Ofurhetjur.com

Ferskleiki..

Wednesday - 5.March 2008

Ég ákvað (þegar sófinn er fullur af þvotti sem á eftir að brjóta saman, straubunkinn svimandi hár og vinna situr á hakanum) að dunda mér í heimasíðunni. Ég setti frábæra tónlist á og fór að föndra og voila - nýtt lúkk er komið í gagnið! Hvað finnst ykkur?

Næst þegar andinn kemur yfir mig ætla ég þó að græja myndaalbúmið, það gengur ekki lengur þetta endalausa myndaleysi!

Ninja Tíbrá fór í 18 mánaða skoðunina í dag og læknarnir voru að sjálfsögðu orðlausir yfir undrabarninu sem syngur ,,písommí” (Piece Of Me með Britney Spears, það er sko uppáhaldið þessa dagana) og klæðir sig svotil sjálf (reyndar fer bolurinn stundum á fæturnar en það er nú algjört aukaatriði.)

Daman er orðin 11,5kg og 83cm og heldur sinni kúrfu vel. Ólöf ljósmóðir sprautaði hana svo í lokin og Ninja Tíbrá var nú ekkert að væla yfir því heldur setti í brúnir, horfði illum augum á Ólöfu og sagði hneyksluð: ,,ÁI ÓLÖF!”

The GIRLS ætla að koma á morgun til okkar í mat, spil og stuð. Við ætlum allar að láta eitthvað matarkyns af hendi rakna og ég get varla beðið! Við höfum nú alltaf verið þekktar fyrir að vera ægilegir stuðboltar og morgundagurinn verður án efa gargandi snilld! =)

8 komment

  1. Vá, vá, vá, flott nýja síðan… þú ert bara algjör snilli!!! Hlakka svo til að fá að sjá fleiri myndir. En síðan er æði! Og Ninja er líka snillingur enda frænka mín;)

    Komment by Guðný frænka í DK — Thursday - 6.March 2008 @ 00:17

  2. Flott síða hjá þér ;)

    Komment by Nanna — Thursday - 6.March 2008 @ 11:54

  3. Hí, hí, hí algjör snilld að skamma Ólöfu svona fyrir píningarnar. Glæsilegt nýja lúkkið á síðunni, rautt og stelpulegt :)

    Komment by Ásta og Elsa Björg — Thursday - 6.March 2008 @ 12:33

  4. Rosa flott nýja lúkkið, enda flottar mæðgur á ferð :)

    Komment by Sigurlaug og bumbi — Friday - 7.March 2008 @ 13:14

  5. Þú ert rosa dugleg. Töff nýja lúkkið. Nú er bara að standa sig með myndaalbúmið ;)

    Komment by Pabbinn — Friday - 7.March 2008 @ 13:29

  6. Flott breyting hjá þér Annsa mín! Mér finnst gott hja Ninju að skamma hana soldið, það á nu ekki að meiða svona litlar pæjur ;)

    knús á ykkur:*

    Komment by Regína — Friday - 7.March 2008 @ 20:36

  7. hehehehe já þetta er nú meiri snillingurinn….alltaf jafn gaman að tala við hana í símann líka….þar er hún bara í hörku samræðum hehehehe hef aldrei heyrt annað eins hjá 18 mánaða gömlu barni hehehehehe:) Sendum ykkur risaknúsing…hittumst nú kannski í dag:) Planið að fara í rúmaleiðiangurinn mikla:) þið mæðgur komið kannski með í það hehehe:)

    knús kroppalingarnir í kóp:)

    Komment by Steinunn og co — Saturday - 8.March 2008 @ 07:55

  8. já gott útlit! Alltaf svo gaman að sjá manns eigins afleggjara þroskast og verða ferlega klár ;)
    Ath - nýjar myndir hjá okkur, ótrúlegt en satt… Vonandi fleiri fljótlega!
    Og vonandi hittumst við nú fljótlega… Næsta vika hjá mér er alveg frí ;)

    Komment by Bryndís — Monday - 10.March 2008 @ 17:26

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu