Ofurhetjur.com

Flagð undir fögru skinni..

Monday - 18.December 2006

Þegar við vorum í hemsreisunni urðum við fyrir moskítóárás í Agra í Indlandi og urðum eins og gatasigti eftir öll bitin. Eftir það kippti maður sér ekkert upp við nokkur bit. Þegar við vorum í fluginu á leiðinni heim frá New York furðaði ég mig á því að vera ennþá með eitthvað bit á öxlinni. Ég hugsaði ekkert meira um það. Eftir að við komum heim hef ég alltaf verið með smá roða á öxlinni og óþægindi. Ég pældi svosem ekkert mikið í því fyrr en á fimmtudaginn, þá fékk ég alveg nóg af þessum axlarpirringi og reyndi að kreista þetta. Allt kom fyrir ekki og á föstudaginn gerði ég aðra tilraun og kreisti eins og ég gat og það var farið að blæða en ég hætti ekki - svo mikið pirraði þetta mig. Ég stóð fyrir framan spegilinn og sá allt í einu glitta í eitthvað svart - inní öxlinni á mér! Ég velti fyrir mér hvort þetta væri bara storknað blóð eða eitthvað því ég hafði jú verið að kreista þetta daginn áður. Ég hætti samt ekki einhverra hluta vegna að kreista þetta. Svarti depillinn varð nú æ skýrari og allt í einu heyrðist smellur (svona eins og heyrist þegar belgurinn er sprengdur í fæðingu) og út kom svartur köggull, eins og lítill steinn! Eftir var gat í öxlinni á mér og mér fannst þetta ægilega skrítið. Ég fór að skoða apparatið sem kom út og fannst þetta nú heldur betur ógeðslegt. Ég skreið svo upp í rúm til Friðgeirs og Ninju Tíbrár og sagði Friðgeiri frá þessu. Morguninn eftir var Friðgeir búinn að fara að kíkja á ógeðið sem kom úr öxlinni á mér og var búinn að komast að niðurstöðu - ÞETTA VAR PADDA! Ég fór og skoðaði þetta betur og já, ógeðið sem hafði verið inní öxlinni á mér síðan í heimsreisunni (í rösklega 9 mánuði) var líklegast svokallaður ticker, ógeðslega paddan á myndinni! Þetta hefur maður uppúr því að vera að þvælast um heiminn hehehe!

Við fórum upp á Slysó og Ninja Tíbrá var í pössun hjá Ömmu gróu á meðan. Við biðum í röð í 2 tíma og svo þegar kom að okkur skoðaði læknirinn mig í nokkrar mínútur og við greiddum fyrir það fjóra fjólubláa þúsundkallapjeninga! Hann vildi ekki skera í hendina (til að fjarlægja allt dýrið) eins og við komum þarna til að fá hann til að gera. Hann vildi hins vegar að ég færi á sterk sýklalyf, sem ég vil síður gera því ég er með Tíbrá á brjósti og vil ekki þurfa að hætta því. Ég vil frekar láta skera í kringum þar sem pöddukvikindið var og vera með ör og vona þá að pödduógeðið sé úr sögunni en fer samt á fúkkalyf ef þess er virkilega þörf, ég ætla að fá sekond oppiníon á málinu og hvað er best að gera. Svona pöddur (fer eftir því hvaðan þær eru upprunar, ef ég hef fengið hana í Indlandi er til dæmis verra en í Bandaríkjunum) geta meðal annars valdið heilabarkarbólgu og taugasjúkdómum. Ég er nú samt búin að vera með kvikindið í 9 mánuði í öxlinni og það hefur ekkert gert mér hingað til þannig að ég vona að ekkert gerist úr þessu! Um kvöldið fórum við svo á jólahlaðborð á Óðinsvé hjá Sigga hall með RU-premier (tölvunördunum sem voru með Friðgeiri í tölvunarfræðinni) og það var rosa stuð, allir gátu skemmt sér yfir þessari ágætu pöddusögu og Ninja var í pössun hjá mömmu, pabba og Þorgeiri Kristjáni á meðan. Litla gellan var semsagt í pössun allan daginn - ekkert smá dugleg! Ég tilkynnti mömmu og Gróu að þær væru búnar að eignast nýtt barnabarn því pöddukvekendeð er jú búið að búa í mér í 9 mánuði - alveg eins og Ninja Tíbrá gerði!
..23 dagar í útflutning!

