Ofurhetjur.com

Ninja djammari..

Monday - 22.September 2008

Helgin var í heild sinni unaðsleg. Við fórum í sund, elduðum dýrindis matargóðgæti, bökuðum, skemmtum okkur, fórum í heimsóknir og höfðum það kósý. Við fengum líka fullt af frábærum afmælisheimsóknum, knúsum og kveðjum því ég varð árinu eldri!

Ninja er orðin eitthvað svo stór, heldur uppi margra klukkutíma samræðum ef því er að skipta. Skilur sko allt og vill sko alltaf ræða hvað er framundan á degi hverjum, hafa skipulag og skemmtidagskrá alveg út í eitt sem er alveg ljómandi fínt því henni finnst yfirleitt allt skemmtilegt, bara ef það er gert með bros á vör. Hún kemur alltaf á hverjum morgni og skríður upp í til okkar og knúsar okkur í bak og fyrir og vill kúra aaaðeins lengur í fanginu áður en við byrjum daginn.

Ég var að tala við Sonju í símann á laugardagsmorguninn og hún var að segja mér frá hvítvínslögg sem hún og Sara fengu sér kveldið áður og ég spurði hvort þær hafi verið að djamma. Litla skottan var nú ekki lengi að grípa þetta nýja orð og endurtók aftur og aftur hlaupandi um íbúðina að hún væri að djamma. Svo útskýrði ég fyrir henni að það að djamma væri að syngja og dansa og þá gerði mín sér lítið fyrir og dansaði um allt og söng leikskólalögin og á milli þess sem hún greip andann á lofti kallaði hún: ,,mamma, Ninja djamma!“.

Steinka var að þvo öll dúkkufötin sem við systur áttum í æsku og Ninja og Ísabella skiptu á milli sín fjársjóðnum og litla skottan er algjörlega í skýjunum með góssið! Hún situr og spjallar við dúkkurnar með dúkkuföt allt í kring, skiptir á þeim og tætir þær úr öllu, hefur ,,pæjustund“ eins og við mæðgur höfum oft eftir bað þar sem hún þykist setja á þær naglalakk, klippir á þeim neglurnar og setur á þær krem með góðri lykt. Ímyndunaraflið er sumsé alveg í góðu lagi hjá henni.

Hún er bara svo góð, yndisleg og fyndin. Húmorinn er alveg að fara með hana þessa dagana. Stríðir alveg á fullu og það er alveg hrikalega fyndið að fylgjast með henni. Hún beinir stríðninni mjög mikið að afa sínum (pabba Þorgeiri) og þau eiga ægilegan einkahúmor. Svo finnst henni voða fyndið að segja gottandi á morgnanna þegar við spyrjum hvort hún vilji ekki koma í fötin til að fara á leikskólann: ,,Nei, Ninja liddlikki fara í leikskólann“ svo hlær hún ægilega með þvílíkum ýkjum, hoppar helst líka og kemur kát tilbúin að fara í fötin. Það er svo yndislegt að fylgjast með þessu öllu, fylgjast með húmornum þróast og orðunum fjölga með hverjum einasta degi. Svo er líka svo gott að laumast inn í herbergi þegar hún er sofnuð í bangsaflóðinu í rúminu sínu og stelast til að dást að fegurðinni. Hún er líka orðin mjög dugleg að leggja áherslu á að segja rétt R. Við heyrum oft í henni dunda sér inni í herbergi með dúkkurnar þegar við erum til dæmis að elda kvöldmatinn og hún er að prófa að segja orð með R aftur og aftur, enda þráir hún fátt heitar en að vera eins og Patrik Dagur í einu og öllu og hann segir svo flott R. Já óhætt að segja að maður getur verið aaansi upptekinn af börnum sínum! =)

6 komment

  1. hahaha, Ninja er náttlega bara snillingur. Djammandi eins og frænka sín! Ég þarf nú að fara að heyra í henni, sjá hvort hún þekki gömlu kellinguna í tölvunni! Bið annars að heilsa. Heyri að það er alltaf mikið fjör í Fellsmúlanum;)

    Komment by Guðný danska frænkan — Tuesday - 23.September 2008 @ 20:52

  2. Æi, hvað Ninjan er dugleg og æðisleg, líkt og móðirin! Greinilega með húmorinn í lagi :)

    Komment by Elísabet — Thursday - 25.September 2008 @ 20:45

  3. vá hvað ég er glöð að þú bloggar aftur! það var búinn að líða svo langur tími alltaf á milli, ég vil fá fréttir svona af og til, það er algjört lágmark;-)

    Komment by Erna — Friday - 26.September 2008 @ 12:57

  4. Æi hún er svo mikið yndi. Verðum svo að fara að taka hitting með skvísunar okkar :)

    Komment by Sigurlaug og Elísabet Ása — Monday - 29.September 2008 @ 14:26

  5. Ég ætla rétt að vona að þú munir hvað þú gerðir í kvöld!
    Hversu miklu virði eru vinir þínir!?!(greinilega einskins) Þú ert skíthæll framm í fingurgóma, og ef þú heldur að ég sé sá eini sem haldi þetta þá hefur þú rangt fyrir þér!!! Ég er að heyra allskonar sögur um þig út um allan bæ,(og þú heyrir ekki helminginn af þeim!) en þær komast ekki á hálfkvisti við það sem ég hef orðið vitni að! kv bragi

    Komment by eytor — Thursday - 2.October 2008 @ 04:19

  6. Já þið eruð nú meiiiri déskotans fyllibytturnar Eyþór og Bragi. Ég myndi halda að það væri viðeigandi að halda rifrildum ykkar á milli ykkar.

    Komment by Anna Sigga — Thursday - 2.October 2008 @ 09:43

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu