Húmoristi með eyrnablæðingar
Tuesday - 15.April 2008
Ninja Tíbrá vaknaði galvösk kl.6:00 í morgun og var ekkert á því að eftir að sólin væri komin upp, væri hægt að sofa, mamman var nú á öðru máli en þaaaaað er algjört aukaatriði. Við fórum því fram úr og prinsessan skondna stjórnaði heimilinu eins og svo oft áður. Hún er með ægilegar bendingar, ef hún er alveg handviss um hvað hana langar og er jafnvel örlítið óþolinmóð þá beygir hún handlegginn og kastar puttanum einhvernveginn beint fram með mjög ákveðnum hætti og bendir og segir hvað hún vill. Hún er nú samt alls ekkert frek, veit hvað hún vill en er alltaf til í að semja. Ef hún fær ekki það sem hún vill er hún yfirleitt sátt, enda aldrei langt í brosið. Í morgun þegar við vorum að röllta út í bíl í rólegheitunum (enda höfðum við sko nææææægan tíma) sagði mín: ,,Mamma bílinn Tótu, Ninna Patti heima sjómminn Sjubbana!” og hló svo ægilega - þá átti ég nú bara að skella mér til dagmömmunnar og hún ætlaði bara að vera heima með Patta sínum að horfa á Stubbana í sjónvarpinu (sjubba = stubbarnir, sjómminn = sjónvarpið.) Hún er með húmorinn í lagi þessi elska!
Ég, Ninja, Steinunn, Patrik og Ísabella fórum í Kringluna í gær og þegar við vorum að fara þaðan sá ég að það var að leka bló út úr eyranu á Ninju. Við fórum rakleitt upp á læknavaktina ,,okkar” (við erum orðnar eins og heimiliskötturinn þarna, allir læknarnir þekkja okkur orðið og afgreiðslugellan man kennitöluna hennar Ninju) og létum kíkja. Steinunn, Ísabella og Patrik voru í stuðningsliðinu. Ninja Tíbrá ,,eyrnabólgu-professional” settist í fangið á mér, hallaði höfðinu að mér og snéri eyranu að lækninum, já þetta er sko ekkert mál lengur! Svo þegar læknirinn var búinn að kíkja sagði hún: ,,oooog annan”, skælbrosti og snéri höfðinu til að minna lækninn á að kíkja líka í hitt eyrað. Hljóðhimnan var sumsé sprungin og ægileg sýking í gangi. Hún fékk dropa í eyrun og verkjastillandi fyrir nóttina en svo förum við mæðgur í dag til Háls-, nef- og eyrnalæknisins, eða HNE eins og þeir læknafélagar okkar kalla þetta. Læknirinn skrifaði ægilegt bréf á latínu handa okkur til að taka með. Við systur skemmtum okkur konunglega þegar við lásum þetta bréf, orðin voru ótrúleg skemmtileg, sum hægt að misskilja jafnvel, önnur enganvegin hægt að bera fram. Algjört lykilatriði að hafa húmor fyrir lífinu! Því miður voru valkostirnir tveir til að lækna þetta svo sannalega ekki fallegir, svo skuggalegir að ég fæ hroll. Ég vona innilega að hvorugur af þessum lausnarkostum verði valinn, heldur að það sé ,,the hidden third” sem HNE-inn komi með og er algjörlega sársaukalaus, svæfingarlaus og lyfjalaus =)
Nú er ég forvitin að vita hverjir þessir skuggalegu valkostir séu? Lykilatriði í sögum úr heilbrigðisgeiranum!
Komment by Andrea — Tuesday - 15.April 2008 @ 17:49
Æjaj, greyið Ninjan mín. Vona að henni batni nú fljótt og örugglega og að HNE-arnir geti gert eitthvað hrikalega sniðugt til að hjálpa henni.
Og já latneskan getur verið skemmtileg… þegar maður er í læknisfræði er maður kominn með mjög sérstakan latneskan einkahúmor… sem enginn skilur nema hafa lært latnesku haha!!
Komment by Guðný danapía — Tuesday - 15.April 2008 @ 21:59
Hehehe:) Já sjómminn með stubbunum hjá Patta er nú afar heillandi kostur:) hehehe:) Patti og Ísabella voru einmitt að ræða það hvar hún Ninja væri nú þegar þau komu heim úr leikskólanum:) En gott að það er komin niðurstaða í HNE málið:) verður bara að koma með nýja færslu á morgun um það til að spenntir lesendur fái að fylgjast með:) Ég ætla að sjálfsögðu ekki að uppljóstra neinu hehehe:)
knús Kópóliðið:)
Komment by Steinunn og co — Tuesday - 15.April 2008 @ 23:06