Ný húsakynni..
Tuesday - 8.July 2008
Óhætt að segja að síðustu vikur hafi verið annasamar. Flutningar, parketlögn, hurðauppsetning, málningarvinna, sparsl, tiltekt, fúgun, niðurpökkun, upppökkun svo eitthvað sé nefnt. Ótrúlegt hvað tíminn getur flogið þegar það er gaman! Fellsmúli er sumsé okkar nýja heimili og eru allir guðvelkomnir í kotið að dást að yndislegu EIGNINNI! Mjög ljúft að vera loks skuldari til 40 ára en skuldari er einmitt orðið sem ég setti stafina mína við á skuldabréfinu. Yndislega fólkið sem ég dýrka mest í heimi og er búið að leggja hönd á plóg er:
Ég (ég verð nú að fá að vera með í upptalningunni), JÓI, Mamma, Pabbi, Pabbi, Þorgeir Kristján, Steinunn, Siggi, Patrik Dagur, Ísabella Sól, Ninja Tíbrá, Ásgeir, Friðgeir, Krummi, Júníana, Elísabet, Darri Freyr, Bjarni Jakob, Frikki, Tindur, Björgvin, Andri, Þorleifur, Ásta, Guðný, Helga og Gróa.
Sara og Jón fá knús fyrir andlegan stuðning og almennan hressleika!
Vá það er svo gott að eiga góða að - magnað hvað fólkið manns er frábært, hjartahlýtt og hjálpsamt!
Lífið er sumsé frábært - gjörsamlega ööönaðslegt!
..Ég er búin að hlæja endalaust síðustu vikur af ógleymanlegum mómentum, mismælum og hressleika í framkvæmdunum - ég mun líklegast aldrei geta horft á parketið aftur nema hugsa: sagt skagað!
Til hamingju elsku Anna Sigga mín með nýja heimilið.
Komment by Fjóla Þorsteins — Tuesday - 8.July 2008 @ 12:48
Sagt Skagað!!!! það meikar ekki sens!!!
Komment by Jóhann Þórir — Tuesday - 8.July 2008 @ 13:00
haha - þetta voru þín orð, þín orð sæti svíi!
Komment by Anna Sigga — Tuesday - 8.July 2008 @ 13:01
til hamingju æðislega fólk.
Komment by siggi — Tuesday - 8.July 2008 @ 13:54
loksins ný færsla!!!!! ég er búinn að vera hér tíður gestur, alltaf að bíða eftir fréttum.
ég vil samt sjá myndir!!!!
Komment by Rúnar — Tuesday - 8.July 2008 @ 14:39
Hæ Anna Sigga og fjölskylda…
Hjartanlega til hamingju með nýja heimilið ykkar.
Ég er viss um að þið eigið eftir að eiga frábærar minningar þaðan á næstu árum. Mér heyrist að það sé nú þegar byrjað hehe… Einhver hefur allavega sagt “sagt skagað” sem er alveg magnaður orðaflóki.
Kær Kveðja,
Bjössi
Komment by Bjossi — Tuesday - 8.July 2008 @ 14:44