Tónlistaræði
Wednesday - 16.April 2008
Sumarið er tíminn! Mér finnst sumarið svo mikið uppáhalds. Þegar sumarið er búið og veturinn að nálgast finnst mér hann reyndar alltaf æði líka en sumarið er svona meira í uppáhaldi. Þá er hægt að grilla (eins og ég gerði í gær, kom reyndar ekkert nálægt grillinu eeeeen það er nú algjört aukaatriði). Þá er sumsé hægt að láta grilla fyrir sig. Þá er líka svo gaman að hlusta á frábæra tónlist, ég er með mismunandi vetrartónlistasmekk og sumartónlistasmekk, núna er sumargírinn klárlega kominn og uppáhaldstónlistin mín þessa dagana fær sko að óma hérna í íbúðinni og bílnum líka. Ninja er nú líka alveg að meta þetta, stóð hérna áðan með sólgleraugu og dansaði. Ég er að reyna að koma inn hjá henni aaaaaalvöru tónlistasmekk, Fritzinn sér svo um að koma inn hjá henni Liverpool-æðinu, góð skipti. Eitt kvöldið um daginn var ég að hlusta á geggjað lag, uppáhaldslagið mitt þessa dagana og tók teppi, breiddi það á svalirnar og lá skælbrosandi úti á svölum með hendurnar undir höfðinu, tásurnar í dyragættinni og headphones á hausnum að hlusta á yndislegt lag og horfa á sólarlagið! =)
Svona er lífið nú algjörlega stórkostlegt! ![]()
Ójá sumarið er sko tíminn! vakna sko brosandi á morgnanna bara ef það glittir í sólina
ótrúlegt hvað birtan hefur áhrif á mann!….
Helgi er að útskrifast um helgina, svo næstu helgi fer ég norður… en hvernig væri að við tækjum smá “fræ-hitting” helgina eftir það? eða kannski bara virkan dag aðeins fyrr?
Komment by Nanna — Thursday - 17.April 2008 @ 09:47
Frábært, ég einmitt búin að grill/láta grilla fyrir mig síðustu tvær helgar en að liggja í sólbaði er ég nú ekki enn farin að gera þó það sé sko komin sól og sumar í DK!
Knúsaðu Ninju frá mér… er sko farin að sakna hennar alltof mikið:S En bara 2 mánuðir þangað til ég kreisti hana í spað;)
Komment by Guðný danapía — Thursday - 17.April 2008 @ 15:25