and then there was the snow..
Sunday - 10.February 2008
Man einhver eftir ,,Vinabókunum” sem allir áttu í grunnskóla? Ég man allaveganna ægilega vel eftir þeim. Það var aðalmálið að skrifa í svoleiðis og fá alla til að skrifa í sína, þar átti maður að skilgreina nafn, heimili, systkini, uppáhalds bók, hverjum maður er skotinn í og uppáhalds mat - ef ég væri að fara að skrifa í svoleiðis bók núna - myndi ég klárlega setja Pekingönd sem uppáhalds matinn minn! Við elduðum svoleiðis í gær og vá, ég lokaði augunum, fékk gæsahúð og er ekki frá því að veröldin hafi snúist í smá stund inni í hausnum á mér, vellíðanin var slík!
Ég fann mína svona vinabók um daginn, frá því ég var í grunnskóla og þar voru gellurnar allar búnar að skrifa, allar búnar að setja Xxxxx fyrir þá sem þær voru skotnar í eftir því hversu margir stafir voru í nafninu þeirra - frekar hressandi! Ég var sko skotin í Jóhanni! Þetta var endalaust skemmtileg lesning, dagbók berts var vinsælasta bókin og ég fletti og las þetta og fannst þetta æði, þegar ég fletti bókinni fann ég merkilegustu færsluna af þeim öllum! Ég fékk GUÐJÓN YFIRBJÖRNS til að skrifa HAHAHAHA, hann var sko greinilega vinur minn þó svo hann hafi ALDREI lært að nafnið mitt, 10 ár mín í Grunnskólanum á Eskifirði! Hann las alltaf upp: ,,Anna er hún mætt?” og ég svaraði: ,,Já en ég heiti samt sko Anna SIGGA!” og hann sagði: ,,Já Anna mín, ég hef það í huga” og boraði endanum á gleraugunum í nebbann og eyrað og smakkaði. Ég lá hérna heima í hláturskasti að lesa þetta allt saman, Guðjón var jú skotinn í Auði á bókasafninu og skráði engin x fyrir það heldur setti nafnið - mjög djarfur
Ég sit hérna heima í kotinu að hlusta á Death cab for cutie í gleðivímu (sökum stórbrotinnar tónlistar) að skoða myndir, rifja upp gamlar minningar og skemmti mér konunglega! Ég ákvað því að skella nokkrum frábærum inn frá síðustu dögum! =)
Hér er ein af Fritz og Ninju Tíbrá þegar þau eru að knúsa dúkkukrúttið í regngallanum þegar Pabbinn kom frá París! =)
Næstu myndir eru allar frá æðislegum snjó-stuðdegi þegar við fórum í göngu með Dimmu (hundinn hennar Þórhildar) og borðuðum ægilegt magn af snjó! =)
Hahahaha, ég fann einmitt eina svona bók fyrir ekki svo löngu síðan og þá virðist vera að Vignir nokkur Örn hafi verið sá allra vinsælasti - samkvæmt nákvæmri talningu minni á öllum x-unum
Alltaf gaman að sjá myndir af ykkur mæðgunum - svo sætar alltaf hreint
Valur Elí má nú alveg sjá af smá hári handa vinkonu sinni, hann er á leiðinni í þriðju klippinguna síðan hann fæddist - hann verður eins og úfin hæna á no time litla skinnið
Þú sparar allavega peninga á hárleysi Ninjunnar, enginn klippingakostaður svona hingað og þangað
Knús frá okkur á austurhjaranum!
-gveiga og co.
Komment by gveiga — Tuesday - 12.February 2008 @ 12:25
heyrdu nu mig.. hvert fór kommentið mitt!
hahahahahahaha þad er of skemmtilegt ad rifja upp svona skemmtilegar minningar!
hriklega er ninja sæt! enda lík móður sinni!
p.s þetta var vvæmið komment! hahaha
Komment by sara — Tuesday - 12.February 2008 @ 22:59
Hæ sætu mæðgur!
Þið eruð svo endalaust flottar… takk fyrir heimsóknina um daginn, sjáumst svo örugglega í fermingunni í mars
knús úr snjónum í víkinni
Katrín og gullmolarnir
Komment by Katrín Dröfn — Wednesday - 13.February 2008 @ 00:49
hehehehehe,, ég man eftir þessum bókum,, þetta var sko aðalmálið! krúttlegar myndir af ykkur,, geggjaður regngallinn á babyborn! var hann keyptur í toysrus?
Komment by Erna — Wednesday - 13.February 2008 @ 10:05
Friðgeir keypti Babyborn regngallann handa Ninjunni sinni í París, það eru sko stígvél og alles =) Ninja var ekkert eðlilega glöð yfir að fá pabbann sinn heim ooooog ný Babyborn föt því þessi dúkka dröslast með henni útum allt! =)
Komment by Anna Sigga — Wednesday - 13.February 2008 @ 11:38