Ofurhetjur.com

Heimasíðan

Tuesday - 29.August 2006

42
Það tók tvo tölvunörda 3 daga að koma upp þessari annars einföldu heimasíðu, myndaalbúmi og gestabók! þokkalegir tölvunördar (eða hitt þó.. omg gmg). Við erum þó ánægð með útkomuna og ætlum að nota þessa síðu til að leyfa fólki að fylgjast örlítið með okkur, sérstaklega eftir að við flytjum til Danmerkur í vetur og þaðan til Zasilands næsta sumar (nei djók). Andrea og Ísak skemmtu sér konunglega við að horfa á okkur ,,rigga” síðuna og skildu ekkert í því hvernig við nenntum þessu og enn minna í því að það væri hægt að hafa gaman að því að sitja hlið við hlið og horfa á ,,texta” og reyna að finna ,,bögga” í forrituninni

Eins og vel augljóst hefur verið þá erum við sett 2.september og fyrsta sem allir spyrja er: ,,jæja, eitthvað að gerast?” Við lofum að láta vita ; )
Eins og er er ekkert að gerast nema að við verðum spenntari yfir því sem koma skal, æðislega gaman samt að sjá hvað allir eru spenntir líka. Við tókum okkur til og gerðum afsteyp af bumbunni um daginn, það átti að vera örugg leið til að koma hríðunum af stað, en nei ekkert gerðist og barnið heldur áfram að leika sér í bumbunni góðu, vill hreinlega ekki koma út að leika og vera memm.

3 komment

  1. Frábært að það sé komin síða. Reiknum með að nýjasti Ru-premier meðlimurinn verði kominn í heiminn þegar við komum heim frá spáni þann 13. september. Gangi ykkur svakalega vel. Fylgjumst spennt með síðunni!

    Komment by Hanna Dóra, Gunnar og Haukur — Tuesday - 29.August 2006 @ 12:07

  2. Glæsilegt framtak!

    Hlökkum til að fylgjast með ykkur, gangi ykkur rosalega vel það sem eftir er af meðgöngunni (og eftir það að sjálfsögðu ;o) )

    Komment by Kjartan, Kristín og Silja María — Tuesday - 29.August 2006 @ 19:22

  3. hehe já það vottar nú fyrir svoldið mikilli tilhlökkun hérna megin líka, erum alveg að deyja úr spenningi…stelpa eða strákur það er stóra spurningin:):) Farðu nú að koma þér í heiminn til að svala forvitni okkar allra , blikk blikk;);) En knús í krús
    Steinka, Siggi, Patti og bumbulíus:)

    Komment by Steinunn Gerður — Wednesday - 30.August 2006 @ 10:24

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu