Ofurhetjur.com

lyftaragella & afastelpa

Friday - 15.February 2008

Við mæðgur komum við í vinnunni hjá pabba í gær á leið okkar heim úr okkar daglega starfi. Það var nú ekki lítill fögnuðurinn þegar hún sá afa sinn eins og alltaf. Ninja Tíbrá fékk að keyra lyftarann með afa og vildi sko alls ekki fara heim! Hún skríkti úr gleði og því miiiiður var ég ekki með myndavélina, hér eru myndir úr símanum - eins og sjá má er afi bestur og lyftarinn sko MEGA-skemmtilegur!

3 komment

  1. hahaha litla hamingjusama gull! :)

    æði

    p.s vá ég set um bloggið þitt! hahaha

    Komment by sara — Friday - 15.February 2008 @ 23:35

  2. Hún er nú meira krúttið hún Ninja Tíbrá! Það er aldeilis hvað henni finnst gaman á lyftaranum með afa sínum. Kannski hún sé bara búin að finna draumastarfið ;)

    kveðja frá dk,
    Berglind og Jónína Margrét

    Komment by Berglind og Jónína Margrét — Saturday - 16.February 2008 @ 11:00

  3. Ég man nú bara hvað okkur fannst spennó að fara á lyftara með Dodda frænda! ;) fórum saman inní Friðþjóf einhvurn tíman og það var sko agalega spennandi!!!! ;)
    Verð að fara að hitta ykkur gellurnar!

    Komment by Nanna — Saturday - 16.February 2008 @ 22:41

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu