Ofurhetjur.com

Settur dagur

Friday - 1.September 2006

Í dag og á morgun er þessi ,,setti dagur” sem alltaf er talað um. Fyrsti sónarinn sem við fórum í sagði að barnið ætti að fæðast 1.september en næsti sónar sagði að dagurinn væri 2.september. Í dag er ég semsagt búin að ganga með barn í maganum í 40 vikur eða 280 daga og hafa ógleði og uppköst í 275 daga. Þetta þykir mér nú ansi góður árangur og allt algjörlega þess virði. Ég er nú alveg til í að litla gullið fari að láta sjá sig og heiðra spennta forledrana með nærveru sinni, helst fyrr en síðar. Það sem mér finnst nú fyndnast er að við þetta allt saman er gullið okkar virtist nú aldeilis ætla að taka forskot á sæluna og mæta á svæðið fyrir 12 vikum síðan og hef ég því ekkert mátt vinna síðan til að minnka líkurnar á fyrirburafæðingu. Ég hef greinilega sýnt krílinu hvernig manni á að líka vel inni í bumbunni því ekkert bólar á því þegar það loksins má koma =)

Við fórum og sóttum fína fína Emmaljunga-vagninn okkar í gær og þetta er að sjálfsögðu sá allra flottasti í bransanum og því verður sko heldur betur hægt að skella sér í torfærur og fínerí með þessari flottu græju ( hann er sko á gömbó mödder). Núna vantar bara litla barnið okkar til að setja í vagninn fína og til að prófa allt glæsilega dótið sem við erum búin að verða okkur út um. Það eru margir búnir að vera að spyrja hvort það sé eitthvað sérstakt sem okkur vantar og ef einhver er að velta þeirr spurningu fyrir sér þá vantar ósköp fátt.

Það er semsagt ekkert að gerast hjá okkur núna en við bíðum bara spennt og hlökkum til þegar þetta fer allt á fullt og við getum mætt á spítalann til að koma krúttinu okkar í heiminn. Það eru í mesta lagi 14 dagar í að krílið fæðist (þ.e.a.s. ef ég geng framyfir og verð sett af stað) þannig að það er nú alls ekki langt að bíða! Fyrst við erum búin að lifa af þessa bið í 280 daga so far (og ég sem get varla beðið eftir jólunum - þá kalla ég þetta nú ansi góðan árangur hjá mér) þá eru 14 í viðbót bara pís of keik! Svo eru bara ótrúlega spenó að vita hvort þetta er stelpa eða strákur og það hafa að sjálfsögðu allir sínar getgátur sem gerir þetta bara ENNÞÁ meira spennandi!

- Knús af Glæpanesinu þar sem beðið er eftir litlu kríli!

13 komment

  1. ég er svo spennt að ég er um það bil að fara úr limingunum!! HALLA MALLA..

    Skilaboð til litlu skvísunnar ( já ég er pottþétt með kynið heheh, eins gott því ég hef bara keypt á stelpu fyrir sængurgjöfina.) Farðu að láta sjá þig elskan, við frænkur þínar á króknum getum helst ekki beðið í 14 daga heheh

    Farðu ossa varlega elskan svona á lokasprettinum

    Lov ya

    Komment by Pálína, — Saturday - 2.September 2006 @ 16:49

  2. Ohh, tetta er svo spenno, bid og bid vid simann og hrekk vid i hvert skipti sem pipir i honum…. ætli eitthvad se ad gerast nuna??? Bid afram:D
    Hafid tad annars rosa gott.

    Komment by Gudny — Sunday - 3.September 2006 @ 18:51

  3. Ég er alltaf að kíkja á síðuna og athuga hvort það sé ekki kominn lítill gullmoli! er ægilega spennt! vonandi gengur allt vel hjá ykkur á lokasprettinum og hafiði það sem allra best…

    Komment by Jóa — Sunday - 3.September 2006 @ 19:35

  4. Ohh til hamingju með vaginn - við hlökkum ógurlega til að fá fréttir af fæddum erfingja.

    Knús frá okkur öllum,
    Ásta, Ámundi og Elsa Björg

    Komment by Ásta — Sunday - 3.September 2006 @ 20:17

  5. hæhæ sæta bumbukríli, til hamingju með þessa fínu síðu :) Bið spent eftir að fá þig í heiminn…

    Komment by Sigurlaug — Sunday - 3.September 2006 @ 21:18

  6. Veiiii allir að koma og skoða síðuna okkar, takk fyrir ég fer að koma rétt bráðum. Kiss kiss, sjáumst.

    Komment by Bumbukrílið — Sunday - 3.September 2006 @ 21:26

  7. hæhæ krúttubollan mín:) og þið foreldrakrúttubollur líka að sjálfsögðu:) Ég hef látið símann alveg vera síðan á laugardaginn og treysti því 100% að þið látið okkur vita um leið og eitthvað fer að gerast…ég held nú samt að ég geti ekki látið það vera að hringja í dag enda ekki vön því að heyra ekki í litlu systu á hverjum degi:) ég hef því fullkomna afsökun í að hringja og tékka á stöðunni ligga ligga lái lei;);) en okkur hlakkar ossa mikið til að fá þig í heiminn en getum sko alveg beðið í 12 daga í viðbót…er samt ekki viss með múttuna þína hehe:)
    knús í krús
    Steinka stórfrænkusystir og öll krílin hennar:):)

    Komment by Steinunn — Monday - 4.September 2006 @ 10:58

  8. Gangi þér vel elsku dúllan mín á endasprettinum :) ég held þetta verði lítill gutti sem þið fáið! Baráttukveðjur að austan

    Komment by Ragga — Monday - 4.September 2006 @ 20:20

  9. ég var búin að spá því að lítil skvísa kæmi í heiminn í dag! það er eins gott að hún fari að láta sjá sig, hefur nokkra tíma til stefnu!:)

    Komment by Jóa — Wednesday - 6.September 2006 @ 14:43

  10. VVeeeiiii!!! Innilega til hamingju með litlu prinsessuna! vissi að það var stelpa!! vona að allt gangi rosa vel! Svo þarf maður nú að kíkja á hana við tækifæri!:) Hafiði það öll sem allra best og njótiði lífsins, því það er núna bara rétt að byrja!:)

    Komment by Jóa — Friday - 8.September 2006 @ 22:54

  11. Til hamingju litla fjölskylda, þið eruð algjörar hetjur!! Hlakka til að sjá myndir af dúllunni…

    Komment by Ragga — Friday - 8.September 2006 @ 23:13

  12. Innilega til hamingju elskur. Hlakka mikið til að sjá litlu gelluna :O)
    Knússsssss

    Komment by Pálína, — Saturday - 9.September 2006 @ 14:04

  13. Ohhhh, til hamingju með prinsessuna. Hlakka ógurlega til að sjá myndir og svo skvísuna sjálfa í desember.

    Knús og kossar

    Komment by Ásta — Saturday - 9.September 2006 @ 20:32

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu