Ofurhetjur.com

Ádeila dagvistunarmál Reykajvíkurborgar

Monday - 1.September 2008

Nú sótti ég um leikskóla fyrir Ninju fyrir lifandis löngu eins og eðlilegt er. Hún er núna búin að vera hjá dagmömmu í slétt ár í dag. Við fengum bréf í júní að hún væri komin inn á leikskóla. Um leið og ég samþykti það pláss sem henni var þá boðið, datt hún út af biðlista fyrir hina leikskólana sem við höfðum einnig sótt um. Okkur var tjáð að um leið og væri búið að fullmanna leikskólann fengjum við að vita hvenær aðlögun færi í gang, enda sótti ég um að hún fengi að byrja sem fyrst. Ég beið spennt og hringdi nokkrum sinnum og allt leit þetta út fyrir að hún fengi aðlögun síðustu vikuna í ágúst, ég tók því með þökkum. Leið og beið og ekki varð úr því. Hún er fremst á listanum og kemst því fyrst inn, enda er hún í fyrsta forgangi. Í morgun hringdi ég símtal númer 17 í leikskólann til að sjá hvenær aðlögun gæti hafist, þá er mér tjáð að sökum óstjórnlegrar manneklu mun ég að öllum líkindum fá símtal í lok viku, hugsanlega með einhverjum svörum. Hugsanlega, hvurslas svar er það? Nú standa málin þannig að dagmamman er löngu búin að láta plássið hennar Ninju, þar sem leikskólinn gaf jákvætt svar um síðustu vikuna í ágúst eða þar um bil. Ég hef hvorki dagmömmu né leikskóla fyrir barnið. Reykjavíkurborg er algjörlega að drulla upp á bak með dagvistunarmálin og það eina sem ég sé í stöðunni er að taka launalaust frí í vinnunni til að vera heima með barnið. Þar að auki hef ég ekki rétt á launalausu fríi frá vinnu, fyrir utan það að hafa ekki á nokkurn hátt efni á því. Dagmamman ákvað að taka sér 6 vikna sumarfrí í sumar og því á ég ekki uppsafnað frí til að brúa bilið núna. Ég get jú þáð með þökkum 25.000kr á mánuði sem Reykjavíkurborg er tilbúin að greiða mér fyrir að vera heima með barnið mitt, já það er á við laun fyrir að vera útivinnandi! Kæra Reykjavíkurborg - er þetta grín?

Hvernig stendur á því að þessi mál þurfa að vera svona arfaslök? Hvernig stendur á því að börn í mörgum öðrum sveitafélögum geta fengið leikskólapláss rétt um 18 mánaða aldur? Af hverju þarf Reykjavíkurborg að standa sig svona innilega illa? Hún er jú 2 ára, ég er ekki með óraunhæfar kröfur! Þetta eru börnin okkar sem eru annars vegar, maður á ekki að þurfa sjálfur að vera í hálfu starfi við að hafa uppi á fólkinu sem á að ræða við til að fá einhver haldbær svör, maður á ekki að þurfa að hringja einu sinni á dag til að fá það svar að manneklan sé svo mikil að því miður, gangi þetta ekki upp í þessari viku, í raun sé ekki nægilegur mannskapur til að svara í símann einu sinni. Ástandið er augljóslega skelfilegt! Nú hafa leikskólastarfsmenn alltaf verið á lágum launum, er þetta árið sem allir ákveða að hætta að sætta sig við það? Það hreinlega getur ekki staðist! Þetta vandamál getur ekki verið nýtt! Ég greiði hundruði þúsunda í blóðuga skatta hver einustu mánaðarmót, mér finnst ég að eiga skilið pláss á leikskóla fyrir gersemið mitt fyrir vikið!

Ég trúi því seint að ég ein standi fyrir þessum ömurlega vegg sem ég er búin að klessa á í dagvistunarmálum borgarinnar. Nú finnst mér að menn ættu aðeins að skoða sína afstöðu gagnvart borgarstjórn, þar eru greinilega allir barnlausir og er bersýnilega slétt sama um þá þegna sem þurfa að sjá fyrir heimili með launaðri vinnu!

5 komment

  1. Þetta gerist þegar menn kjósa yfir sig blákalt íhaldið og láta frjálshyggjuna ráða völdum…

    Hver er aftur besti vinur Davíðs og talsmaður frjálshyggju? Jú, Hannes Hólmsteinn Gissurason, maður ógiftur og barnlaus, enda er vaninn að svona vitleysa eldist af manni þegar maður eignast börn.

    Komment by Helgi Jó — Monday - 1.September 2008 @ 18:43

  2. Þetta gerist líka ef menn kjósa yfir sig handónýtar risaeðlur úr fyrrverandi R-listanum….

    Ekkert af þessu er gott. Flytjum úr landi.

    Komment by Helgi Jó — Monday - 1.September 2008 @ 18:44

  3. Úff… ég hata RVK og gæti því komið með ræðuna hérna !
    Komdu bara norður Annska mín ;) einfaldlega allt frábært við að búa hérna!!!

    Komment by Nanna — Monday - 1.September 2008 @ 21:34

  4. Heyr heyr!

    Agalegt er að heyra þetta, skil ekki þessa fjandans leikskóla hérna.. þó Kristófer hafi fengið pláss þá lýst mér bara ekkert of vel á þessar kellur þarna. Ég fór í maí að skoða leikskólann og þá var alveg mjög fínt starfsfólk þarna svo kem ég í ágúst og þá eru allar hættar sem voru þarna í maí! erum búin að vera í aðlögun núna í rúma viku og það eru aldrei allar 4 mættar í einu sem eiga að vera á hans deild, alltaf ein veik eða eitthvað. Svo eru tvær þarna í plús 200kg flokki!! (ekki það að ég sé á móti feitu fólki en þá er það orðið slæmt þegar það er svo feitt að það sest niður til að leika við krakkana og getur svo bara varla staðið upp aftur!!)

    Æ þetta er svo glatað eitthvað, skil ekki af hverju þetta er bara ekki borgað almennilega svo fólk stoppi nú eitthvað við á þessum vinnustað.

    en Annska mín ég get sko alveg passað hana Ninju fyrir þig eitthvað ef þú ert í miklu veseni, getur bara hringt og tékkað hvort ég sé laus:) Minnsta málið!!

    Vonandi fer hún nú að fá pláss þessi elska. Spurning um að við opnum bara leikskóla fyrir gullin okkar?? lýst bara best á það hehehe:)

    kv. frá einni extra viðkvæmri mömmu sem vill sko ekkert að gullið hennar sé á leikskóla… eða þú skilur hvað ég meina!!;)

    Komment by Jóa — Wednesday - 3.September 2008 @ 23:44

  5. Þetta er náttúlega algjörlega út í hróa!!! En svona er staðan þegar þessi blessaða ríkistjórn sér sér ekki fært að borga fólki sæmileg laun, þá vill enginn vinna hjá þeim…..og þá vantar starfsfólk á leikskólanna. Það er fullt af fólki sem vill vinna á leikskólunum en getur það ekki sökum launanna….við þurfum jú peninga til að reka okkur þannig er það bara! Þessi blessuðu yfirvöld ættu einfaldlega að skammast sín! Hversu slæmt þarf ástandið eiginlega að verða til að þeir opni augun????

    Komment by sigurlaug — Thursday - 4.September 2008 @ 14:43

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu