Lítil lasin ofurhetja!
Sunday - 10.September 2006
Litla stelpan okkar er náttúrulega fallgust í heimi (það finnst amk foreldrunum!) Hún er sko með rosa fínt dökkt hár og ofboðslega falleg augu. Hún er sko alveg með munnsvipinn hennar mömmu sinnar og hökuna en með augnsvipinn hans pabba síns (eða það sýnsit okkur allaveganna svona fyrst um sinn.) Hún er alveg gjörsamlega fullkomin í alla staði
Ég sit hérna uppi á kaffistofu á Barnaspítalanum þar sem litla dúllan okkar er búin að vera síðan strax eftir fæðinguna. Legvatnið var grænt (hún var sumsé búin að kúka í það) þar sem fæðingin gekk seint og hún var orðin þreytt gleypti hún eitthvað af legvatni og er með svo kölluð blaut lungu. Það voru strax teknar lungnamyndir af henni því hún náði ekki að anda og hún var sett í svokallað CPAP sem er öndunarstuðningur úr nefinu og ofan í lungu. Hún var tengnd við allskonar vélar og mæla og það sést varla í hana fyrir nálum í höndum og höfði og slöngum í andlitinu. Hún var í hitakassa fyrstu næturnar og með súrefni og sykurvatn sér til aðstoða og gat ekki tekið við neinni næringu því hún átti svo erfitt með að anda. Hún var orðin voða þreytt greyjið en braggast rosa vel. Hún var strax sett á sýklalyf til að slá á sýkingu sem talið er að hún sé með í lungunum eftir græna legvatnið. Það eru alltaf teknar lungnamyndir mjög reglulega og blóðprufur (alltaf verið að stinga hana í hausinn, hendurnar og lappirnar) og fylgst ofboðslega vel með henni. Hún fékk að koma úr hitakassanum í gær og CPAP-ið var tekið úr lungunum hennar. Hún var voða dugleg í gær og fékk meira að segja að knúsa okkur og fær að koma á brjóstið og var sko ekkert nema dugleg að drekka. Það var algjörlega himneskt! Við erum náttúrulega hjá henni öllum stundum og vonum að þetta gangi allt fljótt yfir og að hún braggist hratt og örugglega. Hún er ekki í kassanum í dag og var ekki heldur í nótt en er samt aftur komin með sonduna ofan í maga til að fá að drekka því hún var orðin alltof þreytt eftir veikindin og hefur ekkert getað fengið að súpa hjá mömmu sinni í dag en vonandi bara hressist hún sem fyrst svo brjóstagjöfin fari að ganga eins og í sögu. Í dag er hún muuun laslegri en hún var í gær og liggur eiginlega í hálfgerðu móki - þó hún sé ekki sofandi þá opnar hún samt ekki augun nema svona örlítið og þá ranghvolfir hún þeim bara. Hún verður núna bara að fá að hvílast ofsalega vel og vera dugleg að braggast og svo verður ástandið aftur endurmetið á morgun. Sama hvernig fer þá verður allt í lagi með hana en þetta tekur bara allt sinn tíma. Fyrst þegar myndir voru teknar þá leit þetta allt mun verr út og gert var ráð fyrir mun lengri tíma í bata en hún er búin að vera að taka sér. Hún verður áfram á sýklalyfjum en þarf ekki að vera lengur með sykurvatni í æð því hún getur tekið við mjólk (stundum í sonduna og stundum á brjósti) og við vitum eftir hádegi á morgun hversu lengi í viðbót hún verður á sýklalyfjunum. Hún verður áfram uppi á Vökudeild þar sem er hugsað ofboðslega vel um hana og við erum hjá henni alveg frá því við megum koma á morgnanna og þangða til við megum ekki vera lengur á kvöldin. Hún verður núna bara að láta sér batna og koma heim með okkur í kotið okkar á Nesinu. Ég er inniliggjandi á Sængukvennadeildinni en Friðgeir greyjið þarf alltaf að fara heim og vera