að eiga án minnsta efa, gáfaðasta barn samtímans! Patrik var þá daginn áður (þegar við fórum út á sleða að renna) búinn að ítreka við Ninju Tíbrá að það væri hálka úti og því hættulegt að hlaupa! Núna í þessari viku sagði Ninja Tíbrá við Ísabellu Sól frænku sína (þegar Ísabella ætlaði að prakkarast og klifra í stiganum heima hjá ömmu og afa): ,,Bella! segi afi? NEI!” og otaði puttanum framan í Ísabellu skammarlega. Þetta þýddi sumsé Ísabella, hvað segir Afi? Hann segir NEI!” Því þær frænkur eru nú alveg með það á kristaltæru að ef þær klifra í stiganum þá segir afi þeirra nei við þær og bannar þeim að vera að prakkarapúkast. Ninja er nú reyndar ekkert betri en Ísabella þegar stiginn er annars vegar, það er bara svo ægilega spennandi að vera ,,púki” eins og Ninja segir þegar hún er að prakkarast.
Í gær kom ég heim frá Ísafirði, eftir að hafa verið þar veðurtept í vinnuferð. Ég fór á leiðið hennar mömmu og í heimsókn til Önnu og Katrínar. Þegar ég kom heim varð ég aðeins að fara í vinnuna og þar sem litla skotta er búin að vera með mikinn hósta og dagmamman var á leiðinni út með krílin, ákvað ég að fara með hana með mér í vinnuna. Þar lék daman á alls oddi, sneri gellunum í vinnunni um fingur sér, lét þær hlaupa eftir sódavatni og kexi og fékk að gera allt sem hún vildi. Þetta fannst henni að sjálfsögðu ekki leiðinlegt. Hún sagði síðan: ,,mamma - Ninna pissa” og ég fór með hana inn á klósett. Gellurnar í vinnunni, sem eiga flestar börn á aldri við mig, voru svo dolfallnar yfir snilldinni í barninu, að vera ekki orðin eins og hálfs árs og nánast hætt með bleyju! Þær áttu ekki orð! Hún er sumsé alltaf bleyjulaus hér um helgar og þegar hún er búin hjá dagmömmunni er það yfirleitt sama sagan, fer úr fötunum í sinni röð (segir við mig: úppa, húfa, skó, peysa, beyja og vill að ég aðstoði hana úr fötunum í þessari röð) og vill fá að spreyta sig á bleyjuleysinu. Hún er ekki jafn örugg með þetta hjá dagmömmunni en þetta kemur allt saman. Það fyndna er að ég hef ekkert verið að ýta undir þetta, hún kýs þetta sjálf, er farin að finna greinilega hvenær hún þarf á klóið og lætur vita hvað þar á að gera. Auðvitað gerast oft slys og auðvitað sest hún oft á klóið eða koppinn án þess að nokkuð gerist en það fylgir þessu bara og þau skipti verða alltaf færri og færri.
Steinunn og Siggi fengu svo nýju íbúðina sína í gær og veiii hvað þetta verður æðislegt hjá þeim! Ég er mikið spennt yfir þessu ferli öllu og langar helst af öllu að vera að kaupa íbúð handa okkur gellunum líka, með flottasta prinsessuherbergi fyrr og síðar! Ég þarf nú víst að safna aðeins og kaupa svo. Draumurinn er að kaupa í Smáranum og vera nálægt mömmu & co og Steinku & co.
Jæja, ég ætla að taka smá vinnusession hérna, ákvað að skella smá fréttum hér inn í hádeginu í staðinn fyrir að hlaupa út í búð því það er svo ægilega kalt! Ég fæ mér bara herba-sjeik í staðinn ![]()
Gaman að fá smá fréttir af ykkur mæðgunum
Þið verðið nú að koma að kíkja á nýjasta fjölskyldumeðliminn, hún er æði!!! Ég var með hana á öxlinni í klukkutíma í gær og langaði sko ekkert að sleppa henni !
Komment by Nanna — Friday - 25.January 2008 @ 12:48
Til hamingju með nýja frænku! klár er hún að segja hálka, hún er sko ekki lítið gáfuð!
;)
Farðu að laga myndasíðuna ungfrú tölvunörd, ég veit þú ert busy en ég veit líka að þig langar að gleðja mig og fleiri aðdáendur þín og Ninju Tíbrár
Komment by Erna — Tuesday - 29.January 2008 @ 10:19
hún er klár þessi litla dúlla, hefur það í beinan legg frá mömmunni. ég þarf nú að fá að koma í hemsókn bráðum og kíkja á ykkur gellurnar, sérstaklega þá eldri og fallegri ((sú yngri er meiri dúlla en sú eldri klárlega einstaklga, stórfenglega falleg og skemmtileg))
Komment by ómar — Wednesday - 30.January 2008 @ 17:47
Hæ sætu skvísur!
Loksins er þessi síða komin í lag.
Nú mun maður fylgjast með.
Flottar myndirnar!
Ninja er brosmild eins og mamma sín.
Alger snúlla.
Hafið það gott.
Kveðja
Hulda
Komment by Hulda Björk — Monday - 4.February 2008 @ 23:37