Auðkennislykillinn - rót alls ills!
Monday - 31.March 2008
Ég er þungi á íslensku þjóðfélagi. Ég finn mig tilneydda til að mótmæla upptöku auðkennislykla þar sem þeir gera líf mitt leitt og valda mér afar miklu hugarangri. Þeir verða til þess að ég á erfitt með svefn og ekki nóg með það, mínir auðkennislyklar hafa ekki einungis áhrif á mig, heldur þjóðfélagið í heild sinni.
Þegar ég týni auðkennislykli gefur auga leið að ég þarf nýjan í stað þessa týnda. Þegar ég fæ nýjan liggur það í hlutarins eðli að hann týnist undir eins. Þegar ég fæ svo enn annan fer bankastarfsmaðurinn að líta mig hornauga, það er þetta sem veldur svefntruflunum hjá mér.
Þetta endalausa útlát auðkennislykla hefur ekki verið tekið inn í fjárhagsáætlun bankanna og standa þeir á gati þegar þeir sjá þarna í sínu bókhaldi stórar summur sem ekki er hægt að gera grein fyrir með neinum vitrænum hætti. Þarna tapa þeir stórfé. Það eru svona hlutir sem valda halla bankanna, halla þjóðfélagsins í heild sinni og að lokum hækkun stýrivaxta. Þetta byrjar allt með litlu hlutunum, sem vinda síðar upp á sig og verða að snjóbolta sem erfitt er að stoppa. Þegar boltinn er farinn að rúlla á ógnarhraða hækkar bensínverð, sem veldur mótmælum, sem veldur því að ég verð sein í vinnuna. Þetta veldur hækkun verðbólgu, hækkun matvælaverðs, hækkun lána og eins og gefur að skilja, er það á þessum tímapunkti sem þetta er farið að hafa áhrif á þjóðfélagið í heild sinni. Það að ég týni þessum auðkennislyklum í hrönnum veldur því öllu þessu slæma og er það ósanngjarnt að þjóðfélagsþegnar sem passa upp á sinn auðkennislykil eins og demtantshring ömmu sinnar þurfi að súpa seiðið af mínu misminni. Að þessum sökum finn ég sterka löngun til að mótmæla upptöku auðkennislykla.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og því gerði ég grein fyrir þessu hugarangri mínu við stórkostlega skilningsríka þjónustufulltrúann minn hjá bankanum fyrir nokkru, þetta er bréfið:
,,ég er sumsé að vandræðast með þennan blessaða auðkennislykil, ég vil helst ALDREI þurfa að nota þetta því ég veit vel að ég á eftir að týna honum undir eins og kemst þá aldrei inn í einkabankann minn, ég mun biðja um nýjan og hann mun eiga sömu örlög og hinn þannig að í raun er þetta bara tilkostnaður fyrir ykkur, að þurfa að leggja út fyrir endalausum auðkennislyklum fyrir mig, aulann sem öllu týni. Þið eruð nú þegar að panta fyrir mig ný debet- og kreditkort svo oft á ári að ég hef fengið fyrir það skammir, ekki vil ég nú setja ykkur endanlega á hausinn. Ég hef hingað til ekki þurft að nota hann en núna (þegar ég skrái mig inn í einkabankann) grátbiður bankinn mig um að nota þennan sora. Ég hef grun um að ég hafi aldrei fengið þennan ágæta lykil þar sem ég bjó í Danmörku þegar þessu var dreift á landsvísu. Það getur nú svosem vel verið að ég hafi á einhverjum tímapunkti fengið þennan óvin minn í hendurnar en glatað honum ,,med det samme” (enda óvinur minn og því engin ástæða til að passa sérstaklega upp á).
Ég er tilbúin að beita öllum mögulegum brögðum og töfrum til að sleppa við þessa fjötra, allaveganna sem lengst. Er fræðilegur möguleiki að komast hjá því að nota þennan blessaða lykil eða fresta því lengur? (og mundu, það verður stórt sár í fjáhag Landsbankans því svo mörgum mun ég týna!)”
Minn stórgóði þjónustufulltrúi svaraði mér um hæl:
,,Þetta er allt í lagi, ég set mig bara í samband við bankastjórnina og þeir geta gert ráð fyrir auðkennislykla-týnleika að þinni hálfu svo þeir geti sett það í fjárhagsáætlun næsta árs. Ég er hræddur um að þú neyðist að taka þennan erkióvin upp á arma þína vegna þess að mér skilst að bráðum eigi að loka á alla sem ekki nota lykilinn.”