þar á nóttunni (voða einmanalegt). Það er voða skrítið að sjá litlu dúlluna okkar svona lasna - sérstaklega þegar hún var öll tengd í allskonar vélar, en hún er samt búin að vera alveg ótrúleg ofurhegjta og búin að taka rosa framförum! Hún er sko langstærsta barnði á Vökunni því þar eru núna bara fyrirburar og svo ein svona stór og stæðileg stelpa sem er nánast of stór í hitakassann hehe. Ég er annars bara hress - bara skrítið fyrir okkur öll að fá ekki að vera bara saman og fara heim daginn eftir eins og planið var auðvitað. Jæja, ég ætla að fara aftur og knúsa duglegu gelluna okkar - hún fær alveg að vera í fanginu á okkur núna þó hún sé tengd í allskonar vélar og mæla þannig að þetta er nú allt að koma til! Við setjum inn einhverjar myndir þegar allt er farið að róast hjá okkur en heimsóknir verða að bíða eitthvað því það má ekki koma til okkar á Vökudeildina og svo er hún náttúrulega sérstaklega veik fyrir bakteríum núna og læknarnir ráðlögðu okkur að fá ekki heimsóknir fyrst um sinn svo við þyrftum nú ekki að koma aftur á Vökuna. Knús til allra og takk fyrir alla góðu straumana og fallegu kveðjurnar frá öllum! Þetta er allt saman að virka og skvísan er sko aldeilis að finna fyrir því hvað allir vilja að hún verði hraust og hún er alveg að standa undir væntingum ![]()
Hún er sko ofurhetja þessi stúlka…
Ég sendi strauma til ykkar og hugsa stöðugt til ykkar…
Þið standið ykkur svo vel
Knús til litlu skvÃsunnar frá okkur TonÃu
Komment by PálÃna, — Sunday - 10.September 2006 @ 15:06
Æj, voða leiðinlegt að þið fáið ekki að vera saman öll fjölskyldan en litla dúllan verður fljót að jafna sig og þá getið þið farið saman heim. Sendi heita strauma frá Danmörkinni og hlakka svoooo til að sjá hana.
Komment by Guðný frænka — Sunday - 10.September 2006 @ 15:16
Æji en leiðinlegt að heyra að litla nýjasta frænkn mÃn sé bara lasarus.
Látið ykkur liða vel og láttu þér batna knúsumús. BÃð spennt eftir myndum og sendi ykkur góða strauma.
Það er lÃka aldrei að vita nema maður droppi à kaffi á nesið svona þegar allir verða orðnir hressir.
Kveðja.. Elva og co
Komment by Elva frænka — Sunday - 10.September 2006 @ 21:27
Hjartanlega til hamingju með dótturina!! Samgleðjumst ykkur innilega:) Sendum um leið batakveðjur, vonandi nær hún sér fljótt !! Erum með ykkur à anda frá Danmörku! Knús og kossar! Þið eruð frábærlega dugleg!
Komment by Edda Lára og Sverrir — Sunday - 10.September 2006 @ 21:52
hæhæ elskurnar….
það er ekki gaman af þessum veikindum en samt frábært að sjá hvað þið eruð svka sterk, allavega af þessum skrifum að dæma, sendi baráttukveðjur, svo kannski kÃkir maður a litlu prinsessuna þegar hún er orðin betri:) bið ða heilsa:)
kv. jóhanna
Komment by Jóhanna G — Sunday - 10.September 2006 @ 22:35
Elsku Annska og Friðgeir, innilega til hamingju með prinsessuna, fræbært að heyra að´hún sé að braggast..og ég tala nú ekki um hvað var yndislegt að heyra i henni à sÃmann à gær. Alveg á hreinu að þetta er sko lang flottasta stelan à öllum bænum
Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið heim
Gangi ykkur rosa vel 
Komment by sigurlaug — Monday - 11.September 2006 @ 10:35
Til hamingju með dótturina. Batakveðjur úr Breiðholtinu.
Erum að hugsa til ykkar
Palli og Ingunn
Komment by Palli og Ingunn — Monday - 11.September 2006 @ 18:21