Komin heim á Glæpanesið
Saturday - 16.September 2006
Jæja - þá er litla fjölskyldan á Miðbrautinni komin heim! Það er sko aldeilis gott að vera komin heim og geta kúrt með litlu dúllunni okkar í millunni í staðinn fyrir að þurfa að skilja hana eina eftir uppi á Vökudeild á meðan við fórum og sváfum í sitthvoru horninu á Reykjavík.
Lungnasérfræðingurinn sem var að sjá um litlu skvísuna okkar sagði reyndar að við mættum alls ekki vera að fá fólk í heimsókn til að byrja með því hún væri enn svo ægilega máttfarin og viðkvæm fyrir sýkingum. Við viljum samt endilega fá alla í heimsókn til að sjá litla gimsteininn okkar en ekki fyrr en í kringum seinnipartinn í næstu viku eða næstu helgi
Þá eru sko allir velkomnir! Hún braggast annars rosa vel og það er rosa dagamunur á henni - það þarf til dæmis ekki að vekja hana lengur og vera með rosa prógramm til að halda henni vakandi á meðan hún er að drekka. Hún er rosa flott og mikil svkísa og við erum sko ægilega stolt af henni og hvað hún er búin að vera dugleg, ósigrandi hreinlega! Það fer oft rosa illa í fullorðið fólk að fá sýklalyf, allskyns kvilla láta á sér kræla og það eru bara nokkrar töflur - litla gellan okkar fékk sko sama skammt af sýklalyfjum og mjólk og það beint í æð og nokkrar tegundir en þessi litla hejta er sko ekkert að kippa sér upp við þetta og er sko mun hressari en ég þorði að vona
Ég setti inn nýjar myndir - vei vei veiiiiiiii!
Hæ hæ, frábært að fá fleiri fréttir frá ykkur:D En myndasÃðan er nú eitthvað lasin greyið:S Ég kemst bara inná yfirlitið en svo kemur bara Service temporarily unavailable!!!
Vona að ég fái að sjá fleiri myndir af skvÃsunni, annars megið þið endilega lÃka senda mér á gasge06@student.sdu.dk.
Gangi ykkur vel,
knúskveðja, Guðný stórafrænka:D
Komment by Guðný — Saturday - 16.September 2006 @ 16:11
hallo hæ glæpanes fjölskylda!! til hamingju með tessa lÃka yndislegu prinsessu!! enda varla annað hægt tegar þessir tveir genapollar renna saman:-) gott að þið séuð öll komin heim og það gengur vel. Sjáumst þegar þið meigið fara að fá heimsóknir kveðja frá kóp Skúli
Komment by skúli guð — Saturday - 16.September 2006 @ 18:31
Hæ.
Til hamingju með að vera komin heim með skvÃsuna.
Gangi ykkur rosa vel.
kv
Hófý og co
Komment by Hófý — Sunday - 17.September 2006 @ 02:38
Vei vei vei, ég gat skoðað allar myndirnar núna… og hún er sko æðisleg:D
Komment by Guðný — Sunday - 17.September 2006 @ 09:06
Æðislegar myndir, fyndið að sjá hvað er rosalega sterkur svipur með henni og patta litla þegar hann var sona lÃtill, hlakka endalaust mikið til þess að koma og sjá pæjuna:)
Komment by sigurlaug — Sunday - 17.September 2006 @ 14:08
Hæ elsku fjölskylda… gott að vita að þið eruð komin heim og allt gengur vel. Ég vona að ég fái að sniglast með Steinunni einhverntÃman og sjá prinsessuna
Kveðja, Inga og co.
Komment by Inga Hrönn — Sunday - 17.September 2006 @ 15:15
Velkomin heim litli gullmoli, þú ert ekkert smá falleg blessað barn!!
Komment by Ragga — Sunday - 17.September 2006 @ 16:49
Velkomin heim! Hlakka til að sjá liltu sætu skvÃsuna!
Komment by ElÃsabet — Monday - 18.September 2006 @ 00:23
hey okkur finnst kominn tÃmi á nýja færslu og fleiri myndir:) Það eru komnar fleiri myndir af henni inn á PattasÃðu en þessa hehehehe:) En knús til ykkar sæta fjölskylda…
Steinka, Siggi, Patti og bumbufrænka:)
Komment by Steinunn — Tuesday - 19.September 2006 @ 09:45