Ofurhetjur.com

Guði sé lof fyrir lystisemdir internetsins

Monday - 13.October 2008

Ég er svo þakklát fyrir stórkostlega internetið. Ég hugsa að ef þessi saga af sköpuninni og Guði er sönn þá held ég að það vanti smávegis vandræðalegan bút í hana. Ég held að Guð hafi í raun ekki hvílst á hvíldardeginum, sunnudeginum góða, heldur hafi hann verið á djamminu kveldið áður og verið kominn verulega vel í glas, hitt þar dömu sem hann hafi gleymt að spyrja hverra manna var og ákveðið að nýta þynnkudaginn í eitthvað gáfulegt og hafi þar með skapað internetið, til þess eins að finna þessa frábæru dömu aftur því mikið asskoti kunni hún vel til verka. Já svona held ég að sköpunin hafi í raun átt sér stað, ég held að Biblíumenn hafi bara ákveðið að passa mannorð Guðs og sleppa þessu með lauslætið, drykkjulætin, þynnkuna og svo internetið því það eru jú ekki allir jafn þakklátir fyrir internetið og ég er. Það eina sem gætu verið ýkjur í þessu hjá mér er orðið asskoti, það er ekki eitthvað sem Guð myndi segja.

Ég vona að ég verði ekki send til heljar fyrir þessar yfirlýsingar mínar og guðlast, gott að ég er ekki trúuð neitt að ráði. Ég held reyndar að flestir vinir mínir fari til heljar þannig að kannski vil ég bara fara þangað, þar verður örugglega mesta stuðpartýið.

5 komment

  1. hahahahahahahahaha jésus! ég hélt ad við værum buinn ad ræða þad að það er enginn nokkur lifandi leið fyrir okkur til ad komast til himna annska min! it is what it is! =)

    Komment by sara — Monday - 13.October 2008 @ 21:21

  2. já ég held það sé nokkuð ljóst hvar við endum…

    Komment by sonja — Monday - 13.October 2008 @ 21:32

  3. Já ég ætti kannski að binda enda á þennan annars veika vonarneista minn og fara að gleðjast yfir því að við verðum þó allavega allar saman í aðal-partýinu! =)

    Komment by Annska — Tuesday - 14.October 2008 @ 09:03

  4. það er auðvitað alltaf aðal-partyið þar sem við komum saman svo ég held þú þurfir ekkert að örvænta, ekki eina agnarögn að örvænta :-)

    Komment by sonja — Tuesday - 14.October 2008 @ 11:06

  5. hahahahaha þessi saga af sköpunini er miklu meira spennó en sú sem ég var látin grandskoða í sunnudagaskólanum í æsku!!!! ;-)

    Komment by erna...... — Wednesday - 15.October 2008 @ 16:13

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu