Ofurhetjur.com

Seytján mánaða í sjálfstæðisbaráttu

Friday - 8.February 2008

Í dag er dálítið skringilegur dagur í mínu lífi. Í dag er settur dagur fyrir barnið sem ég varð ólétt af í byrjun maí í fyrra. Sumarið var ansi gott, ég var að verða mamma í annað sinn, leið stórkostlega - hefði ekki mögulega getað verið glaðari! Í lok sumars misstum við fóstur.

Dagurinn er búinn að vera mjög skrítinn, pínu doði í gangi, ákveðið sorgarferli.

Ninja Tíbrá, sólargeislinn minn er sautján mánaða í dag! Vá hvað tíminn líður hratt! Eftir mánuð er hún orðin eins og hálfs árs - ótrúlegt hvað þessi litla stórbrotna vera er búin að auðga líf mitt! Hún hljóp hérna um í allt kvöld í banastuði á brókinni einni fata (því hún er svo sjálfstæð að suma daga fer hún ekki í föt nema þau sem hún ÁKVEÐUR að klæða sig í og henni verður ekki haggað svo auðveldlega hehe) með töskuna sína á bakinu og söng ,,tassa tassa, tassa tassa, é tassa..” (taska taska - lagið úr Dora the Explorer). Algjööör dúlla! Svo vildi hún nú fá að sjóða allar duddurnar sínar og upphófst leitin mikla af snuddunum endalaust mörgu, hún var hérna eins og ægileg vinnukona, móð og másandi því hún hljóp og leitaði í hverjum króki og kima og reyndi að finna hverja einustu duddu og klappaði svo ægilega í hvert sinn sem hún fann duddu, kallaði á duddurnar og var hin alvarlegasta á svipinn þegar hún fékk ekkert svar! MESTA KRÚTTIÐ! =)

Kvöldið var svo skemmtilegt að hún var dauðuppgefin hér klukkan sjö og sagði: ,,mamma, pela lúlla!” og ég hlýddi prinsessunni, hitaði pelann og breiddi yfir gullið mitt sængina og hún var sofnuð á þrem mínútum.

Ninja tekur koppaþjálfuninni með sínum eigin karakter, kallar sko ekki allt ömmu sína og nennir sko ekkert að hafa þessa bleyjudruslu, vill bara brók takk! Í síðustu viku var ég að fara að vekja hana í morgunsárið til að ég kæmist í vinnuna og hún til dagmömmunnar og lyfti sænginni og tók eftir að hún var bleyjulaus! Þá hafði mín farið úr náttbuxunum, losað smellurnar á samfellunni og tekið af sér bleyjuna um miðja nótt!!! Ég átti ekki orð yfir þessu gáfaða barni mínu! Hún var að sjálfsögðu ekkert búin að pissa í rúmið, enda sannkallaður snillingur sem fer sínar eigin leiðir! ;)

3 komment

  1. Ninja er náttúrulega að drepast úr kláru!!!
    Knús og kossar til ykkar, sætu stelpur! :)

    Komment by Elísabet — Saturday - 9.February 2008 @ 18:01

  2. knús knús til ykkar fallegu stúlknanna!

    Komment by ómar — Sunday - 10.February 2008 @ 22:20

  3. tíhí, ég þekki nú svona sjálfstæðisbaráttu;) og líka töskulagið úr Dóru!!;) knús til ykkar mæðgnanna, þið eruð by the way, ALVEG EINS, sami karakter sem skín í gegn, sömu augu, sama glaðlyndið, gretturnar, svipirnir og brosið…. allt alveg eins;) copy paste þarna í gangi;)

    Komment by Erna — Sunday - 10.February 2008 @ 23:08

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu