Tónlistaryndisauki
Friday - 24.October 2008
Ég fékk ósköp yndislegt símtal í síðustu viku. Það var haldinn huggunarorðafyrirlestur í skólum í Breiðholtinu í síðustu viku vegna kreppunnar og sú sem hélt fyrirlesturinn hringdi sumsé í mig til að þakka mér fyrir jákvæðni og hlýju. Hún tók sumsé part úr ,,Hversu grænt er grasið” sem ég skrifaði og las það upp sem huggunarorð í hremmingunum sem dynja nú á þjóðfélagið. Óskaplega fannst mér þetta nú yndislegt, að vita að ég hafi kannski hjálpað einhverjum að líða betur, finna smá sálarró og bros.
Ég dýrka tónlist svo mikið! Ég get varla einbeitt mér í vinnunni nema að hlusta á eitthvað yndislegt og núna er ég að hlusta á svo yndislegt sem Frank var að senda mér að ég brosi eins og vistkona á Kleppi eftir lyfjagjöf hérna uppi í Borgartúni á meðan ég bíð eftir því að forritið mitt klári að vinna og skili mér niðurstöðum.
Helgin mun einkennast af óskaplega miklu baðherbergisstússi og svo smá nammiteiti í kveld sem er sko alltaf nauðsynlegt - Sara, Jóa og Ragga ætla að koma í Singing Bee stemningu! Annars hlakka ég svo til að gera allt tilbúið á baðinu, það verður svo geggjað þegar allt er tilbúið! Þá getur líka Sara mín loksins komið heim til okkar án þess að þurfa að læra eitthvað nýtt ,,pípara-lingó” til að skilja það sem er í vændum og það mun nú gleðja hana ægilega ![]()
halelúja! =)
Komment by sara — Sunday - 26.October 2008 @ 23:52
já það er sko ekkert hægt að lifa án góðrar tónlistar!!!!!!!! Gangi ykkur vel í framkvæmdunum;-)
Komment by erna — Monday - 27.October 2008 @ 10:26
þú ert nú alltaf svo jákvæð,átt alveg skilið eitt svona símtal ; )
Komment by hannes — Tuesday - 28.October 2008 @ 09:40
He he, Singing bee? Mér finnst sá þáttur djók frá upphafi til enda.
Gangi ykkru vel með baðherbergið
Komment by Helga — Tuesday - 28.October 2008 @ 15:56