Ofurhetjur.com

Myndir! =)

Monday - 4.February 2008

Fallegust í Fellsmúlanum
Ninja Tíbrá að borða skyr í Fellsmúlanum í lok nóvember. Síðasti skyrslagurinn áður en við fluttum í Grafarvoginn - heldur betur fjör!


Frænkurnar á aðfangadag
Ísabella Sól og Ninja Tíbrá, yndislegu frænkukrúttin, í banastuði í Glaðhúsinu á aðfangadag að halda uppi fjörinu!


jólakrútta
Á aðfangadag að stelast í skrautið á pökkunum frá Ömmu og Afa - NAMMI NAMM - frábært skraut!


5 gellur í Eyjum
5 gellur í Vestmannaeyjum milli jóla og nýárs! Ég, Herdís, Sunna, Ninja Tíbrá og Ísabella Sól að lesa bók í banastuði!


Grettudúlla
Litla krúttan að gretta sig í brúðkaupi í Eyjum milli jóla og nýárs!


Grallari
Litli grallarinn að prakkarast í brúðkaupinu, ótrúlega pen í fína kjólnum.


Singstar
Krúttulingurinn í Singstar heima hjá Sunnu og Oliver.


Málningakrútt
Gellan fékk sápumálningu til að leika með í baðinu frá jólasveininum á aðfangadag - vakti heldur betur lukku!


Snjókallarnir
Ísabella Sól og Ninja Tíbrá í snjónum í janúar - vorum úti á sleða og það var sko æði!


Brosmilda krúttan í baði
Brosmildust í baði!


dúkkuknús
Ninjukrúttið og dúkkukrúttið í baði! Æðislegar dúllur saman!


koss
Ninja sæta að kyssa dúkkuna sína - algjörlega yndislega fallegt!


Fallegust í heimi!
Frábært bros - falleg augu!


Svínið
Hvernig segir svínið? OINK OINK! (..og hljóð og svipur til að fullkomna lúkkið)


Sterkust
Hvað ertu sterk? SVOOOOOONA STERK!!!


hláturskast
Munur að eiga svona frábærlega skemmtilega mömmu ; )


Sólargeislinn í snjógallanum
Sólargeislinn minn í snjógallanum, úti að ,,blabbla” (þýðing: labba) í gær!



8 komment

  1. þú er nú meira sætabrauðið Ninja Tíbrá! alveg yndisleg!;)

    Komment by Jóa — Monday - 4.February 2008 @ 10:46

  2. jii hvað hún er mikil dúlla!! verð nú að kíkja í heimsókn næst að degi til svona til að að sjá litlu dömuna, maður er alltaf að sniglast eitthvað um að næturlagi ;-) á myndinni þar sem hún er að sýna hvað hún er sterk þá er hún svo sláandi lík þér! ekki það að mér finnst þú reyndar eiga mjööög mikið í henni en þessi svipur er eitthvað líkur einhverjum svip sem þú bregður upp ;-) annars bið ég bara að heilsa í bæinn…:-)

    Komment by sonjagisla — Monday - 4.February 2008 @ 12:13

  3. Hvernig er það Sonja mín - er ég alltaf að hnykkla vöðvana á djamminu? ;)

    Komment by Anna Sigga — Monday - 4.February 2008 @ 13:18

  4. Æðislegar myndir;)

    Komment by Guðný frænka í DK — Monday - 4.February 2008 @ 18:36

  5. Vííííjú, loksins myndir…þetta er nú alveg til þess að láta mann sakna ykkar alveg í klessu! Knús frá akureyrinni

    Komment by Andrea — Monday - 4.February 2008 @ 19:27

  6. Sætust ;) Sumir svipir minna óneitanlega á mömmuna, þó sérstaklega svínið, oink oink :)

    Komment by gveiga — Wednesday - 6.February 2008 @ 12:19

  7. hæhæ sæta Ninju krútt
    Rosa flottar myndir af þér, æðislegt að fá þig í heimsókn um daginn. Þú ert svo mikil bjútibolla….þúsund knús og kossar til þín og múttu þinnar :)

    Komment by Sigurlaug og Einar Már — Thursday - 7.February 2008 @ 13:14

  8. Yndislegt að fá myndir af fallegasta ömmubarni í heimi. Komið þið oftar í heimsókn, við afi söknum ykkar. Amma Gróa

    Komment by amma Gróa — Thursday - 7.February 2008 @ 13:34

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu