Ofurhetjur.com

Bænastund..

Monday - 18.February 2008

Þorvaldur, kærastinn hennar Regínu minnar lenti í skelfilegu bílslysi á Akranesi fyrr í dag. Hann hefur ekki komist til meðvitundar og er núna haldið sofandi. Það er núna í augnablikinu verið að kljást við heilablæðingu niðri á Landspítala og ég er að bíða eftir nýjustu fréttum um hvernig sú aðgerð gekk. Ég vona að allir biðji fyrir honum og við sendum honum fallega strauma. Regína ætlar að koma til mín í kvöld og gista hjá okkur og svo verður haldið upp á spítala snemma í fyrramálið aftur. Við mæðgur sendum hlýhug og fallegar hugsanir til allra sem Þorvaldi standa nálægt.

5 komment

  1. já þetta er svakalegt..maður í nettu sjokki…slysin eru ekki lengi að gerast og gera sannarlega ekki boð á undan sér…sendum bænir og hlýja strauma á alla :) knús knús Steinka og co

    Komment by Steinunn og co — Tuesday - 19.February 2008 @ 13:19

  2. Úff fékk alveg hroll! Vonandi blessast þetta allt… Gott að eiga góða frænku eins og þig þegar svona gerist…

    Komment by Nanna — Wednesday - 20.February 2008 @ 15:39

  3. knús til þín sæta mín! ég sendi honum fagra strauma…..

    Komment by erna — Thursday - 21.February 2008 @ 12:41

  4. úffff
    Hugsa til ykkar

    Knús

    Komment by Pálína — Sunday - 24.February 2008 @ 16:53

  5. Takk annsa min:* eg kem til ykkar mæðgna í vikuni og fæ kannski að lúlla smá :)

    knús á ykkur

    Komment by Regína — Tuesday - 26.February 2008 @ 08:17

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu