Apr 16
HNE

Við fórum sumsé til HNE í gær. Hann var afar elskulegur barnalæknir og svaraði öllum spurningum ungu, óreyndu mömmunnar með glæsibrag. Hann las latínubréfið sem ég sagði honum að mér hafi þótt ægilega fyndið og sagðist í fyrsta skipti vera að sjá þetta sem tákn á blaði en ekki afar skilvirk skilaboð sem myndu svara öllum heimsins spurningum og sá hvar skemmtilegheitin lágu. Hann skoðaði eyrun með risavöxnu tæki, sagði okkur að þetta myndi nú alls ekki líta vel út og að hann vildi fá hana í rör í bæði eyru og það strax. Næsti tími var eftir rúma þrjá mánuði en hann tók ekki í mál að bíða svo lengi, vildi fá hana um leið og eyrað væri aðeins búið að jafna sig. Hann færði til nokkra tíma til að búa til pláss fyrir Ninju og við förum í rör eftir tvær vikur, 2.maí nánar tiltekið. Það er á föstudegi, sem er alveg frábært því þá hefur hún helgina í að jafna sig og það verður sko lögð áhersla á afslöppun og dekur. Hann sagði að með því að koma strax í rörin myndum við losna við hina aðgerðina og aðra svæfingu sem hinn læknirinn hafði talað um. Hann útskýrði hvernig Ninju myndi líða núna og það var nú ekki fallegt, hún heyrir ekki vel því eyrun eru svo full af bólgum, sýkingum og slími en eftir rörin þá mun hún heyra betur, líða betur og auðveldara er að grípa fyrr inn í eyrnabólgur ef þær koma. Ég er sko alveg himinlifandi, þetta á eftir að ganga eins og í sögu og krúttu litlu á eftir að líða muuuuuun betur eftirá! =)

3 Komment

  1. sonja:

    en hvað það er gott að heyra :-) ég vona að allt gangi sem best dúllurnar mínar :-)

  2. Guðrún Veiga:

    Frábært að heyra að lausn við eyrnaveseni Ninjunnar sé í sjónmáli. Þið mæðgur tæklið þetta með stæl eins og allt annað ;)

    Knús!
    -gveiga

  3. Guðný danapía:

    Gott að heyra og vonandi að eyrnabólgurnar séu þá bara farnar “for good”. Síðast þegar ég talaði við Ninju fannst mér hún einmitt segja mjög oft HA!, veit ekki hvort það var virkilega af því hún heyrði ekki eða af því hún var nýbúin að læra orðið….
    Gangi ykkur vel með þetta allt og ég sendi hlýja strauma frá sólinni í DK;)

Kommentaðu

* Nauðsynlegt er að fylla út stjörnumerkta reiti