11 komment

  1. OOOOOOOOJJJJJJJJJJJJJ!!!!!!!!!!!!!

    TAKK FYRIR AÐ EYÐILEGGJA ALLAN SVEFN FYRIR MÉR UM JÓLIN!!!

    Þetta er með ógeðslegri sögum sem ég hef heyrt! gott samt að það er í lagi með þig!:)

    Komment by Jóa — Monday - 18.December 2006 @ 23:41

  2. oj barasta þetta er ogedslegt.. ugh.. eg er bara alls ekkert ad ná þessu sko.. :O

    Komment by sara — Tuesday - 19.December 2006 @ 08:21

  3. Já fuss og svei svona óboðnir gestir. Var tikkerinn kominn með búsetuleyfi? Það er spurning um að láta útlendingaeftirlitið vita he…he…he…
    Vonum að þetta hafi enga fylgikvilla og þrautseigja þín í að flæma kvikindið út hafi borið árangur.
    Takk fyrir skemmtilegt laugardagskvöld.
    Kveðja,
    Hanna Dóra og co.

    Komment by Hanna Dóra — Tuesday - 19.December 2006 @ 09:18

  4. oj oj oj oj brrrr, nú þori ég nú varla að koma í heimsókn.
    Finnst soldið merkilegt að sýklalyf eigi að drepa þetta, hefði haldið að það þyrfti eitthvað annað á svona kvikindi,
    Allavega hafi þið það gott og don’t let the bed-bugs bite … literally

    Komment by Ævar — Tuesday - 19.December 2006 @ 18:23

  5. OJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ ÞETTA ER VIÐNJÓÐUR,,,,,

    Jakk jakk,,heheh samt las ég textann eins og ég væri að lesa góða spennusögu. Magnað !!!!!!!!!!!!!!!!!

    Komment by Pálína — Wednesday - 20.December 2006 @ 23:35

  6. Já þetta er nú frekar ógeðslegt…. en svona gerist!! Hvar eru allar myndirnar sem þú ert svo dugleg að taka…. þarf ég að bíða fram á laugardag til að sjá sætu frænku mína? Ég tékka á hverjum degi og ekkert gerist;)

    Komment by Guðný besta frænka;) — Thursday - 21.December 2006 @ 16:48

  7. Ef þú getur beðið svo lengi, þá myndi ég fara til læknis hér í DK og láta kíkja á þetta. Ekki af því að þeir eru svo miklu betri, heldur af því að það kostar þig akkúrat ekki neitt að fara til hans.
    Svona er nú gott að búa í Danmörku :)

    Komment by Ríkey — Friday - 22.December 2006 @ 14:12

  8. Ég er búin að láta skera kvekendeð úr handleggnum á mér og lét sko besta lýtalækni landsins gera það - það þýðir náttúrulega ekkert annað! ;) Ég verð því með umbúðir á upphandleggnum þetta árið og sauma fram undir áramót! =)

    Komment by Anna Sigga pödduhýsill — Friday - 22.December 2006 @ 22:20

  9. dear god brr, efni í alien 5

    Komment by Ævar — Monday - 25.December 2006 @ 03:39

  10. Gleðileg jól elskur.

    Hafið það sem best yfir hátíðina !!

    Jólaknús frá okkur

    Palla, Senegalinn og Tonía

    Komment by Pálína og co — Monday - 25.December 2006 @ 13:24

  11. hæhæ sætu sætu:) viljum bara senda knús héðan úr pestabælinu:)
    knús knús
    Steinunn, Siggi, Patrik Dagur og Ísabella Sól

    Komment by Steinunn Gerður — Thursday - 28.December 2006 @ 22:32

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu