Kreppa?
Monday - 20.October 2008
Við komumst að því um helgina að það að ryðjast í framkvæmdir í kreppunni er það allra gáfulegasta sem hægt er að gera. Við fengum þvílíkt flott tilboð í allt, ætluðum í upphafi að kaupa flísar á eyjuna í eldhúsinu en ákváðum að umturna bleika baðherberginu okkar ,,í leiðinni” sem hefur verið við sama heygarðshornið síðan í kringum 1970. Flísarnar á gólfinu voru bleikar, flísarnar á veggjunum voru fölbleikar, fjólubláar og mintugrænar með blómum og borðplatan að sjálfsögðu bleik í stíl við allt hitt. Ég hef sjaldan séð jafn slepjulegt baðherbergi eins og einmitt þetta. Við erum þó búin að smá-laga það, innréttingin er ný og hurðin, restin sat á hakanum.
Við fengum sumsé tilboð í nýtt nuddbaðkar, klósett, innfelldan kassa og allt meðfylgjandi, vask, blöndunartæki og flísar á allan pakkann. Við ætlum því heldur betur að græja þetta ,,2008-stæl” en ekki hafa þetta lengur fornaldarfölbleikt.
Við brutum flísarnar af veggjunum í gær og Ninja sætamús var í vinnufötunum, ægilega dugleg að hjálpa og fylgdist grannt með á kantinum með seríós í skál, syngjandi fyrir okkur og leiðbeindi okkur þegar henni fannst tilefni til að sýna okkur nú aðeins hvernig væri best að gera þetta. Í beinu framhaldi af þessu ætlum við svo að brjóta gólfflísarnar af, leggja gólfhita og já, þá fer nú boltinn að rúlla því mestu lætin verða þá búin og þá er hægt að flísaleggja allt upp á nýtt og setja upp öll tæki og byrja að elska baðherbergið!
Við erum svo framkvæmdaglöð, vorum einmitt að hlæja að því í gær að við erum ekki búin með allt frammi og byrjuð á þessu líka. Vonandi samt klárast þetta frammi bara með baðinu því það helst í hendur við það að iðnaðarmannakrúið sem ég dái svo mikið komi til að setja borðplötur, veggfóðra, hjálpa til við flísalögn og verði með ýmsa aðstoð. Allir sem vilja hjálpa eru ó svo velkomnir! =)
Þegar baðherbergið er orðið stórbrotið er allt að verða fabjölös því þá eigum við bara eftir að saga út fyrir svalahurð, setja hurð og búa til sólpall sem vonandi gerist næsta sumar, þá er þetta draumaheimili okkar tilbúið!
Greinilega nóg að gera á ykkar heimili….
Komment by Sigurlaug — Monday - 20.October 2008 @ 18:40
Eins gott að ég þurfi ekki að gera neitt svona…ég kæmist ekki á klóið eða í sturtu í mörg ár miðað við framkvæmdagleðina (gleðileysið) á mínu heimili!:-) Frábært framtak hjá ykkur, hlakka til að kíkja í kotið og sjá flottheitin!
Komment by Andrea — Tuesday - 21.October 2008 @ 13:44
Til hamingju með baðið.

Greinilega mikið að gera hjá ykkur
Framkvæmdaglöð segiru… Ert þú bara ekki alltaf glöð eða?
Hafðu það gott sæta mús og skelltu einum kossi á Ninju.
Komment by Hulda Björk — Thursday - 23.October 2008 @ 11:15