Ofurhetjur.com

Býflugnaslagur

Friday - 9.May 2008

Ég og Sara lentum aldeilis í hremmingum um daginn. Við vorum úti á svölum að anda að okkur ákaflega fersku lofti sem Grafarvogurinn og Sara höfðu upp á að bjóða í sameiningu þegar allt í einu koma aðsvífandi brjálaðir fuglar í vígahug. Þessir fuglar voru svo skelfilegir að annað eins hefur sjaldan sést, já þetta voru býfuglar! Við, eins og góðum gelgjum sæmir, vissum ekki okkar rjúkandi ráð og Sara stóð stjörf úti á meðan kvikindin voru upp um allt og út um allt en ég hljómp inn með tilheyrandi píkuskrækjum. Við reyndum að bæja býfuglunum frá með ýmsum brögðum. Söru varð svo um að þegar hún komst inn forðaði hún sér inn á bað. Ég hins vegar ákvað að vera ægilegur kúreki og snara snérilinn á hurðinni með tölvuhleðslutækinu. Ég stóð þarna, búin að gera lykkju á tölvuhleðslutækis-snúruna og reyndi að snara hurðina til mín. Þetta tókst á endanum og ein býflugan varð eftir í falsinum og ég hélt að sjálfsögðu að ég hafði framið þarna afar sjálfselskt morð. Stuttu seinna, þegar Sara þurfti að róa sig með einni rettu og við héldum að árás býfuglanna færi yfirstaðin og opnuðum hurðina grunlausar þá stökk býfuglinn á móti okkur, í meiri vígahug en nokkru sinni.

Núna eftirá skammast ég mín fyrir að hafa reynt að deyða þetta ágæta og saklausa dýr, ég er nú hálffegin að hún slapp og húkti í falsinum (það er svona rönd á svalahurðinni þar sem tekið er úr hurðinni, þar var hún inni í gatinu og slapp gjörsamlega ómeidd) því ég hef ekkert yfirvald í þessum bransa, á ekkert að drepa hana neitt! Við vorum bara svo hræddar! Jeremías hvað það hefði verið kostulegt hefði einhver verið með vídjótökuvél og tekið upp þar sem ég stóð skjálfandi úr hræðslu með hleðslutækið úr vinnutölvunni, búin að gera lykkju á snúruna og snaraði snérilinn eins og ég væri komin beint heim í stofu úr villta vestrinu! Ægilega laumuleg á svipinn og læddist til að styggja ekki kvikindin sem voru þarna samankomin í leynimakki á svölunum! Já sumarið er sko greiiiiiiiiinilega komið og það lofar góðu! :D

3 komment

  1. Bara að kasta inn smá spori! Takk fyrir kökuna og mjólkina góðu um daginn ;)

    Jóa biður að heilsa Ninnu sinni ;) hehehehe…..

    Komment by Nanna — Friday - 9.May 2008 @ 22:57

  2. Mér hefur reynst vel í gegnum tíðina að notast við hársprey og kveikjara á þessa “fugla”….en það var áður en ég var stunginn og uppgvötaði að ég er ekki með bráðaofnæmi….svo að í dag “reynum” við að lifa í sátt og samlyndi….:)

    Komment by Eyþór — Wednesday - 14.May 2008 @ 02:08

  3. hehehehehehe, oj býflugur eru ógeðslegar. ég hef samt lært að sætta mig við þær eftir að ég horfði á beemovie……:)

    Komment by Erna — Thursday - 15.May 2008 @ 12:19

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu