Altalandi páskarúsína
Monday - 24.March 2008
Þessir páskar hafa ekki verið þeir allra sprækustu. Við mægður erum búnar að vera lasnar. Eyrnabólga hjá litlu sæt og lungnabólga hjá stóru sæt. Við fórum austur í smá stund með mömmu, pabba og Dodda. Fórum í fermingu hjá Garðari og ætluðum að vera fram yfir helgi en svo voru allir bara lasnir þannig að við brunuðum bara í bæinn aftur, fjörðurinn fagri stendur nú samt alltaf fyrir sínu. Komum aftur í gær þegar Steinunn sæta mín átti afmæli! Doddinn minn á svo afmæli á morgun (tæknilega séð í dag því það er komið eftir miðnætti og 24.mars genginn í garð) þannig að það er nú eins gott að kýla bara í sig íbúfen og vera sprækur því dagarnir bjóða nú alveg upp á heljarinnar fjör, sérstaklega morgundagurinn - það verður eitthvað stuð =)
Þegar við komum svo heim í kotið okkar eftir austurför var allt í drasli hérna heima og Ninja Tíbrá er nú ekki alltof vön því þannig að hún ákvað að siða mömmu sína til og horfði stíft á mig, benti á hrúguna af hreinum þvotti í sófanum og sagði: ohh, laja til! Ég hlýddi auðvitað og núna er allt tandurhreint og fínt =)
Krílakrúttin fóru í páskaeggjaleit í morgun, Doddi, Patti, Ísabella & Ninja. Guð hvað það var krúttlegt!
Elísabet kom hérna áðan til okkar og er auðvitað MEGA-æðisleg í sér eins og alltaf, kom með geggjuð Línu-föt handa Ninju Tíbrá því hún missir sig alltaf í Svíþjóðinni, oh hún er svo mikið yndi!
Friðgeir er í Danmörkinni hjá Guðnýju og er búinn að vera í viku og verður í nokkra daga í viðbót. Við heyrðum í honum í morgun, páskaknús í gegnum símann!
Vá, ég veð hérna úr einu í annað en það er nú eitt sem ég verð að koma að hérna: NINJA TÍBRÁ ER OFFICIALLY ORÐIN ALTALANDI! Það er EKKERT sem hún getur ekki sagt, það eina sem vantar upp á er að hún fari að forma setningar með meira en fjórum orðum! Hún segir öll orð án nokkurra erfiðleika og skilur ALLT! Hún segir líka orðið nokkra orða setningar eins og “hvar er Dorgeir Tistján” (þýðir hvar er Þorgeir Kristján) og “amma og afi úti” og svona en samt vantar upp á að hún nýti sér margar setningar í einu og lengri setningar. Jeremías hvað ég er óendanlega stolt mamma - hún segir líka alltaf já eða nei þegar maður spyr hana hvort hún vilji eitthvað. Ekki slæmt að vera 18 mánaða og altalandi engill! Hún er líka búin að vera svo yndisleg við mig núna á meðan ég er búin að vera lasin, ég hef náttúrulega verið dálítið tuskuleg og ein með hana og hún sýnir þessu fullan skilning, kyssir mig, knúsar og klappar og segir: mamma Ninna esskla (sem þýðir Mamma ég elska þig!) Vá hvað ég finn það samt núna á meðan ég er lasin hvað það er frábært að eiga fólk að sem þykir vænt um mann, mamma, pabbi, Doddi, Steinka, Siggi, Patti og Ísabella eru öll búin að vera æði! Það er sko frábært að eiga svona yndislega fjölskyldu sem hleypur með manni undir bagga þegar eitthvað er að og hikar aldrei, ÓMETANLEGT að eiga svona gott fólk að!
Það verður reunion hjá okkur Eskifjarðargellunum hérna fyrir sunnan um næstu helgi og halla malla hvað ég er spennt! Ég fæ nú meira að segja að passa upp á að drösla Guðrúnu Veigu heim í háttinn eftir Reunionið því hún ætlar að gista hérna hjá mér. Ég og mín kæra Sara erum sko að tapa okkur úr spenningi og þurfum nú aldeilis að fara að klára að skipuleggja þetta, svona óskipulag er ekki okkar tebolli! Ég held sko að þetta verði LEGEND.. wait for it ..ARY eins og hann Barney vinur minn í How I Met Your Mother myndi orða það ![]()
ji ég hlæ nu ekki oft upphátt að bloggum.. en mér finnst Ninja svo hrikalega mikill snillingur! já þessi litli engill
glataður þessi lasleiki samt! það margborgar sig ad skella i sig smá verkjatöflum.. en þó ekki óverdósa.. ég lenti nebbla óvart í því um jólin þegar ad eg fékk amerískar verkjatöflur hja birni bródur, þær voru svo litlar að ég tók að eg held 7 já sjö því mér fannst þær ekkert virka! skundadi svo i jólaboð á sólveigu jaaá þar má segja að eg hafi verið orðin svolid sky high! já ekki orð um þar meir! ég var ad blogga á thegirls! jésus plana plana plana.. asap!
love,ég
Komment by sara — Tuesday - 25.March 2008 @ 13:49
Ég veit ekki hvað ég er að spá að ráða mig útáland í sumarvinnu þegar ég gæti eytt mínum frítíma í sumarfíling með ykkur mæðgum, eins gott að þið verðið duglegar að koma austur og öfugt, annars verður þetta barn orðið fullorðið áður en ég veit af!
Komment by Andrea — Tuesday - 25.March 2008 @ 23:28
Takk fyrir skemmtilegt kvöld þarna um daginn! Verst að Ninja altalandi hafi verið farin að sofa. Hlakka til að hitta ykkur sem fyrst og sjá Ninjukrúttið í Línufötunum!
Komment by Elísabet — Wednesday - 26.March 2008 @ 15:36
heyrðu Anna sigga min! ég vil fá að farað sjá myndir inná þessari síðu! verður að fara að laga þetta
Komment by Regína — Saturday - 29.March 2008 @ 21:13