Núna get ég sofið örlítið værar, þegar ég veit að næsta fjárhagsár verður mun betra, fyrirsjáanlegra á allan máta. Það þarf ekki að kvíða falli krónunnar eða óvæntra stýrivaxtahækkanna, þetta hefur verið tekið inn í fjárhagsáætlun og því biðst ég hér með afsökunar við alla sem hafa nú þurft að súpa seiðið af mínum mistökum þetta árið. Lánahækkanir, mótmæli í Ártúnsbrekku, hjónaerjur, ég tek þetta á mig.
já reikningurinn minn er kominn í póst til þín, allveg á tæru að ég er ekki að fara að borga upp þá verðbólgu sem þú skapar! ekki að ræða það!!
en annars, þú ert með göt í eyrunum, eru þetta ekki ágætis eyrnalokkar, getur verið með tvo, ef að svo líklega vill til að þú týnir öðrum þá ertu með hinn til taks!
Komment by Eyþór Jóvins — Monday - 31.March 2008 @ 23:17
Ég get sko bara alveg bjargað þér mín kæra! Minn eyðilagðist mjög fljótlega eftir að ég fékk hann og síðan þá hef ég notast við sms-varaleiðina, þetta er engin varaleið fyrir mig heldur bara AÐALleið!
Síminn er eitthvað sem yfirleitt er ekki langt undan og því þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að þurfa á auðkennislyklinum að halda! Þú getur gert “það” hvar og hvenær sem er, þeas komist inn á einkabankann þinn… Það eina sem þú þarft að gera er að virkja þetta í einkabankanum, það gæti reyndar kannski orðið örlítið vandamál í þínu tilfelli því þú þarft jú vissulega auðkennislykilinn til að virkja sms-VARAleiðina…
p.s. ég er búin að segja heitmanni mínum herlegheitin, hvenær eigum við að opinbera?
Komment by sonjagisladottir — Monday - 31.March 2008 @ 23:23
Eyþór: Athugull ertu að vita að ég er með göt í eyrunum! Góð hugmynd laxmaður - góð hugmynd!
Sonja: Vá hvað ég er glöð, nú get ég loksins breytt statusnum mínum á my SPACE og Facebook í Engaged
Við þurfum að finna dag, fá leyfi fyrir því að vera þrjár í hjónabandi og láta pússa okkur saman!
Komment by Anna Sigga — Monday - 31.March 2008 @ 23:30
já og ertu ekki einnig glöð að ég hafi fundið lausn á vandamáli þínu í sambandi við auðkennislykilinn, eða hvað?
Komment by sonjagisladottir — Tuesday - 1.April 2008 @ 12:07
Jú - stórkostleg lausn! Ég myndi nú ekki biðja þín nema með það á kristaltæru að þú myndir finna lausn á öllum mínum vandamálum og jafnvel alheimsvanda! =) Þú ert gullmoli Sonja mín, GULLMOLI!
Komment by Anna Sigga — Tuesday - 1.April 2008 @ 13:39
Snilldarpenni sem þú ert stelpa
Ég lá í kasti hérna yfir bankabréfinu, líður temmilega illa með það. Því mér fannst þetta svo fyndið að það spruttu fram tár, sit ég hér semsagt ein kl 9 að morgni fyrir framan tölvuna mína, grenjandi úr hlátri.
Ég held að svefntruflanir út af auðkennislyklinum ættu að hætta að angra þig. Frekar að þú eigir skrítna vinkonu hahhahaha
Kv Skrítna vinkonan í hláturstremma
Komment by Pálína — Wednesday - 2.April 2008 @ 09:04
Þú verður bara í beinni við mig í sumar elskan, en ég verð þjónustufulltrúi hjá bankanum sem fer brátt á hausinn útaf þessu auðkennislyklabruðli þínu
Þá þarftu bara eitt sms á frænku og allt klárt 
Komment by Nanna — Wednesday - 2.April 2008 @ 17:13
hahahahahahahaha…aðra eins ritgerð um auðkennislykla hef ég aldrei lesið
Komment by Sigurlaug og bumbi — Friday - 4.April 2008 @ 23:32
Sælar mæðgur.
Mikið væri ég til í að hitta ykkur. Ótrúlegt hvað Ninja litla er skír. Biðjum að heilsa liðinu þínu.
Ríkey og co.
Komment by Ríkey — Sunday - 6.April 2008 @ 15:42
HAHAHA, þetta er alveg met! Ég lenti einmitt í því að gleyma þessum auðkennislykli heima um helgina en mín skellti sér til Svíþjóðar… þetta varð til þess að enginn peningur var á danska kortinu mínu og var ég því algjörlega öðrum háð í peningamálum þessa helgina!!! Ekki það besta en reddast alltaf:D
Komment by Guðný danapía — Tuesday - 8.April 2008 @ 09:52