Lífið og tilveran..
Monday - 14.April 2008
Við mæðgur erum eiturhressar. Bryndís, Hinrik og Ásdís Iða eignuðust litla yndislega Hugrúnu í heimafæðingu 28.mars og Sigurlaug og Einar Már eignuðust líka yndislega stelpu 10.apríl. Við eigum eftir að fara að kíkja á litlu dúllurnar en það verður gert í þessari viku, ég vildi bara ekki kíkja með Ninju því hún er búin að vera með kvef og eyrnabólgu. Núna er það hins vegar algjörlega horfið á braut og loksins komið að því að fara til háls-, nef- og eyrnalæknisins. Við förum sumsé á morgun og þá verður ákveðið hvað verður gert í þessu eyrnabólgustandi á Ninjunni. Hún fær svo bullandi eyrnabólgur að núna upp á síðkastið hafa venjuleg sýklalyf hvergi nærri dugað og hún fengið sterkustu skammta sem völ er á. Það versta er að þegar einn sýkló-skammtur er búinn fær hún næsta í kjölfarið því bólgurnar virðast aldrei hverfa alveg. Þetta horfir hins vegar allt til betri vegar og að sjálfsögðu skánar allt með hækkandi sól og jákvæðninni sem drífur okkur áfram.
Annars er komið grill á svalirnar, Ninja segir alltaf: ,,Afi úti gjilla” og skælbrosir þegar hún sér það því hún er orðin ansi vön því að vera í æðislegum grillpartýum í Glaðhúsinu hjá mömmu og pabba. Hún er orðin svo dugleg, er stundum heilu dagana bleyjulaus og fær: ,,sjilpplinn” (stimpil) fyrir vikið! Hún er óskaplega sérvitur með þetta og óstjórnlega krúttleg, allt þarf að vera gert eftir hennar höfði og heima hjá mömmu og pabba pissar hún til dæmis ekki á klósettinu niðri, BARA uppi, annað er hreinlega ekki tekið í mál og þessu verður ekki haggað. Þetta gerir hún því Patrik pissar ALLTAF uppi og eru þau frændsystkinin með þessa sömu ægilega krúttlegu sérvisku.
Hún gjörsamlega elskar og dáir kisuna sem býr í blokkinni okkar, kisan bíður eftir okkur á morgnanna og verður alltaf ágengari í vinskap sínum og í morgun kom hún bara inn í bíl til okkar, ætlaði bara með til dagmömmunnar og Ninja Tíbrá var að sjálfsögðu himinlifandi, sagði bara: ,,pisa mej bíli Tótu. Ninna, pisa bojða gautinn Tótu, Tomma, Sunnu” þá átti kisa bara að koma með til Tótu og borða hafragraut með henni, Tomma og Sunnu =)
Pjása, kisan hennar Ágústu systur er kettlingafull og erum við mæðgur að spá í að fá okkur einn lítinn krúttlegan hnoðra í sumar =)
Hæhæ sæta mín
Jæja núna erum við mamma komnar heim, reyndar heim til ömmu ætlum að vera þar í nokkra daga meðan mamma er að jafna sig betur. Heyrumst fljótlega
Komment by Sigurlaug og prinsessan — Monday - 14.April 2008 @ 19:13
Jiiiminn hvað það verður mikið fjör ef þið fáið ykkur kisu!:-) Það fór pakki til þín í pósti í dag sem mun vonandi koma að góðum notum!
Komment by Andrea — Monday - 14.April 2008 @ 20:01