Dísúss kest!
Tuesday - 26.February 2008
Ninja Tíbrá er svo mikill snillingur! Ég held ég hafi nú ekki minnst á það áður! Orð vikunnar eru Tíramisú (eftirrétturinn unaðslegi) og Dísúss!
Hún segir ALLT sem maður lætur út úr sér og er svo fljót að grípa orðin og nota þau svo seinna að ég er alltaf furðu lostin í hvert sinn! Steinkan okkar kenndi henni að segja dísúss. Því næst lærði hún Dísúss kræst og segir núna dísúss kest skælbrosandi við hin ýmsu tækifæri
Við erum búnar að vera svo busy upp á síðkastið að við erum nánast aldrei heima. Ninja Tíbrá var svo fegin áðan að fá að leika með SITT dót í SÍNU herbergi að það var ekkert smá, skríkti hérna úr gleði og lokkaði mömmuna sína í kaffiboð í prinsessuherberginu - YNDISLEGT!
Hún var í svo miklu kúristuði hérna í gærkveldi að hún sagði ,,mamma, sitja!” í sínum hundaskipunartón og benti mér að sitja, ég settist niður í sófann og þá sagði mín: ,,Ninna kúsa kyssa mamma” Ég var alveg snortin yfir kraftaverkinu mínu sem lá í fanginu á mér með hendurnar utan um hálsinn, kyssti mig í gríð og erg á meðan við spjölluðum um daginn og veginn, fórum með bænirnar, lásum bók og kúrðum þvílíkt. Þetta entist í rúmlega hálftíma (ótrúlegt miðað við hennar athyglisspan) eða þangað til hún sagði: ,,Ninna lúlla pela” og leiddi mig inn í herbergi, ég hitaði pela og hún fór að lúlla þessi elska
..Ég horfði á No Country for Old man um daginn, svaf allan tímann og lét ,,krádið” sem var í vídjókúri hér um að dæma tómleika hennar og ætla mér ekki að gera aðra tilraun til að vaka yfir henni - hvað er við þessa mynd sem allir lofsyngja?
Lýst vel á heimsóknarplanið ykkar Ninju
En vá hvað ég er sammála þér með no country for old men…..ekki að fyla hana, frekar langdregin og skrítin….samt eru allir aðrir dolfallnir yfir henni.
Komment by Sigurlaug og Einar Már — Thursday - 28.February 2008 @ 10:22
hahahahahahaha ohh en yndisleg hun Ninja Tíbrá! eg er snortin!
p.s segir madur þad kannski ekkert.. ?
Komment by sara — Thursday - 28.February 2008 @ 18:58
Litla rúsínan! Alger perla! Rosa góð að fara að sofa og kúra í mömmu sína.
Það er sko hægt að segja að þú sért rosalega rík að eiga eina svona snúllu.
Ég hlakka ROSALEGA til á laugadaginn. Sara ef búin að gefa grænt ljós á að ég megi koma með ykkur að versla hahahahaha…
Sjáumst á laug sæta.
Komment by Hulda Björk — Thursday - 28.February 2008 @ 22:10
hún er sko æði!!!!!!!!!!
Komment by erna — Friday - 29.February 2008 @ 11:27
hehe Ninja Tíbrá er náttúrulega ekkert nema snillingur!
hlakka rosa til að hitta ykkur mæðgur á eftir :*
Komment by Regína — Monday - 3.March 2008 @ 04:44