Eyrnarörin gengu vel og krúttan eldhress.
Við erum eldhressar og allt gengur ljómandi. Trampolínið í garðinum hjá mömmu og pabba er í uppáhaldi þessa dagana og krílin hoppandi kát með það.
Dæmi um það sem Ninja gerir mikið þessa dagana:
• Telur: ,,einn, tveii, sjimm, átta, tíu“ - þetta eru aðal tölurnar sem aldrei gleymast, þær sem eru inni á milli eru hvergi nærri jafn mikilvægar
• Syngur ósköpin öll, trallar, hoppar og dansar.
• Segir sjálfri sér til: ,,Nei, Essku Ninna mí, ekki síta jebbann emminn.“ (is. Nei, elsku Ninja mín, ekki snýta nebbann í ermina).
• ,,Ninna, ekki boja bókin, bara jesana.“ (is. Það á ekki að borða bókina, bara að lesa hana).
• ,,Essku Ninna lúlla núna - gónódd!“ (is. Elsku Ninja ætlar að fara að lúlla núna, góða nótt!)
Svo biður hún alltaf um glosskoss, því ég er alltaf með gloss og hún vill glosskoss til að fá gloss á sig líka.
Krúttið litla!
7 May, 2008 @ 13:45
hahahahhaha- æj mér finnst þetta alveg yndislegt & endalaust fyndid! mér finnst þu þó blogga heldur seint nuna, er e-d mikid ad gera hjaá þér? t.d var síðasta færslan skrifuð þann 21.apríl sl.
7 May, 2008 @ 15:22
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!
SARA HRÖNN, nú hættir þú