Ofurhetjur.com

Topp 10

Wednesday - 15.October 2008

10 Toppstaðirnir sem ég hef gubbað á:

1. Ramsey Street (Neighbours-götunni) í Ástralíu
2. Forsætisráðuneytið (hitti forsætisráðherra á leiðinni úr gubbipásunni)
3. Ofan í Grand Canyon
4. Við rætur Mount Everest
5. Hjá Taj Mahal í Indlandi
6. Walk of fame í Hollywood
7. Spilavíti í Las Vegas
8. Ofan í matinn minn á Singapore flugvelli
9. Á mótorhjóli á fullri ferð á Cookeyjum
10. Á kamar á Oktoberfest

Það eru fáir sem geta státað sig af lista eins og þessum, þá sérstaklega þar sem þetta er allt sökum morgunógleði. Það er hægt að vera þakklátur fyrir allt í lífinu, líka þá staðreynd að hafa morgunógleði alla meðgönguna hennar Ninju og stefna í slíkt hið sama á þessari meðgöngu líka. Þetta er allt spurning um að gera gott úr hlutunum, ég ákvað bara að safna saman flottustu gubbstöðunum til að sjá ákveðinn árangur og stolt í allri þessari ógleði sem er fágæt, ég er í raun og veru heppin að hafa þessa ógleði til þess eins að geta búið til svona glæstan lista.

Listinn verður eflaust orðinn töluvert flottari í apríl 2009 þegar ég fer á fæðingadeildina og búin að gubba á mun fleiri stórglæsilegum stöðum en þessum.

9 komment

  1. Þetta er magnaður listi!!! Verst að ég fái aldrei morgun ógleði, NOT, og geti ekki gubbað á jafn mögnuðum stöðum og þú. Spurning um að taka Gamel Dansk flösku með í næsta ferðalag til að starta gubblista!

    Komment by Jakobar — Wednesday - 15.October 2008 @ 15:54

  2. Já Jakob minn, endilega gerðu það! Ég hér með skora á þig í gubblistakeppni! Þú átt flöskurnar til, það eina sem þú þarft er samferðamanneskja með myndavél til að muna eftir gubbstöðunum (því það er jú flóknara að muna þegar drykkjan er orðin svo mikil að hún leiðir til uppkasta heldur en þegar óléttan er annars vegar) og svo er bara málið að stökkva upp í flugvél með keppnishug!

    Komment by Annska — Wednesday - 15.October 2008 @ 16:11

  3. Til hamingju með bumbubúann! Það er nú ágætt að þú tekur vel í allar ælurnar, held ég hafi aldrei hitt jafn jákvæða heilsdagsógleðis-konu og þig :)
    Ninja Tíbrá og Elsa Björg verða aldeilis samferða í að verða stóru systur. Elsa Björg stefnir á það í febrúar 2009.
    Gangi ykkur vel :)

    Komment by Ásta Andrésar — Thursday - 16.October 2008 @ 06:55

  4. … og bráðum geturðu bætt listasafni reykjavíkur við… pældu í því. Gubba á eitt eða tvö verk, og já, jafnvel gera þau betri fyrir vikið.

    Komment by Helgi — Thursday - 16.October 2008 @ 11:55

  5. Já Helgi minn, það er eitt sem víst er að ég get betrumbætt annars ágæta list þarna í Listasafninu. Við þurfum nú að fara að finna okkur tíma í menningarrúntinn okkar! ..Ég er æsispennt yfir þessu! =)

    Komment by Anna Sigga — Thursday - 16.October 2008 @ 12:17

  6. Vííí, til hamingju með óléttuna! Ninja Tíbrá verður sko besta stóra systir í heiminum. Það er ég viss um:)
    Og jú listinn er glæsilegur… eru komin einhver markmið til að bæta á listan á næstu mánuðum!
    Annars verð ég að segja að listinn er ekkert sérstaklega öfundsverður… hehe.

    Komment by Guðný danska — Thursday - 16.October 2008 @ 14:04

  7. takk fyrir það Guðný mín =)

    Ninjukrúttið verður sko langsamlega besta systir samtímans enda tilkynnir hún öllum óspart að hún heiti sko Ninja STÓRA SYSTIR! =)

    Komment by Anna Sigga — Thursday - 16.October 2008 @ 14:29

  8. Flottur listi :) Ég gæti jafnvel bætt við nokkrum góðum stöðum eftir mína meðgöngu heheh :)

    Komment by Sigurlaug — Monday - 20.October 2008 @ 18:38

  9. Ji minn. Þvílíkar fréttir.
    Innilega til hamingju Annska mín. Gangi þér vel á meðgöngunni.
    Minn listi yfir ælur á meðgöngunni er heldur styttri… hálf-æla á Keflavíkurflugvelli, sem ég er ekki einu sinni viss um að hafi tengst meðgöngunni.
    Kveðja frá Álaborginni.
    Ríkey

    Komment by Ríkey — Thursday - 23.October 2008 @ 10:44

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu